Feykir - 02.02.2000, Síða 6
6 FEYKIR 5/2000
Hagyrðigaþáttur 289
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrja skal á lagfæringum vegna
síðasta þáttar, en inn í hann slæddust
því miður nokkrar villur. Fyrri hluti
vísu Jóns Péturssonar er réttur þannig.
Þegar kýs sér maður mær
munann frýs í kringum.
í einni af vísum Rúnars Kristjáns-
sonar er villa, réttur er síðari hlutinn
þannig.
Faldinn breiðir ævi á
óláns neyðar glíma.
í vísu Baldvins skálda mun þriðja
hendingin eiga að vera þannig: „Ævi
ferðafötin mín’'.
Slæmt er að tapa effinu úr vísu
Guðrúnar frá Oddsstöðum og sjá
glöggir lesendur trúlega hvernig hún
skal rétt vera.
Þótt ég finni fyrir löngu
fullin tæmd úr lífsins brunni.
Það er Þorvaldur Þórarinsson frá
Hjaltabakka sem mun hafa ort svo 18.
febrúar 1962.
Inni kalda á ég sæng
úti líka skefúr. , ■
Stundum undir vetrarvæng
vorið lengi sefur.
Fjórða september 1969 mun Olli
hafa ort þessa.
Tískan hefur tök um skeið
tíðum styttast pils á kroppi.
Aður fyrr var lengri leið
að lenda í hinu mikla stoppi.
Stundum var þó staldrað við
á stoppinu í gamla daga
nú þarf víst ekki þessa bið
það er líka önnur saga.
Ævin styttist, lengist þó um leið
líkt og pils á þessum fríðu kroppum.
Ellin komin, æsku horfið skeið
áning hætt á þessum gömlu stoppum.
Til samferðamanns yrkir Þorvaldur.
Illar nomir efldu seið
við upphaf göngu þinnar.
Snemma var þér vörðuð leið
á vegi dyggðarinnar.
Til Ragnheiðar yrkir Þorvaldur
þessa fallegu vísu.
Löngu þráir hjartað hlýju
hana loksins nú ég finn.
Dánar vonir vakna að nýju
vina mín við barminn þinn.
Það er Jón Sigurðsson frá Skíðs-
holtum í Mýrasýslu sem er höfundur
að næstu vísum. Munu þær vera ortar í
tilefni af afmæli.
Eitt er staðreynd, alveg skýr
og í fullu gildi.
Enginn tfmans framrás flýr
hve feginn sem hann vildi.
Hversu hátt sem hefst á flug
hugsjón vísindanna,
fær hún aldrci unnið hug
á aldurdómi manna.
Gott er að eiga góðan vin
gefst ei auðna meiri.
Vertu ætíð velkomin
þó verði árin tleiri.
Þá er næst að t ifja upp eina eftir
Kolbein Kollaljarðarskáld.
Sárast raun þá síst ég met
silfur mitt að þrjóti
þegar best mér lífið lét
lék ég mér að grjóti.
Annar þekktur hér áður lýrr, Hjálm-
ar frá Hofi. minnir mig að ort hafi
næstu.
Fölsk em brjóst og falskar brár
fölsk ert þú í svörum.
Falskar tennur. falsað hár
falskur roði á vörum.
Um aðra strauma í tísku orti Bald-
vin Jónatansson svo.
Táldragandi tískan er
tildrið má það sanna.
Fljóðin ganga futðu ber
fyrir sjónum manna.
Næsta vísa gæti verið frá hemáms-
ámnum svokölluðu. höfundur Hreiðar
E. Geirdal.
Ýmsir gátu ungfrúr séð
eftir gleðileiki,
ganga burt frá glaumnum með
gin- og klaufaveiki.
Jón Kristófer, sem kallaður var
kadett, og Steinn Steinarr gerði á sinni
tíð þjóðkunnan, mun hafa ort eftirfar-
andi vísu til kunningja.
Aldrei sést hann einn á ferð
er það mjög að vonum,
því að timburmannamergð
mikil íylgir honum.
Þessa kunnu vísu mun Jón kadett
hafa ort er hann sé fallega stúlku leiða
amerískan dáta við hótel í höfuðborg-
inni að morgni dags.
Ó leyf mér drottinn að deyja
dapurt er mannlífið.
Fósturlandsins Freyja
er farinn í ásandið.
Að síðustu þessi fallega vísa sem
ort er um lífið í Herjólfsdal í Vest-
mannaeyjum á góðri stundu. Höfund-
ur er Guðmundur Guðni Guðmunds-
son verkamaður í Reykjavík.
Sækja Dalinn sveinn og víf
seyðir stundargaman.
Þar sem æska, ljós og líf
leggja þræði saman.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Epson - deildin í körfubolta
Tindastóll heldur sér enn
í baráttu efstu liðanna
Tveir sigrar hjá
Tindastólsstelpunum
Mikið fjör var í Síkinu á
Sauðárkróki á sunnudag þegar
ísfirðingar komu í heimsókn.
