Feykir - 20.09.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 31/2000
Frá setningu haustþings Kennarasambands Norðurlands vestra.
Kennarar kynntu sér ýmsa
hluti á fjölmennu haustþingi
Haustþing Kennarasambands
Norðurlands vestra var haldið á
Sauðárkróki sl. föstudag. Um
160 staifandi kennarar á svæð-
inu mættu á þingið, en þar voru
flutt ein 13 erindi og kynningar
um hin ýmsu efni, sem kennam-
ir gátu valið úr. Síðdegis var svo
haldinn aðalfundur samtakanna
og þingið endaði síðan með árs-
hátíð Kennarasambands Norður-
lands vestra og var hún haldin í
Bifröst.
Fráfarandi formaður kenn-
arasambansins Unnur Kristjáns-
dóttir á Blönduósi setti þingið að
morgni föstudags og síðan flutti
Jón Onnar Ormsson rithöfúndur
stutta kynningu á Sauðárkróki
og smá sögubrot frá Króknum.
Aðalerindi þingins fjallaði um
kenningar fræðimannsins enska
Hovvard Gardner og gerðu þeim
skil Erla Kristjánsdóttir lektor
við Háskóla íslands og Ester A-
gústsdóttir frönskukennari við
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra. Þingfulltrúar heimsóttu
Náttúrustofu Norðurlands
vestra, kynntist því hvemig sjáv-
arleður er unnið, fóm í slökun í
jóga, kíktu á nýjustu stærðfræði-
forritin, hlýddu á fyrirlestur um
bamavemd og ýmislegt fleira.
Að mati Ragnheiðar Matthí-
asdóttur kennara við Arskóla ný-
kjörins formanns Kennarasam-
bands Norðurlands vestra, var
þingið mjög vel heppnað að
mörgu leyti og ánægjulegt. Eitt
af þeim verkefnum sem fyrir
liggur er að gera úttekt á hlutfalli
réttindakennara á svæðinu. Að
sögn Rúnars Vífilssonar á skóla-
skrifstofu Skagafjarðar er það
misjafnt í héraðinu, hefur batnað
á Sauðárkróki og Hólum en
versnað á Hofsósi. þar sem að
tveir réttindakennarar hurfu á
braut og ekki tókst að ráða nýja
á staðinn. A Blönduósi mun
hlutfall réttindakennara hafa
aukist, en ástandið er einnig
misjafnt í Húnaþingi.
»
Guðmundur Örn Ingólfsson hjá Máka kynnir stöðina á Lambanesreykjuni fyrir gestum
og fjárfestum í tenglum við aðalfund Máka.
Endurbótum lokið
á Goðdalakirkju
Við messu í Goðdalakirkju
sunnudaginn 27. ágúst var
kirkjan tekin í notkun að nýju
eftir málningu og ýmsar
endurbætur. Kirkjan var máluð
að innan og einnig altari,
pródikunarstóll, grátur og
kirkjubekkir, einnig vom setur
endumýjaðar á bekkina og
áklæði. Málari var Snorri
Guðvarðarson frá Akureyri.
Með þessum fram-
kvæmdum lauk þeim lagfærum
sem gerðar voru á kirkjunni
árið 1994, en þá var hún færð á
nýjan gmnn og endurbyggð að
mestu leyti. Einnig var þá
kirkjugarðurinn stækkaður til
austurs og hlaðinn nýr garður
umhverfis kirkjuna. Við
messuna 27. ágúst vom meðal
kirkjugesta systkinin frá Giljum
ásamt föður sínum Jóhanni G.
Jóhannsyni sem varð áttræður
þann dag. í tilefni dagsins
færðu þau kirkjunni að gjöf
útvarpssendi til notkunar við
jarðarfarir og fjölmennar
athafnir. Gjöfin ertil minningar
um Ingibjörgu Gísladóttur
móður Giljabamanna og konu
Jóhanns og Hjörvar Jóhanns-
son sem lést í ársbyrjun 1999.
Að messu lokinni buðu þau
Hólmfríður og Gísli í Bjarna-
staðarhlíð öllum kirkjugestum
til kaffidrykkju.
Bjartsýni á aðalfundi Máka
Verðmætasköpun til
jafns við frystiskip
Það var síður en svo svart-
sýnistónn í mönnum á aðalfundi
Máka sem haldinn var á
Lambanesreykjum fimmtu-
daginn 10. ágúst sl. Haraldur J.
Haraldsson stjórnarformaður
félagsins benti á þá staðreynd að
miðað við 600 króna skilaverð á
kíló, sem talið er varlega áætlað,
verði framleiðsluverðmæti
fyrirtækisins miðað við 1000
tonna ársframleiðslu 600 millj-
ónir króna, sem sé svipað og
fyrstitogari skili. Þau skip kosti
mun meira en þær 180 milljónir
sem lagðar hafi verið í Máka, og
fyrirtækið hafi sérstöðu meðal
íslenskra iyrirtækja að það hafi
einvörðungu verið byggt upp
fyrir eigið fé.
Að aðalfundi loknum kom í
heimsókn hópur manna, ráð-
herra, vísindamenn og fjárfestar.
Þeim var sýnd stöðin og þau
skilyrði sem sköpuð hafa verið
fyrir eldið á Lamdbanesreykjum
og kynnt framtíðaráform. Að
lokum var síðan á boðstólum
barri og voru menn á einu máli
um að fiskurinn væri mjög
góður, en bragðið þykir bæði
sérstætt og Ijúffengt.
Á aðalfundinum var sam-
þykkt að auka hlutafé Máka um
40 milljónir króna og verður það
þó um 180 milljónir. Um ár er
síðan hafist var handa við að
breyta eldisstöðinni á Lambanes-
reykjum fyrir barraeldið, og m.a.
byggt um 300 fermetra hús undir
endumýtingarkerfi og sjótöku.
I tilkynningu frá Máka segir
að með kaupum á Miklalax-
stöðinni setti félagið sér það
markmið að hefja eldi í stórum
stfi, eða 700-1000 tonna árs-
framleiðslu. Til að svo mætti
verða þurfti að þróa nýjar
aðferðir til að nýta stóru eldis-
einingarnar á Hraunum, Máki
m. Samhliða uppbyggingunni í
Máka III var unnið að umsókn
til ESB um nýtt nýsköp-
unarverkefni. Verkefnið Mistral-
Mar var samþykkt á síðasta ári
og styrkupphæð 1,2 milljónir
Evrur auk stuðningsverkefnis
sem er alfarið styrkt af ESB.
Vinna að undirbúningi og
hönnun á þessum nýja áfanga er
nú í fullum gangi. Aætlað er að
frumáætlanir verði tilbúnar í
október og að frágengin gögn til
útboðs verði tilbúin í lok árs.
Áætlað er að framkvæmdir
hefjist vorið 2001.
„Starfsemi Máka flokkast
undir hátækni og er fyrirtækið
leiðandi á sínu sviði í heiminum.
Framtíðarmarkmið fyrirtækisins
er að framleiða árlega 700 -
1000 tonn af 500-1000 gr. barra.
Einnig er verið að skoða
möguleika á því að laga kerfið
að öðrum tegundum. Sala
þekkingar er krafa til þeirra
fyrirtækja sem njóta styrks frá
ESB og er unnið að gerð við-
skiptasamninga, og einkaleyfi á
þeirri tækni sem Máki hefur yfir
að ráða er til skoðunar", segir
einnig í tilkynningunni.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Mvndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
fevkir @ kmkur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaiitari: Örn Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guöbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.