Feykir - 12.07.2000, Side 2
2 FEYKIR 24/2000
„Hdtuf einlivcr álirif á
húsnæðismarkaðinn"
segir sveitarstjóri um flutning Byggðastofnunar
„Það er alveg ljóst að flutn-
ingur Byggðastofnunar hefur
einhver áhrif á byggingarmark-
aðinn, hversu mikil sem þau
verða. Það er hið besta mál og
bara vonandi að byggingaverk-
takar sjái sér hag í því að not-
færa sér þennan meðbyr og ráð-
ast í framkvæmdir”, segir Snorri
Björn Sigurðsson sveitarstjóri.
Snorri Bjöm segir að sveitar-
félagið Skagafjörður sé tilbúið
að víkja með sína starfsemi úr
Stjómsýsluhúsinu, en nokkuð
Ijóst er að Byggðstofnun kemur
til með að þurfa megnið af rým-
inu í Stjómsýsluhúsinu, en
stofnunin á þriðjung í þessu
húsi, og spurning hvort hún
komi til með að kaupa húsið og
þannig muni sveitarfélagið losa
um fjármuni. Einn þeirra aðila
sem er með hvað stærsta rýmið í
húsinu er Héraðsdómur Norður-
lands vestra og einnig er spurs-
mál um hvort dómurinn verði til
frambúðar í þessu húsnæði.
Sýnt er að skrifstofurými er
að verða af skornum skamti á
Sauðárkróki. Trésmiðjan Eik
sótti nýlega um lóð við Faxatorg
undir skrifstofuhúsnæði allt að
3000 fermetrum á þremur hæð-
um. Forsvarsmenn Eikar hafa
lítið viljað tjá sig um þessi bygg-
ingaráform, en það hefur þó
fregnast að þetta hafi lengi verið
í bígerð og í slagtogi með Eik-
inni séu aðilar sem gjaman vilja
koma með starfsemi í bæinn,
þannig að þetta rými sé þegar að
mestu leyti lofað, og áformin
hafi verið komin til löngu áður
en ákveðið var að flytja Byggða-
stofnun í bæinn, og þau séu því í
engum tengslum við þær fregn-
ir.
A fundi sveitarstjómar á dög-
unum var umsókn og áformum
Eikar fagnað, m.a. af Stefáni
Guðmundssyni formanni um-
hverfis- og byggingamefndar.
Sveitarstjórn Skagafjarðar
Vill auka umferðar-
Leikskólabörnin mættu til að syngja og þiggja blöðrur og veifur.
Búnaðarbankinn 70 ára
Líflegt var hjá Búnaðar-
bankanum 30. júní sl. en þá
var haldið upp á 70 ára
afmæli bankans sem var
daginn eftir. Boðið var upp á
söng og tónlist og kaffi og
kökur í útibúinu á Sauðár-
króki og var afargestkvæmt
þennan dag í bankanum.
Friðrik A. Jónsson, sem
nánast er jafngamall bank-
anum, á tali við Stefán
Guðmundsson.
eftirlit í héraðinu
„Neyðarlegt en ekkert áfall"
segir Egill Þórarinsson sem lætur vel af Landsmóti hestamanna
Rætt hefur verið í sveitar-
stjórn Skagafjarðar um
nauðsyn þess að sækja á um
aukið fjármagn til löggæslu í
héraðinu, þannig að unnt
verði að herða eftirlit með um-
ferð á vegum. Sveitarstjóm
Skagafjarðar óar við hinni
hröðu umferð á vegum í hér-
aðinu og fram kom í umræð-
unum að menn töldu að það
stafaði m.a. af því að lögregla
sæist þar afarsjaldan við eft-
irlit, s.s. í samanburði við
Húnavatnssýslurnar, enda
virtist sem að menn „gæfu f ’
eftir að þeir væru komir þar í
gegn.
Þessi umræða í sveitar-
stjóminni kom til vegna þeirr-
ar ákvörðunar að beina umferð
til og frá leikskólanum í
Varmahlíð, í gegnum hverfið í
áttina að félagsheimilinu, frek-
ar en út á Þjóðveg 1, vegna
mikillar slysahættu. í þessu
sambandi var vikið að tíðni al-
varlegra slysa sem orðið hafa í
Skagafirði á síðustu misserum,
og oft eru þessi slys rakin til
hraðrar umferðar.