Áhorfendur urðu vitni að einum
albesta leik vetrarins, geysileg
spenna og „axjori’ allan tímann,
jafn leikur þar sem heimamönn-
um tókst loksins að hrista gest-
ina af sér á síðustu fjórum mín-
útum leiksins og sigra 87:74.
Með sigrinum haldaTindastóls-
menn sér enn í hópi efstu liða en
staða ísfirðinga er enn erfið.
Leikurinn var kannski
dæmigerður fyrir það hvað
deildin er jöfn í ár og lítill getu-
munur á liðunum. Tindastóls-
menn vom þó með fmmkvæðið
allan leikinn og gestunum tókst
aldrei að komast yfir, en í
tvígang í fýrri hálfleiknum náðu
þeir að vinna upp gott forskot
Tindastóls og jafna, en komust
aldrei yfir í leiknum. Þeir vom
drifnir áfram að góðum leik
Bandaríkjamannsins Klifton
Buss og skyttur þeirra vom líka
drjúgar. Þannig skoraði Baldur
Jónasson þrjár þriggja stiga
körfur í röð í fyrri hálfleik og
jafnaði í stöðunni 40:40.
Tindastóll var einungis fjór-
um stigum yfir í leikhléi og
gestimir náðu að hanga á jDessu
róli með mikilli baráttu, þar til
um fjórar mínútur vom eftir að
Tindastóll gerði út um leikinn
og var Svavar Birgisson þá í
miklum ham ásamt Bandaríkja-
manninum Shavvn Mayers sem
var geysisterkur í vöminni og
náði að halda Bush í skefjum.
Lokatölur urðu sem fyrr segir
87:74.
Svavar Birgisson átti stórleik
í liði Tindastóls bæði í vöm og
sókn og nýting hans á sóknar-
fæmnum var mjög góð. Mayers
vann geysilega vel iyrir liðið og
Valur Ingimundarson, sem nú
lék með liðinu að nýju, átti góða
innkomu, sem og hinn ungi
Helgi Margeirsson. Þá léku þeir
Láms Dagur, ísak og Kristinn
Friðriksson einnig vel, þótt
Kristinn skoraði óvenjulítið að
þessu sinni.
Hjá ísfirðingum var Klifton
Bush sterkur og Baldur Jónas-
son átti mjög góðan leik.
Gangur leiksins: 6:0, 10:2,
15:8, 15:15, 26.17, 31:19,
40:31, 40:40 (48:44) 55:46,
60:55, 60:60, 68:60, 72:69,
84:69 (87:74)
StigTindastóls: SvavarBirg-
isson 23, Shawn Mayers 13,
Láms Dagur Pálsson 12, Valur
Ingimundarson 11, Helgi Freyr
Margeirsson 7, Isak Einarsson
7, Kristinn Friðriksson 7, Sune
Hendriksson 3, Flemming Stie
2 og Friðrik Hreinsson 2. Stiga-
hæstir ísfirðinga vom Klifton
Bush með 27 stig og Baldur
Jónasson var með 15.
Þriggja stiga körfur: Tinda-
stóll 12/16, KFÍ 8/14. Víta-
hittni: Tindastóll 9/11, KFI
11/17. Fráköst: Tindastóll 30,
KFÍ31.
K vennaflokkur Tindastóls
í köifubolta bar tvívegis sigur-
orð að Grindavíkurstúlkum
|:>egar þær komu í heimsókn
um helgina til keppni í 1. deild.
Mcð sigrinum em Tindastóls-
stúlkurnar komnar í fjórða
sæti deildarinnar með átta
stig. en sex lið em í deildinni.
I fyrri leiknum, sem fram
fór á laugardag, urðu lokatölur
58:40 og á sunnudag 67:50.
Birna Eiríksdóttirátti stórleik í
fyrri leik liðanna skoraði þá 23
stig. Bandaríska stúlkan Jill
Wilson varmjög sterk íbáðum
leikjunum og sú sem lagði
gmnninn. Hún skoraði 11 stig
í fyrri leiknum og 19 í þeim
seinni. Jill tók fjölda frákasta
og átti margar stoðsendingar.
Efemía Sigurbjömsdóttir skor-
aði 13 stig í fyrri leiknum, en í
þeim seinni skoraði fyrrnefnd
Bima 14 stig og Halldóra
Andrésdóttir 8 stig.
Tindastólsstúlkumar hafa
sýnt miklar framfarir frá því í
haust og liðið virðist á góðri
leið. Þar em margir efnilegir
leikmenn, s.s. Dúfa Dröfn Ás-
bjömsdóttir, Sólborg Her-
mundsdóttir, sem ekki lék með
vegna veikinda að þessu sinni,
og einnig hafa gengið til liðs
við Tindastól tvær stúlkur frá
Grindavík. Önnur jreirra, Aníta
Sveinsdóttir, lék mjög vel í
fyrri leiknum, hirti þá m.a. tíu
fráköst.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir
seðlinum með áskriftargjaldinu.