Feykir - 06.09.2000, Qupperneq 8
1
KJORBOK
s
Vinsælasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
íslands
____ í forystu til framtfðar '
Útibúið á Sauðárkrókí - S: 453 535j .
ki 4
Sjúkraliðanám í fjarkcmislu
Yiðheldur það nýliðun í greininni?
Á Blönduósi er mikill
áhugi á að koma á sjúkraliða-
námi í fjarkennslu. En hvaða
þýðingu hefur það fyrir fá-
menn byggðarlög að geta boðið
upp á slíkt nám?
Kristjana Amardóttir, hjúkr-
unarforstjóri Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Blönduósi, segir að
slíkt námsfyrirkomulag breyti
öllu fyrir þær konur sem hafa á-
huga á sjúkraliðanámi, þær geti
þá öðlast þessi starfsréttindi
heima í héraði en fæstar eigi
þess kost að fara að heiman í
nám vegna heimila og bama.
Kristjana segir að ellefu starfs-
stúlkur stofnunarinnar hafi sýnt
áhuga á að fara í sjúkraliðanám.
Kristjana var spurð hvernig
námskeið fyrir ófaglært starfs-
fólk hefði nýst hennar starfs-
fólki. Hún sagði að hún hefði
engar tölur eða mælingar hand-
bæraren reynslan sýndi að auk-
in menntun og þar með innsýn
starfsmanna í fagið kæmi fram
í ánægðari starfsmönnum.
Ymsar rannsóknir og kannanir
hafa sýnt fram á aukna starfs-
ánægju og starfsöryggi sem
menntun veitir.
Hver er ávinningurinn fyrir
atvinnurekendur að hafa betur
menntað starfsfólk? Kristjana
segir að þá sé atvinnurekandinn
kominn með stærri faglega
menntaðan hóp, með þeim
kostum sem aukin menntun
gefur, meiri þjónustugæði fyrir
stofnunina og skilvirkara starf.
þó svo að launakostnaður verði
eitthvað meiri.
Kristjana sagði að nú væri
komin fram reglugerð frá heil-
brigðisráðuneytinu um gæða-á-
ætlun á heilbrigðisstofnunum. í
haust væri að fara af stað
stefnumótunarvinna hjá yfir-
stjómendum heilbrigðisstofn-
unarinnar á Blönduósi í tengsl-
um við hana og með aukinni
menntun hefðu konumar meiri
innsýn í slíka vinnu þegar fram
í sækir.
En hver er munurinn á verk-
sviði sjúkraliða og ófaglærðs
starfsfólks? Kristjana sagði að
sjúkraliðar og ófaglært starfs-
fólk ynnu að miklu leyti sömu
Kristjana Arnardóttir.
störfm en fleiri sjúkraliðar
myndu létta störf hjúkrunar-
fræðinga, þar sem þær mega
bera meiri ábyrgð en ófaglært
starfsfólk. Hjúkrunarfræðingar
hafa miklar áhyggjur af fækkun
sjúkraliða og lítilli nýliðun í
greininni og til að sporna við
þessari þróun á landsbyggðinni
þarf að koma til fjarkennsla í
sjúkraliðanámi þar sem konur
yfirgefa ekki svo auðveldlega
heimili og böm og fara annað í
nám.
Kristjana sagði að stofnunin
væri tilbúin að hliðra til vinnu-
tíma starfsfólksins eins og hægt
væri til þess að það gæti stund-
að nám jafnhliða vinnunni.
Hún sagði að fjarfundabúnaður
yrði settur upp í haust á stofnun-
inni sem myndi auðvelda sam-
hæfingu náms og vinnu nem-
endanna.
Kristjana sagðist vera mjög
ánægð með námskeiðin sem
Farskólinn hefur skipulagt fyr-
ir ófaglært starfsfólk og hún
vonaðist eftir að minnsta kosti
5-6 starfsstúlkur frá stofnuninni
fæm í sjúkraliðanámið ef það
kæmist á.
Kristjana segir að lokum að
það sé sameiginlegt markmið
þeirra allra sem sinna störfum á
Heilbrigðisstofnuninni á Blöndu-
ósi að veita skjólstæðingum sín-
um þá bestu og faglegustu um-
önnun sem völ sé á hverju sinni.
Námskeiðin skerpa á ýmsu
En hvað segja ófaglærðu
starfsmennimir um þetta?