Umferð í gegnum Varma-
hlíð var m.a rædd á fundinum
og var rætt um að endurskoða
yrði umferðarskipulag í
Varmahlíð í þeim tilgangi að
draga úr hraða umferðar þar í
gegn og sporna gegn slysum.
Fundarmenn vom á einu máli
um að óska eftir viðræðum
við Vegagerðina um þetta mál.
„Þetta var náttúrlega hálf-
neyðarlegt, maður búinn að
fagna sigri en detta svo niður í
annað sæti. En þetta var í fjarri
lagi eitthvað áfall fyrir mig, og
það gekk mjög vel á þessu
landsmóti. Landsmótið var frá-
bært bæði fyrir keppendur, hross
og áhorfendur. Aðstaðan alveg
til fyrirmyndar og vel að öllu
staðið”, segir Egill Þórarinsson
en hann varð í öðru sæti í tölt-
keppninni á Blæju frá Hólum og
munaði þar einhverju örlitlu að
þau héldi fyrsta sætinu sem búið
var að úthluta þeim. í sárabót
fékk Egill utanlandsferð fyrir sig
og frúna.
Aðspurður sagði Egill að í
heild hefði útkonian fyrir Skag-
firðinga á mótinu ekki verið
nógu góð, og það væri því
greinilegt að kominn væri tími
til að byggja reiðhöll og bæta að-
stöðuna til að þjálfa hrossin.
„Hrossin eru alltaf að batna. Það
dugði ekki fyrir þig að vera með
góð hross á þessu móti, þau
þurftu að vera frábær til að ár-
angur næðist’’, sagði Egill.
Hólamerarnar gerðu það
mjög gott á þessu móti, en þær
voru m.a. sýndar með afkvæm-
um Kolfinns frá Kjamholtum og
vöktu mikla athygli. Þrá frá Hól-
um stóð efst í flokki heið-
ursverðlaunahryssna. í flokki 7
vetra og eldri stóð efst Þula frá
Hólum og Þilja varð í 4. sæti. í
öðru sæti í þessum flokki var
Þruma frá Þóreyjamúpi í Húna-
þingi vestra. I flokki 4 vetra
hryssna varð Þeysa frá Hólum í
fjórða sæti.
Glampi frá Vatnsleysu varð í
þriðja sæti í b-flokki gæðinga, en
af gæðingunum vakti mesta at-
hygli eins og búist var við, Orri
frá Þúfu, Otrasonur frá Sauðár-
króki, sem sýndur var með 10
afkvæmum. Sem fyrr var mikið
af hrossum á mótinu sem sækja
gen í ræktun Sveins og Guð-
mundar sonar hans og sagði Eg-
ill að svo yrði um ókomna tíð,
hestar þeirra hefðu verið svo
sterkir í ræktuninni í mörg ár.
Þá má geta þess að einn
þeirra knapa sem vakti .hvað
mesta athygli á mótinu var
Þórarinn Eymundarson ffá Saurbæ,
sem stóð sig með glæsibrag.
Skagflrsk sveifla
Skagfirskir skemmtikraftar
settu mikinn svip á landsmótið.
Alftagerðisbræður sungu á
kvöldvökum á Víðivöllum og
héldu þar uppi fjöldasöng, og
stemmningin þar var víst mögn-
uð. Hljómsveit Geirmundar hélt
svo uppi stuðinu á böllunum í
reiðhöllinni. Talið er að þar hafi
dansað um 2000 manns á föstu-
dagskvöldið og um 6000 á laug-
ardagskvöldinu.
„Þetta var ægilegt stuð alveg
og það jafnast ekkert á við það
að spila á böllum hjá hesta-
mönnunum. Það myndast svo
mikil samkennd og skemmtileg-
heit hjá þeim að fjörið er alveg
ógurlegt. Þó það hafi verið
margt þama þá hugsa ég að það
hafi verið svipaður fjöldi á loka-
kvöldinu á Melgerismelum í
hitteðfyrra og á Hellu ‘94, en
maður er búinn að spila á þess-
um landsmótum síðustu tíu
árin”, sagði Geirmundur.
Feykir kemur út í næstu viku!
Af sérstökum ástæðum í prentsmiðju varð að breyta út
af hálfsmánaðar útgáfu. Feykir kemur því út í næstu
viku og síðan aftur að þrem vikum liðnum þaðan í frá.
Næsta blað kemur út 19. júlí.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.