Feykir - 08.03.2000, Qupperneq 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
8. febrúar 2000,10. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJQRBOK
s
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
með hœstu ávöxtun í áratug!
T
Landsbanki
íslands
_____ í forystu til framtíðar •
, Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Tryggingamiðstöðin og Slysavarnarfélagið Landsbjörg gefa sameiginlega öryggishjálma til
skíðasvæða landsins. Hjálmarnir voru afhentir skíðadeild Tindastóls til noktunar á nýja
skíðasvæðinu á myndakvöldi sem deildin stóð fyrir sl. fimmtudagskvöl, fyrir þá er unnu að
uppsetningu skíðalyftunnar. Það voru Bragi Þór Haraldsson frá Skagfirðingasveit t.v. og
Brynjar Pálsson umboðsmaður Tryggingamiðstöðvarinnar sem afhentu hjálmana. A milli
þeirra er Gunnar Björn Rögnvaldsson formaður skíðadeildar og einnig skíðakrakkamir
Elvar Örn Svavarsson og Brynhildur Þöll Steinarsdóttir
Valdimar og Guðni hjá verkalýðsfélögunum
Stefnir í verkfallsaðgerðir
„Það er staðan sem blasir við
í dag, að verði farið í verkfalls-
aðgerðir. Ég held að fólk sé til-
búið í það núna, að mælirinn sé
fullur. Fólk er orðið langþreytt á
því að taka á sig allar byrgðar
þjóðfélagsins til að halda stöð-
ugleikanum, en fær síðan ekki
að njóta þess þegar vel gengur”,
segir Valdimar Guðmannsson
formaður Verkalýðsfélagsins
Samstöðu í Húnavatnssýslu, en
Valdimar á sæti í aðgerðamefnd
Verkamannasambands íslands
og Landssambands iðnverka-
fólks, sem hefur hvatt aðildarfé-
lög til að undirbúa verkfallsað-
gerðir.
í tilkynningu aðgerðamefnd-
arinnar segir að vegna nei-
kvæðra viðbragða atvinnurek-
enda við sanngjömum kröfum
VMSÍ og Li og viðræðuslitum í
framhaldi af því, telji aðgerðar-
nefnd óhjákvæmilegt að aðild-
arfélögin boði til aðgerða til að
knýja atvinnurekendur til alvöru
viðræðna um framlagðar kröfur.
Aðgerðamefndin leggur til að
aðildarfélögin setji í atkvæða-
greiðslu tillögu um boðun víð-
tæks allsherjar verkfalls sem nái
til allra sem starfa eftir aðal-
kjarasamningum þeim sem
samninganefnd Verkamanna-
sambands íslands og Lands-
sambands iðnverkafólks hefur
samningsumboð fyrir. Tillagan
geri ráð fyrir að verkfallið hefjist
á miðnætti aðfaranótt fimmtu-
dagsins 30. mars nk. og standi ó-
tímabundið. Atkvæði verði tal-
in í öllum aðildarfélögum sam-
bandanna samtímis, þriðjudag-
inn 21. mars og boðun send öll-
um viðkomandi aðilum fyrir kl.
16 miðvikudaginn 22. mars.”
Valdimar segir að á næstu
dögumverði sendir kjörseðlar í
pósti til félagsmanna verkalýðs-
félaganna á Norðurlandi og
með þeim hætti sé vonast til að
víðtæk þátttaka verkafólks náist.
Kröfumar sem VMSI og Li ger-
ir er um 110 þúsund króna lág-
markslaun á mánuði.
Guðni Kristjánsson hjá
Verkalýðsfélaginu Fram á
Sauðárkróki tók í sama streng
að fólk væri tilbúið til verkfalls-
aðgerða. Guðni sagði samn-
inganefnd Fram og Öldunnar
komi saman til fundar í
Ströndinni á fimmtudagskvöld
kl. 20, og þar yrði ákveðið um
framhaldið. Hann ætti ekki von
á öðru en farið yrði að tilmælum
aðgerðanefndarinnar og póst-
atkvæðagreiðsla fari fram.
