Feykir - 08.03.2000, Blaðsíða 7
10/2000 FEYKIR 7
Margt framundan hjá Heimi
Karlakórinn Heimir fer nú á
næstunni að halda sína hefð-
bundnu síðvetrar og vortón-
leika. Fyrsta skemmtun kórs-
ins verður í Miðgarði laugar-
daginn 11. mars og hefst kl.
21. Þar verður kórinn með
mjög fjölbreytta söngskrá
undir stjóm Stefáns R. Gísla-
sonar. Undirleikarar verða
Thomas Higgerson, Jón St
Gíslason og Guðmundur
Ragnarsson. Einsöngvarar
með kórnum verða Einar
Halldórsson, Sigfús Péturs-
son og Kristján Valgarðsson.
Önnur atriði í skemmtuninni
eru að Thomas Higgerson og
Sveinn Sigurbjömsson leika
saman nokkur lög á trompet og
píanó. Þá verður gamanþáttur
um lífið og tilvemna hér á
svæðinu um þessar mundir.
Einnig kemur fram í fyrsta sinn
opinberlega 100 manna kór
Heimismanna og eiginkvenna
þeirra undir stjóm Stefáns R.
Gíslasonar. Konur Heimis-
manna sjá um glæsilegar kaffi-
veitingar að venju. segir í til-
kynningu frá kómum.
Tónleikahald Heimis, sem er
á döfinni á næstunni, er þannig
að föstudaginn 17. mars kl. 21
ætlar kórinn að halda tónleika í
Skagastrandarkirkju. Fimmtu-
daginn 23.mars heldur Heimir í
tónleikaferðalag á Suðvestur-
land og Suðurland. Fyrstu tón-
leikamir verða í Reykholts-
kirkju 23. mars kl. 21, föstudag-
inn 24. mars verða tónleikar í í-
þróttahúsinu í Laugalandi í
Holtum og hefjast þeir kl. 21.
Laugardaginn 25. mars verða
tónleikar í Langholtskirkju og
hefjast þeir kl. 16 og um kvöld-
ið verður kórinn með skemmt-
un á Hótel íslandi. Laugardag-
inn 8. apríl kl. 20,30 heldur kór-
inn tónleika í Glerárkirkju á Ak-
ureyri og föstudaginn 28. apríl
kl. 21 verður Heimiskvöld í
Höfðaborg á Hofsósi.
Laugardaginn 6. maí verða
Sæluvikutónleikar í Miðgarði á-
samt fleiri kómm. Föstudaginn
2. júní heldur Heimir í tónleika-
ferð um Snæfellsnes. Laugar-
daginn 18. ágúst tekur kórinn
þátt í væntanlegri stórhátíð
skagfirskra tónlistarmanna sem
verið er að vinna að og verður
hún haldin í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki. Um sama leyti
verða Heimismenn að undirbúa
ferðina á Heimssýninguna í
Honnover „Expo 2000” þar
sem kórinn á að koma ffam 30.
ágúst ásamt fleiri listamönnum
frá Islandi.
✓
Okeypis smáar
TU sölu!
Til sölu Starlæt mod
kubbar til að spila Play-
station leiki Upplýsingar í
síma 453 7399.
Til sölu Susuky Fox,
breyttur á nýlegum 36 tommu
dekkjum, 125 ha vél,
Willishásigar. Upplýsingar í
síma 452 4505 eða 862 9482.
Óska eftir fótanuddtæki
gefins. Upplýsingar í síma 452
2767.
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í
Ungir framsóknar-
menn mótmæla
vatnshækkun
Stjórn Félags ungra fram-
sóknarmanna í Skagafirði
Höfðaborg Hofsósi fimmtu-
daginn 16. mars kl. 21, ef
veður leyfir.
Allir velkomnir. Kaffiveit-
ingar. Félag eldri borgara.
Húsnæði!
Til leigu þriggja herbergja
íbúð í Reykjavík. Fullbúin
húsgögnum, leigist nótt og
nótt. Upplýsingar gefur Þóra í
síma 557 2070.
Tveggja til þriggja her-
bergja íbúð óskast til leigu á
Sauðárkróki frá 15. maí, helst í
grennd við sjúkrahúsið.
Upplýsingar í síma 566 8053.
mótmælir 5% hækkun á
gjaldskrá hitaveitu Skaga-
fjarðar. „Við teljum það
ranga leið að hækka gjöld til
að bjarga sveitarstjóði", segir
stjóm Félags ungra framsókn-
armanna í Skagafirði.
Hjónin fengu verðlaun hjá Menor
Þann 11. febrúar voru kunn-
gerð úrslit í einþáttungskeppni
Menningarsamtaka Norðlend-
inga (Menor) og Leikfélags Ak-
ureyrar. Verðlaunaafhendingin
fór fram í Samkomuhúsinu á Ak-
ureyri að viðstöddum fjórum
verðlaunahöfum, dómnefnd,
fulltrúum bankastofnana þeirra
sem lögðu til verðlaunafé, fjöl-
miðlamönnum og fleiri.
Veitt voru peningaverðlaun
fýrir þrjú bestu handritin að mati
dómnefndar, samtals að upphæð
kr. 300.000, en auk þess hlutu tvö
handrit aukaviðurkenningu.
Landbanki Islands, útibú Búnað-
arbanka Islands á Norðurlandi og
Sparisjóður Norðlendinga lögðu
fram verðlaunafé.
