Feykir - 23.01.2002, Side 2
2 FEYKIR 3/2002
Starfshópur um sauðfjárrækt
Málum seinkar
til næsta hausts
Við byrjun sláturtíðar á
liðnu hausti var á stjómarfundi
Kaupfélags Skagfirðinga
skipuð nefnd sem hefur það
hlutverk að kanna með hvaða
hætti væri hægt að auka bein-
greiðslurétt héraðsins og bæta
afkomu sauðfjárbænda í
Skagafirði. Starf nefndar sem
hafði með málefni mjólkur-
bænda að gera fyrir nokkrum
ámm skilaði mjög góðum ár-
angri og nú vonast sauðfjár-
bændur til að svipað verði
uppi á teningnum.
I sauðfjárnefndinni em
bændurnir Þórarinn Magnús-
son á Frostastöðum, Örn Þór-
arinsson í Ökmm ásamt þeim
Sigurjóni Rúnari Rafnssyni
fulltrúa kaupfélagsstjóra og
Þórólfi Gíslasyni kaupfélags-
stjóra. Örn i Ökrurn sagði í
samtali við Feyki að því mið-
ur yrði dráttur á því að nefnd-
in kæmi með tiilögur, sökum
þess að ekki hafi tekist að
ljúka uppkaupum á kvóta í
haust af hálfu ríkisins og það
mundi því frestast til 1. sept-
ember á næsta ári að bændur
fengju að versla með kvóta sín
á milli. Það yrði því ekki fyrr
en eftir þann tíma sem unnt
yrði að kanna möguleika til að
aðstoða bændur í héraðinu við
kaup á sauðfjárkvóta, sagði
Örn.
Tónlistarfélag Skagafjarðar
Gitar Islancio
á Kaffi Krók
Næstkomandi föstudags-
kvöld 25. janúar verða þriðju
tónleikar á vegum Tónlistarfé-
lags Skagafjarðar. Að þessu
sinni verður það hið frábæra
tríó „Guitar Islancio” sem
heimsækir okkur. „Guitar
Islancio” er orðið íslendingum
vel kunnugt en trióið skipa þeir
Gunnar Þórðarson gítar, Bjöm
Thoroddsen gitar og Jón Rafns-
son kontrabassa. Þetta eru allt
framúrskarandi snjallir og
löngu landsþekktir listamenn
sem hafa starfað saman i mörg
ár og gefið út þrjá geisladiska.
Lögin á efnisskránni eru úr
ýmsum áttum en meðal annars
flytja þeir þjóðlög í nýjum bún-
ingi, gítartónlist eftir gítarsnill-
inginn Django Reinhard og
ýmislegt fleira. Tónleikarnir
verða á Kaffi Krók kl. 21,00.
Þetta eru tvímælalaust tón-
leikar við allra hæfi og unnend-
ur góðrar gitartónlistar ættu alls
ekki að láta þá fram hjá sér
fara. Við í Tónlistarfélaginu
mælum eindregið með þessum
tónleikum og eigum von á ffá-
bærri skemmtun og notalegri
kvöldstund við Ijúfa gítartóna.
Sem fyrr er miðaverði stillt í
hóf eða kr. 1000. Mætum öll og
fyllum húsið, er áskorun í til-
kynningu ffáTónlistarfélaginu.
Dálitlar breytingar hafa orð-
ið á áður auglýstri dagskrá vetr-
arins. Til stóð að Rússíbanar
kæmu nú í janúar og Scola
Contorum kæmi í febrúar en
hætt hefur verið við báða þessa
tónleika af óviðráðanlegum á-
stæðum. Reyndar stendur til að
Rússíbanar komi síðar í vetur
eða vor ef hægt er. í stað Rússí-
bana koma Guitar Islancio 25.
jan. og í stað kórsins Scola
Cantorum koma „Gospelsyst-
ur” undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur, en þetta eru 100-
120 kvenna kvennakór ásamt
hljómsveit svo ekki þarf að ef-
ast um kraftinn í þeim. Tónleik-
ar Gospelsystra verða í íþrótta-
húsinu 15. febrúar og verða
auglýstir nánar síðar.
Áskrifendur góðir - munið eítir að
greiða áskriftargjöldin!
Fjárhagsáætlun Húnaþings vestra
Verulegar framkvæmdir í ár
Fjárhagsáæltun Húnaþings
vestra var afgreidd á fundi sveit-
arstjórnar 10. janúar sl. Skatt-
tekjur eru áætlaðar tæpar 280
milljónir, rekstrargjöld af frá-
dregnum sértekjum rúmar 256
milljónir króna, gjaldfærð fjár-
festing rúnrar 6 millj. og eign-
færð fjárfesting rúmar 55 millj.,
vegur þar þyngst bygging í-
þróttahúss. Að teknu tilliti til
greiðslu afborgana og fjár-
magnskostnaðar þarf tæpar 66
milljónir til að brúa bilið, og að
rnati sveitarstjóra er sigrúm til
lántöku upp á tæpar 30 milljónir.
Það sem upp á vanti verði að
fjármagna með rekstrarafgangi
sveitarsjóðs síðustu ára, sem er
rúrnar 36 milljónir.
