Feykir - 12.12.2001, Blaðsíða 3
43/2001 FEYKIR 3
Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson leika á lofti
Sauðárkrókskirkju.
Sálmar jólanna
Það var notaleg stemmning
á lofti Sauðárkrókskirkju sl.
laugardag á tónleikum með
þeim Sigurði Flosasyni og
Gunnari Gunnarssyni. Sálmar
jólanna var yfirskrift tónleik-
anna eftir samnefndum hljóm-
disk sem þeir gáfu nýlega út.
Þeir Sigurður og Gunnar eru
taldir meðal fremstu hljóðfæra-
leikara þjóðarinnar og var flutn-
ingur þeirra frábær í seiðmögn-
uðum jass- og blúsútsetningum
á sálmatónlistinni.
Tónlistarfélag Skagafjarðar
á þakkir skildar fyrir að standa
að tónleikum sem þessum og
sýna þann kjart sem til þess
þarf, en jafnan er aðsóknin ekki
eins og efhi standa til og svo var
einnig að þessu sinni, þó hún
teldist kannski viðunandi, 40-
50 manns.
Stefán Pedersen ljósmyndari
og jazzunnandi er einn þeirra
sem lætur tónleika sem þessa
ekki fram hjá sér fara. Stefán
segist vera mjög ánægður með
tónleikana, tónlistin mjög sér-
stök en um leið hrífandi og
skemmtileg. Þarna hafi verið
frábærir tónlistarmenn á ferð-
inni, og útkoman á þessari ó-
hefðbundnu hjóðfæraskipan,
sexafónn og orgel, hefði komið
sér á óvart. Hann hafi ekki bú-
ist við slíkri snilld eins og raun
varð á. Sérstaklega var það
lokakaflinn í jólasálminum,
Heims um ból, eða „Heims um
blús” eins og þeir kölluðu það,
sem Stefán Pedersen hreifst að,
en þar var á ferðinni geysilega
skemmtilegjasssveifla fráþeim
félögum.
„Sálmar jólanna” eru
þekktir sálmar eða lög tengt jól-
um og fara þeir Sigurður og
Gunnar mjög óhefðbundnar
leiðir í útsetningum og flutn-
ingi. Má þar t.d. nefna að í
sálminum Bjart er yfir Bet-
lehem, var ekki fylgt ferð jóla-
stjömunnar eins og hefðbundin
útsetning gerir, heldur einblínt á
ferðalag vitringanna. Kynning-
ar þeirra félaga á lögunum vom
vel unnar og gaman að fylgjast
með „spuna” þeirra i sumum
laganna og skemmti það áheyr-
endum greinilega vel.
Sveinbjöm I. Baldvinsson
kemst m.a. svo að orði í inn-
gangi að textahefii með hljóm-
disknum: „Það er heillandi að
heyra þessi kunnuglegu stef
leikin af frábærum tónlistar-
mönnum með ríka, margbreyti-
lega reynslu að baki. Að fá að
njóta spunans, þess kraftbirt-
ingarhljóms sem aðeins er til
þegar og þar sem hann er skap-
aður og upphefúr bæði stund-
ina og staðinn og breytir í eina
allsheijar andartakssnertingu
milli allra sem viðstaddir em.”
„Ég taldi mig ekki vera að
tefla í neina tvísýnu þegar ég
lagði upp á heiðina. Vegskiltið
sýndi 31 metra á sekúndu og
núll gráðu og ég hef keyrt við
þannig aðstæður i stöðugum
vindi. Svo virðist hann bara
hafa rokið upp allt í einu eins og
línuritið sýndi hjá þeim á Veð-
urstofúnni, bara strik beint upp
í 45-47 metra og þá var ég svo
óheppin að vera stödd efst á
heiðinni”, segir Hrefna Skarp-
héðinsdóttir ungur vöruflutn-
ingabílstjóri hjá Aðalflutning-
um á Sauðárkróki, en bíll henn-
ar fauk út af veginum við sælu-
húsið á Holtavörðuheiði á
föstudagskvöldið. Hrefna og
farþegi hennar sluppu án telj-
andi meiðsla. Hrefna fékk að
vísu gat á höfúðið og var ansi
blóðug og illa leikinn þegar hún
birtist eftir að hafa brostist út úr
bílnum og segist vera með mar-
bletti hingað og þangað, en að
öðm leyti ágætlega haldin.
Hrefna var á suðurleið með
bílinn fúllan af steinull, heppi-
legan farm, en kannski fúlllétt-
an miðað við aðstæður. „Þegar
hann ríkur þarna upp missi ég
framhlutann á bílnum yfir á
hinn vegarhelminginn, þannig
að hann er þversum á veginum,
og það er eins og hann rási til að
aftan. Svo skiptir það engum
togum að það er eins og vindur-
inn ná undir bílinn og hann
leggst rólega út af.” Þannig lýs-
ir Hrefna hvemig þetta gerðist.
Hún segist hafa haldið ró sinni
allan tímann og sér hefði líka
létt þegar farþeginn reyndist ó-
meiddur, 15 ára piltur sem fékk
að fljóta með suður.
Þau náðu að klöngrast út úr
bílnum og komast upp á veg,
þar sem vegfarendur skutu yfir
þau skjólshúsi þartil sjúkrabíll
kom úr Borgarnesi. Mjög blint
og skafrenningur var á heiðinni
og bílar héldu kyrm fyrir með-
an veðrið var sem varst. Eftir
rúman klukkutíma kom svo
sjúkrabíllinn og á laugardag var
náð í vömflutningabílinn og
honum komið i bæinn, en tals-
verðar skemmdir eru á stýris-
húsinu, bílstjórahurðin t.d. nán-
ast ónýt. Bíllinn er tryggður hjá
T ryggingarmiðstöðinni.
Hrefna keypti hlut í Aðal-
flutningum í vor og byrjaði þá
að keyra frá Sauðárkróki, en
hafði áður farið ferð og ferð að-
allega innan héraðs. Hún sagði
ekki láta þessa reynslu neitt á
sig fá og halda áfram að keyra.
Héraðsnefndin lögð niður
Um þessar mundir er form-
lega verið að leggja niður Hér-
aðsnefnd Skagfirðinga. Á
fúndi sveitarstjómar Skaga-
fjarðar í gær var tekin fyrir
samþykkt byggðarráðs frá síð-
ustu viku um samkomulag
milli Sveitarfélagsins Skaga-
íjaröar og Akrahrepps, um að
leggja niður Héraðsnefnd
Skagfirðinga og hlutdeild aðila
varðandi réttindi og skyldur
sem skráðar em á héraðsnefnd-
ina. Sveitarfélagið Skagafjörð-
ur ber 94,93% og Akrahreppur
5,07%. Hreppsnefnd Akra-
hrepps gengur væntanlega frá
samþykkt sama efnis á næsta
fúndi sínum.
Samvinnubókin og KS-bókin
Tveir góðir kostir til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 5,70% vexti,
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir 10,
Ársávöxtun 10,57%
Innlánsdeild
//<w
„Eins og strik beint upp á
við þegar hann rauk upp“
segir Hrefna vörubílstjóri sem fauk út af á Holtavörðuheiðinni