Feykir


Feykir - 15.12.1999, Blaðsíða 4

Feykir - 15.12.1999, Blaðsíða 4
4FEYKIR 43/1999 Nú stöndum við saman Skagfirðingar Stemmning á kynningafundinum um Hestamiðstöð íslands Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjómar í ræðustól, næstur honum er Þórarinn Sólmundarson fundarstjóri og einnig má sjá Bjama Egilsson, Stefán Guðmundsson og Vilhjálm Egilsson sem sæti áttu í undirbúningshópnum. Það var hugur í hestamönn- um á kynningarfundi unr Hestamiðstöð Islands, sem haldin var í félagsheimilinu Tjarnarbæ á Sauðárkróki sl. lagardag, en þar kynnti undir- búningshópur verkefnisins það fyrir heimaaðilum. Greinilega kom fram á fundinum að mik- ill áhugi er meðal allra þeirra aðila er tengjast hestamennsk- unni í Skagafirði, og metnaður til að nýta þetta tækifæri til aukinnar atvinnusköpunar í greininni. Segja má að há- punktur þessarar stemmningar hafi verið við lok fundarins þegar Sveinn Guðmundsson sté í ræðustól og sagði þetta verkefni mesta tækifæri sem gefíst hafi í hestamennskunni. Hann þakkaði framgöngu sveitarstjómar Skagafjarðar í málinu, þar sýndu menn greinilega skilning þó svo að þeir sæjust sjaldan eða aldrei á hestbaki. Þá þakkaði Sveinn sérstaklega fylgni Vilhjálms Egilssonar við málið og sagði það ekki koma sér á óvart því hann þekkti vel þann rann sem þeir bræður kæmu úr, Vil- hjálmur og Bjami; sem sæti átti í undirbúningshópnum, eftir áralangt farsælt samstarf við föður þeirra Egil Bjamason að hrossaræktarmálum. „Og ég vil bara segja að nú stöndum við saman Skagfirðingar”, sagði Sveinn og hlaut dúndr- andi lófaklapp fyrir. Þar var greinilegt að foringinn talaði. í upphafi fundarins kynnti Vilhjálmur Egilsson alþingis- maður verkefnið. Sagði Vil- hjálmur að nú riði á að hesta- menn sýndu samstöðu og út- sjónarsemi og nýttu þetta tæki- færi. Þarna væri miklum fjár- munum varið, bæði frá ríki og ekki síður sveitarfélaginu til þessarar atvinnulegu uppbygg- ingar tengda hestinum. Vil- hjálmur sagði þetta í raun í fyrsta skipti sem svo beinn stuðningur kæmi við hesta- mennskuna í landinu. Hesta- mönnum væri þama sýnt mik- ið traust, það væri verið að veðja á þeirra áræði og þekk- ingu, og ekki veitti af að efla þá faglegu starfsemi hér í landinu, til að okkur takist að halda því forskoti sem við höfum, en í öðrum löndum þar sem ís- lenski hesturinn er ræktaður, fjölmörgum, hefur fæmi í ræktun og reiðmennsku verið að aukast mjög á seinni árum. Vilhjálmur sagði að menn von- uðust til þess að peningarnir rnundu ávaxta sig vel í þessari starfsemi og hafa margfeldis- áhrif, þannig að miðstöðin sjálf yrði óþörf eftir fimm ár, eins og hugmyndin á bak við verk- efnið gerði ráð fyrir. Bjami Maronsson formaður Hrossaræktarsambands Skaga- fjarðar sagði að þeir 200 aðilar sem væm félagar í sambandinu tækju þessu verkefni fagnandi. „Við verðum að vanda okkur við ræktunina og fara vel með þessa peninga. Ef við Skagfirð- ingar kunnum ekki nú þegar að fara með peninga þá hljótum við að geta lært það sagði”, Bjami. Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjómar Skagafjarðar sagðist vonast til að vel tækist til með verkefnið og til stjóm- unar þess veldust „toppmenn” eins og hann orðaði það, en gert er ráð fyrir að þrír staifi að Hestamiðstöðinni til að byrja með. „Eg vona að þetta skili sér bæði í fjárhagslegu, byggðalegu og menningarlegu tilliti”, sagði Gísli. Margir fleiri tóku til máls og ýmiss mál bám á góma, svo sem reiðvegamál og reiðleiða- mál. Tvö verkefni Það var fyrir síðustu helgi sem skrifað var undir tvö átaks- verkefni til eflingar hrossarækt- ar og hestamennsku. Það var framangreint átaks- verkefni - tilraunaverkefni í Skagafirði sem hlotið hefur heitið Hestamiðstöð íslands. Markmið samningsins er að stuðla að aukinni fagmennsku í atvinnustarfsemi tengdri ís- lenska hestinum, s.s. ræktun og ferðaþjónustu. Enfremur að efla hestaíþróttir og hesta- mennsku. Um er að ræða fimm ára verkefni. Arlegt framlag ríkisins til verkefnisins er 25 milljónir, sem skiptist þannig að forsætisráðuneyti (ráðuneyti byggðamála) menntamála- ráðuneyti og samgönguráðu- neyti greiði 5 milljónir hvert og landbúnaðarráðuneyti lOmillj- ónir. Þá leggur sveitarfélagið Skagafjörður fram 15 milljón- ir árlega til verkefnisins. Hinn samningurinn er milli landbúnaðarráðherra og Félags hrossabænda, Landssambands hestamannafélaga, Félags tamningamanna og Bænda- samtaka íslands um 5 ára átaksverkefni um gæðastefnu í ræktun, tamningu, þjálfun, sölu, kynningu og notkun ís- lenska hestsins. Arlegt ffamlag ríksins til þessa verkefnis er 15 milljónir. Markmið samningsins er að stuðla að fagmennsku innan greinarinnar, aðlaga stærð hrossastofnsins markaðsað- stæðum, ræktunamiarkmiðum og markmiðum um sjálfbæra landnýtingu, styrkja félagslega samstöðu hrossabænda og hestamanna og auka arðsemi í greininni. Síðasta blað ársins 21. desember Síðasta blað Feykis fyrir jól og á þessu ári kemur út þriðjudaginn 21. desember. Auglýsendur og þeir sem þurfa að koma tilkynningum í blaðið eru beðnir að koma því efni til skila í tíma. Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Myndsími 453 6703. Netfang: feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Sesselja Traustadóttir og Öm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð- brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- fréttablaða.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.