Feykir - 25.04.2001, Qupperneq 4
4 FEYKIR 15/2001
Fj ölbreyttur söngur við sumarmál
Kirkjukór Blönduós var með gott innlegg á söng-
skemmtunina.
Það var góð stund sem fjöl-
margir áheyrendur áttu í félags-
heimilinu á Blönduósi sl. laug-
ardagskvöld á sönskemmtun-
inni „Söngur um sumarmál”,
en hún er að verða árlegur við-
burður á Húnavökunni. Að
þessu sinni sungu fjórir kórar,
heimakóramir Kikjukór
Blönduóss og Karlakór Ból-
staðahlíðarhrepps, söngvinir úr
Skagafirði; Rökkurkórinn og
gestakór að þessu sinni lengra
að kominn var Samkór Vopna-
fjarðar. Að öðrum kórum ólöst-
uðum voru það Vopnfirðing-
arnir sem virkilega voru
skemmtilegir og söngur kórs-
ins og undirleikur mjög hríf-
andi.
Það var Kirkjukór Blöndu-
óss sem reið á vaðið og söng
nokkur lög við undirleik og
stjórn Sólveigar S. Einarsdótt-
ur. Framlag kirkjukórsins til
samkomunnar var mjög gott,
söngurinn hreint með ágæturn
og kórinn með mjög falleg lög,
smekklegt lagaval og var sér-
lega gaman að hlýða á einsöng
Arndísar Ólafar Víkingsdóttur
í laginu „Upp á hæð skín við
oss” við Ijóð Davíðs Stefáns-
dóttir. Þá flutti kórinn nýjan
texta eftir Hjálmar Jónsson
dómkirkjuprest, þar sem hann
lætur ljóslega hugann reika til
Leikfélag Sauðárkróks sýnir
eftir Moliére í leikstjórn Eggerts Kaaber
fek í Bifröst
LEIKFÉLAG SAUÐÁRKRÓKS
Frumsýning sunnudag 29. apríl kl 21:0
| 2. sýning þriðjudag 1. maí kl. 20:30
3. sýning fimmtudag 3. maí kl. 20:30
4. sýning laugardag 5. maí kl. 16:00
Miðapantanir í síma 453-5825 Alla daga frá kl. 17:00 - 19:00
írá og með föstudeginum 27. apríl og laugardaginn 5. maí kl. 12:00
Samkór Vopnafjarðar vakti mikla hrifningu tónleika-
gesta, greinilega mjög vel þjálfaður kór.
Rökkurkórnum tókst vel upp í líflegu og góðu prófgrammi.
starfa sinna fyrir norðan. Sól-
veig stjómandi útsetti við lag
Gabríels. Sólveig er greinilega
ntjög góður stjómandi og er lif-
leg og skemmtileg í sinni
stjórn. Sem sagt frábært hjá
Kirkjukór Blönduóss og trú-
lega hefði það orðið ennþá
betra ef Hugrún Sif Hallgríms-
dóttir hefði getað leikið undir
tvö laganna á þveiflautuna, eins
og til stóð, en veikindi settu strik
í reikninginn, einnig hjá Grími
Gísla elsta söngmanni kórsins.
Rökkurkórinn söng næst
undir stjórn Sveins Ámasonar.
Kórnum tókst mjög vel upp í
líflegu og góðu prófgrammi og
var flutningurinn yfir það heila
mun ömggari en á söng-
skemmtun kórsins „Sálarinnar
sælustundum” nýlega. Rökkur-
kórinn hefur greinilega yfir
góðu söngfólki að skipa, sem
sýndi sig í aukalagi sem kórinn
flutti og er víst nýbyrjaður að
æfa, en tókst engu að síður vel.
Einsöngur þeirra Hjalta Jó-
hannssonar og Gerðar Geirs-
dóttur var með ágætum, en
Gerður söng einsöng í lagi
Jóns Björnssonar „Vornótt í
Skagafirði”.
Það eru slavnesk hjón sem
annast stjóm og undirleik hjá
Samkór Vópnafjarðar. Stjórn-
andinn Zbiegnew Zukohwies
útsetur nokkur laga kórsins og
eins og áður segir var söngur
kórsins mjög svo áheyrilegur
og skemmtilegur og lagavalið
fjölbreytt, m.a. bítlalagið
Michelle og lokalag kórsins
var negrasálmur, fluttur af
miklum krafti.
Karlakór Bólstaðahlíðar-
hrepps söng síðastur kóranna
og þessi næstelsti karlakór
landsins ber aldurinn vel og
stendur vel fyrir sínu. Stjóm-
andi Sveinn Ánason og undir-
leikari með kómum er Soffla
Fransiska Rafnsdóttir. Þekkt
lög piýddu söngskrá kórsins.
Eins og á afmælinu á liðnu
hausti söng Svavar Jóhannsson
einsöng í Álftimar kvaka og
þeir söngbræður Þorleifúr
Ingvarsson og Halldór Marías-
son „Rósina”. Þá söng Guð-
mundur R. Halldórsson ein-
söng í „Ævi hallar” við ljóð
Magnúsar Gíslasonar. Bólhlíð-
ingamir voru klappaðir vel upp
eins og hinir kóramir og sungu
tvö aukalög.
Það var Magnús Jónsson
sveitarstjóri á Skagaströnd sem
var kynnir á söngskemmtun-
inni og kom með mörg
skemmtileg innskot. Að söng-
skemmtun lokinni þáðu kór-
amir kaffi í hliðarsal, en dans
var stiginn fram eftir nóttu við
undirleik akureyskrar hljóm-
sveitar.