Feykir - 12.12.2001, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Blönduósingar
vilja menningarhús
Jólaverslunin er komin á fullt. Bæði barnakór Árskóla og Álftagerðisbræður sungu fyrir
viðskiptavini Skagfirðingabúðar á Sauðárkróki sl. laugardag.
Dræmar heimtur í Fljótum
Umræðan um menningarhús
á Norðurlandi vestra hefur
skotið upp kollinum að nýja,
eftir lítinn þrýsting Skagfirð-
inga á það mál að undan-
tórnu, en upphaflega var
Sauðákrókur nefndur sem
staður fyrir menningarhús á
Norðurlandi vestra. Nú eru
það Blönduósingar, nánar til-
tekið atvinnumálanefnd
Blönduóss með Valdimar
Guðmannsson í broddi fylk-
ingar, sem hefur fullan hug á
því að leita eftir því við
menntamálaráðuneytið og
Byggðastofnun að félags-
heimilið á Blönduósi verði
gert að menningarhúsi, en í
tillögu Valdimars felst að fé-
lagsheimilinu verði breytt í
hótel-, veitinga- og menning-
arhús líkt og á Húsavík.
„Við eigum mjög öflugt fé-
lagsheimili sem með litlum
breytingum gæti orðið gott
menningarhús”, segir Valdimar.
Tillagan í atvinnumálanefiid-
inni er sett fram í ljósi hótel-
málanna á Blönduósi, og þess
ófremdarástands sem ríkt hefur
að mjög gott hótel með um 20
herbergjum hefiir ekki veriði í
rekstri á Blönduósi í nokkum
tíma, eftir að rekstur hótelsins
hafði gengið mjög illa um langt
skeið. En Valdimar í Bakkakoti
og hans fólk er ekki á því að
gefast upp á hótelrekstri á
staðnum og vilja nú kanna
möguleika þess að koma upp
25-50 gistiherbergjum í áföng-
um við félagsheimilið.
„Við teljum að hótelrekstur
hafi ekki verið reyndur af al-
vöm í nokkur ár síðan Oskar
Húnfjörð fór. Þetta hafa verið
ævintýramenn sem rekið hafa
hótelið 2-3 mánuði á ári og ekki
einu sinni tekið við pöntunum
yfir veturinn”, segir Valdimar
um hótelmálin. .
I greinargerð með tillögunni
er nefndir kostir fyrir félags-
heimilið sem menningar og
hótelhús: Góð staðsetning, góð
aðstaða til leiksýninga, tón-
leikahalds, bíósýninga og ráð-
stefnuhalds, frábær aðstaða til
veitinga- og dansleikjahalds,
ásamt öðrum mannfögnuðum.
Einnig komi til greina að
Blönduósbær geri samning við
rekstraraðila um aðstöðu yfir
veturinn fyrir kennslu í mat-
reiðslu og jafhvel heita máltið í
hádeginu fyrir nemendur
grunnskólans, vegna nálægðar
skólans við félagsheimilið.
Nefndarmenn vom sam-
mála um að þetta ástand í hótel-
málunum væri óásættanlegt og
reynist ekki áhugi hjá heima-
mönnum að standa að þessum
rekstri yrði „pakkinn” auglýst-
ur í dagblöðum og víðar.
Fljótamönnum hefúr gengið
óvenju illa að heimta á þessu
hausti. Þeir vonuðust til að fé
myndi skila sér að talsverðum
hluta úr eftirleitum sem fram
fóm í Héðinsfirði um helgina, en
sú varð ekki raunin. Þaðan komu
einungis fjórar kindur, allar frá
Brúnastöðum í Fljótum. Vitað er
um kindur ífammi í Ólafafirði,
sem ekki náðust um síðustu
helgi en erfiðlega gengur nú að
fást við fé sem ekki hefúr skilað
sér affjalli.
Þorsteinn Jónsson bóndi í
Helgustöðum segir að kindur
vanti af nokkrum bæjum og
heimtur séu óvenju slakar. Þeir
Helgustaðamenn voru að eltast
við fé ofan við Kvíabekk í Ólafs-
firði um helgina en urðu frá að
hverfa, þar sem það var komið
hátt upp. „Þetta er mjög erfitt að
eiga við kindur í tíðarfarinu eins
og það hefur verið og þegar þær
hafa komist upp með það einu
sinni að skila sér ekki þá reyna
þær það aftur”, segir Þorsteinn
sem grunar að enn sé fé eftir í
Héðinsfírðinum og víðar. Það sé
svo auðvelt fyrir það að leynast
við aðstæður eins og nú, þirtu-
tími orðinn afar stuttur, mjög
skellótt jörð og í litum sauðkind-
arinnar þar sem að snjór er orð-
inn mjög aurlitaður.
Eftirleitir í Héðinsfirði dróg-
ust óvenju lengi að þessu sinni
og er ástæða þess að siglfirskir
skíðamenn, sem sjá um leitirnar,
hafa staðið í miklum fram-
kvæmdum við gerð skíðalyftu
uppi í Skarði og einnig hafa þeir
verið að bíða eftir snjó til að féð
kæmi niður og unnt væri að fara
yfir fjallið á snjósleðum.
Jóhannes Ríkharðsson bóndi
á Brúnastöðum segist sakna
nokkurra kinda, tæplega tíu tals-
ins, sem venjulegast hafi haldið
sig í Siglufirði eða Héðinsfirði.
Jóhannes sagði að Siglfirðingar
hefðu staðið vel að fyrri göngun-
um í haust og þá smalast ágæ't-
lega, en féð hafi verið að koma í
allt haust, og einnig leita í burtu
það sem heim var komið. „Það
var reyndar afarslæmt að eftir-
leitimar skyldu dragast svona
lengi núna vegna þess að féð
vantaði og það getur þess vegna
leynst víðar”, segir Jóhannes, en
sauðfé Fljótamanna virðist leita
um vitt og fjöllótt svæði, sem oft
er erfitt að finkemba.
Matvælafvrirtæki á Blönduósi
í athugun að byggja sam-
eiginlega frystigeymslu
Forsjármenn fyrirtækja í
matvælaframleiðsiu á Blöndu-
ósi komu til fúndar við atvinnu-
málanefnd bæjarins á dögunum
og þai' var rætt um möguleika á
byggingu sameginfegrar frysti-
geymslu fyrir afúrðir fyrirtækj-
anna. Þetta eru fyrirtækin
Særún rækjuvinnsla, Norðurós
fiskverkun og Sölufélag Austur
-Húnvetninga.
Valdimar Guðmannsson hjá
atvinnumálanefnd sagði að
frystigeta fyrirtækjanna og
geymslurými væri mjög tak-
markað, og þau væm að geyma
sínar vömr í Reykjavík og víð-
ar. Því væri nú rætt um að
byggja nýtt frystihús á Blöndu-
ósi.
Sigurður Sigurðsson hjá In-
vest hefúr unnið að þessu máli
fýrir atvinnumálanefndina og
eftir miklar umræður á fúndin-
um var ákveðið að Sigurður
kannaði ákveðna þætti málsins,
áður en aðilar hittust aftur, en
það yrði eins fljótt og kostur væri.
—KteH£»!t chjDI— JíMftbílaverkstæöi
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ M M m M sími: 453 5141
. ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
. FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir tk Hjólbarðaviðgerðir
. BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA & Réttingar ^ Sprautun