Sigríður Grímsdóttir, starfs-
stúlka, hefur unnið í tæp 19 ár á
stofnuninni við umönnun aldr-
aðra. Hún hefur sótt öll þrjú
námskeið Farskólans fyrir ó-
faglært starfsfólk og segir hún
að hærri laun að loknu nám-
skeiði sé megin kveikjan að því
að sækja slík námskeið. Þau
hafi verið vel skipulögð og mið-
uð að starfi stofnunarinnar,
komið inn á dagleg störf þeirra
og nýtist fieim því vel í starfi. Á
námskeiðunum hafi verið
skerpt á ýmsu sem þær vinni
við daglega og séu oft orðnar
mjög “samdauna” starfinu.
Einnig hafi þær lært ýmislegt
um einstaka öldrunarsjúkdóma
sem hafi verið mjög gott og
hægt að tengja þeim einstak-
lingnum sem annast þarf um.
Sigríður segir að námskeið-
in vekji upp umræður um starf-
ið meðán á þeim standi og fyrst
á eftir en síðan fjari umræðan
Framhaldsnám fullorðinna
við Fjölbrautaskólann
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á
Sauðárkróki hefúr ætíð þjónað fullorðnu fólki
sem hefur viljað niennta sig meira. Hér áður
var starfandi kvöldskóli á vegum skólans og
síðar átti skólinn mikinn þátt í stofnun Far-
skóla Norðurlands vestra. Samstarf Fjöl-
brautaskólans og Farskólans er mikið.
Undanfarin ár hefur það aukist umtalsvert að
fullorðið fólk stundi almennt framhaldsnám í
dagskóla við Fjölbrautaskólann en einnig
stunda margir utanskólanám. Eindreginn vilji
er meðal stjómenda skólanna að mæta betur
þörfum þeirra sem búsettir eru utan næsta ná-
grennis Fjölbrautaskólans. Dæmi um það er
námsaðstoð fyrir utanskólanemendur við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra sem skólinn, á-
samt Farskólanum, hefur í hyggju að bjóða
fram í gegnum fjarfundabúnað.. Það er nýmæli
í kennsluháttum sem ekki hefur verið reynt ann-
ars staðar og verður athyglisvert að sjá hvort á-
hugi reynist fyrir þessari þjónustu. Um næstu
áramót er ráðgert að bjóða fram nám í öldunga-
deild á formi fjarkennslu með myndfundabún-
aði. Einnig vinnur skólinn að þvíað bjóða fram
sjúkraliðanám og er áætlað að það hefjist um
næstu áramót.
Öflug námsráðgjöf er í skólanum og er öll-
um sem áhuga hafa á námi bent á að hafa sam-
band við Ingileif Oddsdóttur, námsráðgjafa.
Ársæll Guðmundsson skólameistari.
...bflar, tiyggngaæ,
bækur, rltföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABtJÐ
BRYBJABS
SUÐOBGÖTD 1 StMI 453 5950
Kodak Pictures
Sigrún Grímsdóttir.
smám saman út. Námsefnið
rifjist þó upp við dagleg störf.
Sigríður segir að margar frá
stofnuninni hafi sótt þessi nám-
skeið en hún ekki merkt að
vinnuandi hafi eitthvað breyst.
Samskiptin hafi alltaf verið
mjög góð í vinnunni þrátt fyrir
mikið vinnuálag. Hún segir að
undirmönnuð störf leiði af sér
þreytu, leiðindi og veikindi sem
sé ekki gott. Námskeiðin veiti
meira starfsöryggi og mjög gott
að geta sótt þau í heimabyggð
sinni meðfram því að stunda
vinnu sína.
En telur Sigríður að nám-
skeiðin séu kveikjan að óskinni
um sjúkraliðanám? Hún telur
fyrst og fremst að það sé launa-
munurinn. Sjúkraliðar og starfs-
stúlkur vinni sömu störfin, beri
oftast sömu ábyrgð en sjúkra-
liðamir hafi hæiri laun. Þeir búi
lika við meira starfsöryggi. En
námskeiðin hafi örugglega auk-
ið sjálfstraust margra þeirra til
frekara náms.
Sigríður segir að hún sjálf
treysti sér ekki til þess að fara í
sjúkraliðanám því hún sé í fullri
vinnu og að þurfa að sinna námi
líka finnist henni of mikil vinna.
En mikilvægt sé að koma á
sjúkraliðanámi, í fjarkennslu,
þannig að áhugasamir geti
stundað það í heimabyggð sinni,
því það leggja það fáir á sig ef
fara þarf burtu um lengri tíma.
Bjarnheiður Jóhannsdóttir,
jafnréttisráðgjafi Norðurl. vestra.
Bylgja Björnsdóttir, verkefna-
stjóri Farskóla Noiðurlands vestra.