Feykir


Feykir - 08.03.2000, Blaðsíða 5

Feykir - 08.03.2000, Blaðsíða 5
10/2000 FEYKIR 5 Hallbjörn sendir frá sér gullnar melódíur á K-9 „Ég er kúreki kátur og hress, það er kántrý í blóðinu á mér” segir í texta Rúnars Kristjánsson- ar við hið þekkta lag Hallbjöms Hjartarsonar „Kátur kúreki”, en það er ásamt 19 öðrum áður út- komnum lögum á nýjum geisla- diski sem kominn er frá Hallbimi Hjartarsyni og heitir Kántrý 9, með undirtititlinum „Golden memories, Country love songs”, en yfirskriftin er að sjálfsögðu „The king of the country in Iceland”. Aðspurður segist Hallbjöm hafa valið úr 112 lögum sínum og það val hafi ekki verið erfitt. „Það er ekki erfitt að velja úr úr- vali. Fólk er svo ánægt með lög- in mín og segir að þetta sé nota- leg og góð tónlist og ég verð að trúa því. Þessi diskur kom út rétt fyrir jólin, en ég er ekki farinn að auglýsa hann ennþá og ætla ekki að leggja áherslu á það fyrr en vorið fer að nálgast. Hann hefur alltaf reynst mér best sá tími þeg- ar lífið er að vakna að vetrardval- anum, vorið og sumarið”, segir Hallbjöm. Það er óhætt að taka undir orð aðdáenda Hallbjamar að lögin hans em notaleg, einstaka er reyndar fyrir smekk pistilritara dálítið væmið, en það er erfitt að gera svo að öllum líki. Sum virka kannski svolítið stirð við fyrstu áheym, en þegar maður hlustar á þau næst, þá renna þau strax bet- ur í gegn og líklega er það rétt sem Hallbjöm segir, að þau lög séu lífseigust sem hægt og síg- andi vinna sér vinsældir. Lögin á plötunni em: Sannur vinur, Ég vitja þín, Söngfuglinn, Tmkkurinn, Ef þú sérð hana, Þetta var kona, Söngurinn minn, Ég vil fylgja þér, Kátur kúreki, Litli drengurinn, Hundurinn Húgó, I einvemnni, Upp til ijalla, Kántrýbær, Litla þorpið, Elsku bam, Hljóða bæn, Agúst nótt, Ljóshærða gyðjan og Kæri Jesú. A umslagi með Kántrý 9 seg- ir m.a.: „Lög Hallbjamar hafa unnið sér sess í hugum og hjört- um landsmanna og heyrast nú leikin oftar á öldum ljósvakans en nokkm sinni fyrr. Þau hafa um áraraðir fært landsmönnum birtu og yl, jafnt á hamingju- sem sorgarstundum, og vekja upp sælar minningar hjá fólki á öllum aldri í hvert sinn sem þau em leikin, lög eins og t.d. Sannur vinur, Hann er vinsæll og veit af því, Hundurinn Húgó og Kántrý- bær svo eitthvað sé nefnt. Öllum þeim sem hafa eitt- hvað um tónlist Hallbjamar að segja ber saman um að hér sé á ferðinni fallegar melódíur ásamt góðum textum og þeir sem minni kynni hafa haft af lögum Hallbjamar em sammála um að hafa farið á mis við fagra tónlist.” Umhleypingasamt veður verði áfram Veðurspámenn í Veður- klúbbnum á Dalbæ á Dalvík em ekki bjartsýnir á veðrið í mars og þá aðallega fram til 20. mars. „Veðrið verður á- fram óstöðugt og umhleyp- ingasamt eins og það hefur verið undanfarið og síst betra, sífelldar breytingar og óróleiki, en samt líkur á að hann verði meira að norðan”, segir í mars- spánni sem gerð var á hlaupár- dag og var gestur fundarins, séra Magnús Gamalíel Gunn- arsson sóknarprestur. „Vitum við þá hverjum við getum kennt um ef spáin gengur illa eftir”, segja Dalbæingar. „Einn vildi kenna því um hvað sjórinn væri heitur, þess vegna væri þessi órói í veðr- inu. Sérstaklega em menn svartsýnir ef veðrið verður slæmt mánudaginn 6. mars (bolludag) þegar nýtt tungl kviknar í ANA og miðviku- daginn 8. mars (öskudag) og þá er stórstreymi. Ef það geng- ur eftir verði viðloðandi norð- lægar áttir með snjókomu og lægðimar gangi hver á eftir annarri. Sumir vilja meina að hann yrði svona hvemig sem veðrið verði íyrmefnda daga. í kringum 20. mars verði breyt- ingar, en sú breyting standi stutt yfir og það haldi áfram óstöðugt veður, en meira um það síðar. Það vom flestir sammála um að Hekla væri ekki hætt og það væri meira að gerast í gosmálum og þá á öðmm stað. Nokkrir höfðu á tilfinningunni að það ætti eftir að gjósa meira og þá annars staðar, og enn verði órói og óstöðugleiki í jörðinni og fari ekki minnk- andi, og ekki ólíklegt að það gæti skolfið eitthvað”, segja þeir Dalbæingar og láta sigekki muna um að spái í hræringar jarðskorpunnar. Og svona í lokin þá vildu sumir þar á bæ meina með riddarar- daginn 9. mars, að verði hann votviðrasamur þá verði sumar- ið gott, en hart ef frost er þann dag. Þá muni veðrið á boðun- ardegi Maríu þann 25. mars verða eins nokkuð marga daga þar á eftir, en skiptar skoðanir vom um lengd þess veður- kafla, sumir sögðu 30 dagar, aðrir nefndu 14 daga. SGO AC0 • Skipholti 17 og 21 ■ Reykjavík • Sími 530 1800 • Fax 530 1801 • www.aco.is Verslunin Hegri • Sæmundargötu 7 ■ Sauðárkróki • Sími 453-5132 APPLE, GATEWAY, UMAX 0G ALLIR HINIR í SKAGAFIRÐI! V Apple' Verslunin Hegri hefur nú gerst sölu- og þjónustuumboð fyrir AC0 á Sauðárkróki. Þar með geta Skagfirðingar gengið að þessumágætutölvuvörum Gatcwaý íheimabyggð.ACO, ognú Hegri, geta boðið mörg viðurkenndustu vöru- UMAX merki í heimi í tölvuvörum: Apple og Gateway tölvur, HP prentara, Belkin kapla, Umax skanna og margvíslegar rekstrarvörur. AC0 býður Hegra og Skagfirðinga velkomna til samstarfs.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.