Urslit urðu þau að fyrstu
verðlaun hlaut Valgeir Skagfjörð
fyrir einþáttung sem ber heitið
„Píanótíminn”. Önnur verðlaun
hlaut Hallveig Thorlacíus. Nefn-
ist þáttur hennar „Kóngsbamið”.
Maður Hallveigar Ragnar Am-
alds fékk svo þriðju verðlaunin
fyrir þáttinn „Vábrestur í Vestur-
heimi”.
Aukaviðurkenningu fengu:
Kristján Hreinsson fýrir einþátt-
unginn „Virkur dagur hjá vænd-
iskonu”, og Iðunn og Kristín
Steinsdætur fyrir þátt sem þær
nefna „Brostu vina”. Allir verð-
launahafar fengu skautritað við-
urkenningarskjal frá Menor og
LA.
Alls bárust 18 handrit í
keppnina. Verðlaunaþættimir og
e.t.v. fleiri verða væntanlega
teknir til sýningar hjá LA á næsta
leikári og hugsanlega einnig hjá
fleiri leikfélögum á Norðurlandi.
í dómnefnd áttu sæti: Sigurð-
ur Hróarsson tilnefndur af Leik-
félagi Akureyrar, sem jafnframt
var formaður nefndarinnar, Sig-
urður Hallmarsson tilnefndur af
Menor og Hannes Öm Blandon
úlnefndur af Bandalagi íslenskra
leikfélaga.
Ýmsir heyrðu gosdrunur
Svo virðist sem ýmsir hafi heyrt drunur frá Heklugosinu,
þannig að Gísli á Húsabakka hefur ekki verið einn um það
eins og hann óttaðist. Þannig höfðu þeir báður samband,
Einar á Dúki í Sæmundarhlíð og Markús á Reykjarhóli við
Varmahlíð. Jakop sagði að þau hjónin hefðu heyrt greinilegar
drunur, konan meira að segja eftir að hún kom að sóló-
eldavélinni í eldhúsinu. Markús sagðist varla skilja í öðru en
það hefði drunið um þveran Austurdalinn etir hljóðunum að
dæma sem bárust að Reykjarhólnum.
Glæsilegt á ÍR-móti
Jón Amar Magnússon var í
miklum ham á Stórmóti ÍR í
Laugardalshöliinni sl. sunnu-
dagskvöld. Hann byrjaði á því að
setja íslandsmet í fyrstu grein-
inni 50 metra grindarhlaupi á
6,76 sekúndum og sigraði ömgg-
lega. Jón kastaði einnig lengst í
kúlunni sem var önnur grein
keppninnar, 15,97 metra, og Jón
Amar stal svo algjörlega sen-
unni á mótinu þegar hann setti
glæsilegt Islandsmet í lang-
stökki seinustu grein mótsins,
sveif 7,82 metra.
Jón Amar sigraði með glæsi-
brag í þríþrautinni, hlaut 2864 stig,
Roman Seberle fráTékklandi varð
annar með 2703 stig og Ólafur
Guðmundsson HSK, frændi Jón
Amars og fyrrum nágranni á
Króknum, stóð sig feikilega vel.
Hann varð þriðji með 2540 stig.
Húnvetningurinn og há-
stökkvarinn Einar Karl Hjartarsson
mætti bláhærður með áletrunina
Sydney á bakleðrinu. Einar Karl
varð annar, fór yfir 2,21 að þessu
sinni en náði ekki ólympíulág-
markinu sem er 2,25 metrar innan-
húss. írinn Brendan Reilly sigraði.
Þær Vala Flosadóttir og Guðrún
Amardóttir stóðu sig einnig ffá-
bærlega. Vala, sem var hársbreidd
frá því að fara yfir 4,50 og setja
nýtt Islands- og Norðurlandamet,
varð önnur með 4,38. Danéla Bar-
tova sigraði, stökk þá sömu hæð,
en í íýrstu tilraun, Vala í annarri.
Guðrún Amardóttir sigraði í tveim-
ur hlaupagreinum og setti m.a. ís-
landsmet í 50 metra hlaupi, hljóp á
6,54 sekúndum.
Um stórskemmtilegt mót var
að ræða, eins og ÍR-mótin em jafn-
an. Stemmningin virtist eiga mjög
vel við keppenduma sem lögðu sig
mjög vel ífam og uppskám frábær-
an árangur.
Karlakórínn Heímír
HEIMISKVÖLD
með Qölbreyttrí dagskrá
í Míðgarðí
laugard. 11. mars kl. 21:00
Skemmtileg söngskrá
*Söngstjóri: Stefán R. Gíslason
Undirleikarar: Thomas Higgerson, Jón St. Gíslason
og Guðmundur Ragnarsson.
*Einsöngvarar með kórnum: Einar Halldórsson,
Sigfús Pétursson og Kristján Valgarðsson.
*Tónlistaratriði: Tónlistarmennirnir
Sveinn Sigurbjönsson: trompet og
Tomas Higgerson: pianó
leika nokkur lög.
*Gamanmálaþáttur sem kemur mörgum á óvart.
*100 manna kór Heimisfélaga og eiginkvenna
þeirra taka lagið í fyrsta sinn opinberlega undir
stjórn Stefáns R. Gíslasonar.
*Konur Heimisfólaga sjá um glæsilegar
kafflveitingar.
HEIMISFÉIAGAR