Feykir - 12.07.2000, Qupperneq 3
24/2000 FEYKIR 3
Þjóðhátíðarstemming
á Utah-degi á Hofeósi
þegar Frændgarður var tekinn í notkun
Stvttíin af Þorfinni karlsefni tekur sig vel út á hæðinni ofan Frændgarðs.
Það var þjóðhátíðarstemmning
á Hofsósi mánudaginn 3. júlí
þegar Frændgarður nýtt hús
við Vesturfarasetrið á Sandin-
um var formlega tekið í notkun
með opnun sýningarinnar
„Fyrirheitna landið” er fjallar
um för íslensku monnónanna
og fmmbýlingsárin í Utah, erf-
iðri för yfir sjó og lönd, og eins
og Olafur Ragnar Grímsson
forseti lýsti landnámi þeirra í
Spánska forki í Utah. þá grófu
þeir holur eða hella í fjöllunum
fyrir ofan þorpið og bjuggu þar
við erfið skilyrði. Það var ekki
fyrr en nokkru seinna að þeir
fóru að byggja sér hús og lífs-
skilyrðin bötnuðu. Fjöldi fólks
og margt fyrirmenna var við-
statt athöfnina á Hofsósi, auk
Forseta Islands ráðherrarnir
Páll Pétursson, Sturla Böðvars-
son og Valgerður Sverrisdóttir,
sendiherrahjónin í Bandaríkj-
unum Jón Baldvin Hannibals-
son og Bryndís Schram, full-
trúar Islendinafélagsins í Utah
og um 60 meðlimir mormóna-
söfnuðurins.
Fram kom við athöfnina að
það var eftir að Olafur Ragnar
Forseti Islands var viðstaddur
100. Islendingadaginn í
Spánska forki fyrir þremur
árum, sem samband komst á
milli íslendingafélagsins og
Vesturfarasetursins. I upphafi
athafnarinnar hélt Valgeir Þor-
valdsson forstöðumaður Vestur-
farasetursins ávarp, þar sem
hann líkti ræktun þessa sam-
bands og undirbúningi sýning-
arinnar við það að byggja bni á
milli þessara tveggja staða Utah
og Hofsós, og kvað Valgeir J.
Brent Hammond íslenska heið-
urskonsúlinn í Utah besta brú-
arsmið sem hann hefði kynnst.
Hammond tók síðan til máls og
lýsti því bræðralagi sem hefði
myndast milli hans og Valgeirs
við þetta verkefni.
Þá tóku einnig til máls Rolfe
Kerr forseti norðaustursvæðis
Kirkju Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu í Evrópu, David
Asby forseti Islendingafélags-
ins í Utah, Jón Baldvin sendi-
herra og Sigrún Magnúsdóttir
varaformaður borgarráðs
Reykjavíkur. Sigrún afhenti
Vesturfarasetrinu til varðveislu
í eitt ár, styttu Einars Jónssonar
af Þorfinni Karlsefni sem lengi
hefur staðið fyrir utan Hrafn-
istu. Vesturfarasetrið falaðist
eftir að fá styttuna lánaða og
hefur henni verið komið fyrir
veglega á hæð skammt ofan
Frændgarðs. Sigrún vék að því
í ávarpsorðum sínum að það
væri vel við hæfi að styttan að
Þorfinni kæmi á þennan stað
þar sem hann hefði verið frá
Hofi, og segja mætti að nú væri
öll hans fjölskylda komin í
Skagafjörðinn, en stytta af Guð-
ríði Þorbjamardóttur og Snorra
syni þeirra Þorfinns er í Glaum-
bæ.
Þá var komið að ræðu Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta og
opnun sýningarinnar. Ólafur
Ragnar sagði sýninguna um
„Fyrirheitna landið” fyrsta
framlag þjóðarinnar til að
minnast þessa kafla í þjóðar-
sögunni, sem enn væri óskráð,
þegar flokkur íslendinga flutti
vestur um haf af trúarástæðum,
og þetta fólk hafi lengi verið
gagnrýnt og fordæmt fyrir
brottförina. Það hagði því nokk-
uð sérkennilega til að nú daginn
eftir íslensku kristnitökuhátíð-
ina væri þessi athöfn hér þar
sem íslensku mormónanna væri
minnst með virðingu og reynt
að skyggnast inn í þessa merku
sögu.
Sýningin „Fyrirheitna land-
ið” er samstarfsverkefni Vestur-
farasetursins, Byggðasafns
Skagfirðinga og Islendingafé-
lagsins í Utah. Hönnuður sýn-
ingarinnar var Ámi Páll Jó-
hannsson og vann hann að upp-
setningu með Signði Sigurðar-
dóttur safnverði Byggðasafns-
ins. Það var hinsvegar Óli Jó-
hann Ásmundsson arkitekt sem
hannaði húsið Frændgarð, en
þar mun auk sýningarsalar
verða ættfræðiþjónusta, bóka-
safn og fleira.
Gestimir frá Vesturheimi
voru greinilega ntjög ánægðir
með heimsókn sína hingað, og
heyra mátti á mánudaginn að
athöfn lokinni orð eins og „ í
dag er ég bæði stoltur af því að
vera Islendingur og mormóni”.
Forseti Islands skoðar sýn-
inguna „Fyrirheitna landið“.
Sigur í gær
Það bar nýrra við hjá Tinda-
stólsmönnum þegar þeir öttu kappi
við Skallagrímsmenn í Borgamesi í
gærkveldi. Nú skoruðu Tinda-
stólsmenn en það hafði gengið illa
í t>eim sjö leikjum sem liðið var
búið að leika í deildinni. Og nú
munaði um það, fimm mörk
skoraði liðið og gjörsigraði Borg-
nesingar sem aðeins tókst að skora
úr vítaspymu undir lokin.
Tindastólsmenn vom 3:0 yfir í
hálfleik og mörk liðsins í gær
skomðu Marteinn Guðjónsson 2
og þeir Gunnar Ólafsson, Atli
Bjöm Levy og Agnar Sveinsson
gerðu sitthvort markið. Tindastóll
er nú kominn með 5 stig og er jafn
Syndra að stigum f 8.-9. sætinu.
Næsti leikur Tindastóls verður
gegn IR á Króknum á föstu-
dagskvöldið.
KS-ingar em sem fyrr í öðm
sæti 2. deildar, þrátt fyrir tap gegn
Þór0:2 í síðustu umferð. Neisti er í
öðm sæti Norðurlandsriðils 4.
deildar eftir 2:1 sigur á Hvöt á
Hofsósi sl. föstudagskvöld.
KS-bokin er með 5,50% vexti, bundin í 3 ár og verðtryggð
Ársavöxtun XI Ji3% ^
Samvinnubókiií er með lausri bindingu, nafnvextir 9,8%,
Ársávöxtun 10,04% >
m Innlánsdeild -I
' a
MFM' ' ^ Æ :;'"W jSH jmk
W 1 tTÆ W Í ■> !' \ -Á 'MtJsr f/,
1 s ■ - i >- ( ’-t- *■*%&*-• ■.