Slæmt útlit með
grásleppuveiðina
,,I>etta er mjög óljóst meðan
menn vita ekkert hvað fæst
fyrir tunnuna og ég held að sé
alveg víst að menn er lítið
spenntir fyrir veiðunum ef
verðið lækkar enn frá því í
fyrra. Mér sýnist að útlitið með
grásleppuvertíðina hafi ekki
verið svona slæmt mörg síð-
ustu árin”, segir Steinn Rögn-
valdsson bóndi og grásleppu-
veiðimaður á Hrauni á Skaga,
en nú styttist í að veiðar á grá-
sleppu megi heíjast. Það hefur
venjulega verið um 20. mars
hér fyrir norðan.
Steinn sagði að verksmiðj-
umar héma vildu kaupa hrogn en
ekki væri búið að fá fast verð
fyrir eina einustu tunnu og menn
vildu ógjaman byrja veiðar fyrr
en það væri komið á hreint. Ann-
ars munu birgðir vera miklar á
markaðnum eftir gífurlega veiði
Kanadamanna á síðustu vertíð.
Þeir veiddu 17.700 tunnur á
þremur vikum og þrátt fyrir að
kvótinn hafi verið miðaður við
50 net á bát. Þá hafa Grænlend-
ingar komið inn á markaðinn
síðustu árin með um 3000 tunna
ársveiði, en þeir segjast ætla að
halda sér við það magn þrátt fyr-
ir að geta veitt mun meira og
hættu m.a. veiði í fyrra í bullandi
fiskiríi.
Verð á grásleppuhrognum
lækkaði mjög í fyrra. Þá fengust
41 þúsund fyrir tunnuna framan
af vertíð og fyrir útflutninginn.
Eftir 20. apríl féll verðið hins
vegar niður í 38 þúsund fyrir
tunnuna hér innanlands. Grá-
sleppuveiðimenn óttast að verð-
ið lækki enn frekar nú í ár og
heyrst hafa tölur niður í 22.500
kr. fyrir tunnuna, en Steinn á
Hrauni telur að þar miði menn
við verð sem hrogn frá Kanada
vom keypt á síðasta vor.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra
Fundar í heimsókn
sinni í kjördæmið
Sjávarútvegsráðherra Ámi
M. Mathiesen heimsækir sjáv-
arútvegsfyrirtæki á Norður-
landi vestra í dag miðvikudag-
inn 8. mars og á morgun,
fimmtudaginn 9. mars. Heim-
sóknin er sú sjöunda í röð
heimsókna ráðherrans í kjör-
dæmin frá því hann tók við
embætti á liðnu vori.
Ami mun heimsækja Fisk-
iðjuna Skagfirðing á Sauðár-
króki og fleiri fyrirtæki þar í bæ
og halda almennan fund um
sjávarútvegsmál í hádeginu á
Kaffi Krók. Eftir hádegi heldur
ráðhenann til Siglufjarðar og
heimsækir Þormóð ramma/Sæ-
berg og SR-mjöl. Síðar um
daginn mun hann sitja fund
með bæjarstjóminni á Siglu-
firði. Um kvöldið er boðað til
almenns fundar um sjávarút-
vegsmál með Siglfirðingum og
nærsveitamönnum og hefst
hann kl. 20 á Hótel Læk.
A fimmtudeginum heim-
sækir Ámi Skagstrending o.fl.
fyrirtæki á Skagaströnd auk
þess sem hann fer í sjávarút-
vegsfyrirtæki á Blönduósi.og á
Hvammstanga.
(CS>) TOYOTA
yy - tákn um gæöi
<3§>
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynlr!
...bílar, tryggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
támarit, ljósritun,
gjafavaja...
BÓKABtJÐ
BRYTTJABS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 433 3950
Kodak Pictures