A fundinum var talsvert rætt
um hlutfall þjónustugjalda af
kostnaði við viðkomandi mála-
flokk. Ólafur Óskarsson í Víði-
dalstungu taldi þörf á því að
sveitarstjórn rnótaði stefnu urn
hvert hlutfall þjónustugjalda af
kostnaði skyldi vera. Taldi hann
vatnsskatt heldur háan miðað við
árlegan kostnað af rekstri vatns-
veitu, þó með því fororði að þar
komi hvorki ffam fjármagns-
kostnaður né afborganir lána
sem tekin vom vegna vatnsveitu-
framkvænrda. Þá nefndi Ólafur
fýrirvara sinn um fjárveitingu til
kennslueldhúss á Hvammstanga
og taldi rétt að ffesta þeirri ffam-
kvæmd. Einnig vék Ólafur að
því að ráðast yrði í kostnaðar-
samar gatnagerðarffamkvænrdir
á næstu árum.
Þorsteinn Helgason á Foss-
hóli tók undir skoðanir Ólafs á
kennslueldhúsi og byggingu í-
þróttahúss. Þá ræddi Þorsteinn
unr kostnað við grunnskólarur
sem hann taldi mjög háan sem
hlutfall af tekjum og lítil breyt-
ing orðin til batnaðar frá tínrunr
fámennu sveitarfélaganna.
Guðmundur Haukur Sigurðs-
son fomraður byggðaráðs fór
yfir nokkra þætti m.a. fram-
kvænrdir við vatnsveitu og til-
heyrandi lántökur um 1990.
Benti hann á að hitaveitutaxti á
Hvammstanga hefði í raun lækk-
að á undanfömunr áratug þar
sem að engar hækkairir hafi orð-
ið á þeinr tíma. Elín Líndal for-
seti sveitarstjórnar vék almenn-
unr orðum að þjónustugjald-
skrám og rakti ennffemur þróun
kennslustundafjölda í grunn-
skólanum undanfama vetur.
Einnig ræddi Elín um stuðning
við „Grettistak” sem er verkefhi
í ferðaþjónustunni. Þorvaldur
Böðvarsson ræddi um kennslu-
eldhús og taldi að það myndi
nýtast vel. Telur Þorvaldur að
vakandi auga þurfi að hafa með
rekstrarkostnaði grunnskólans,
senr og að leita þyrfti eftir skoð-
unum Vesturhópsbúa hvernig
fara skuli með húseignir sveitar-
félagsins í landi Þorfinnsstaða.
Guðmundur Haukur lagði
ffanr bókun nreirihlutans: „Fjár-
hagsáætlun Húnaþings vestra
2002 ber skýrt með sér að vem-
legar ffamkvæmdir verði á veg-
um sveitarsjóðs og haldið verður
áfram öflugri þjónustu við íbú-
ana. Er þó hag sveitarsjóðs
hvergi steffrt í hættu. Markmið
meirilrluta er sem fyrr, að sýna á-
byrga fjármálastjórn og auka
ekki skuldsetningu sveitarsjóðs.”
Fundurinn um barna- og ung-
lingastefnuna ágætlega sóttur
Allfjölirremrt var á fundi urn
íþróttanrál i Safnahúsinu á
Sauðárkróki sl. mánudags-
kvöld. Það var menningar- í-
þrótta- og æskulýðsnefnd sem
stóð fyrir fundinunr í samvinnu
við íþrótta- og Ólympíusanr-
band íslands, þar sem farið var
yfir bama- og unglingastefnu
sambandsins. Viðar Siguijóns-
son starfsmaður á skrifstofu
ÍSÍ á Akureyri skýrði stefnuna
og um hana urðu allnokkrar
umræður.
Talsvert var fjallað um
keppni barna og þau nrörk senr
bama- og unglingastefnan set-
ur þar og verðlaunaveitingar til
barna og unglinga, sem oft
verða mikil tilfinningamál.
Rætt var unr gagnsemi íþrótta,
foi'varnir og þau jákvæðu áhrif
senr íþróttaiðkun hefúr á náms-
árangur, eins og kannanir hafa
leitt í ljós. Eiga börn að sunda
nrargar íþróttagreinar, hvert er
hlutverk foreldra og höfúnr við
nrenntaða leiðbeinendur?, voru
meðal margra spuminga sem
velt var upp. Á fúndinum lágu
frammi fjöldi fræðandi bæk-
linga fyrir foreldra og íþrótta-
fólk, sem væntanlega verður
hægt að nálgast á skrifstofúm
íþróttafélaganna og jafnvel víð-
ar, sem sem á hjá íþrótta- og
æskulýðsfúllrúum.
Þá var einnig á fúndinum
vikið að íþróttaskóla Tinda-
stóls, en félagið hefúr verið í
fremstu röð í landinu hvað
þennan þátt íþróttastarfsins
varðar. Skólinn var settur á
laggimar 1995 og er samstarfs-
verkefni fijálsíþrótta- knatt-
spyrnu- og körfúknattleiks-
deildar Tindastóls. Ingvar
Magnússon íþróttakennari,
sem kennt hefúr við skólann
ffá upphafi, fór yfir starfið, en
þáttakendurhafa yfirleitt verið
á bilinu 40-60% úr hveijum ár-
gangi við skólann og var met-
þátttaka á síðasta ári.
Kemur út á miðvikudögum. Utgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Farsími 854 6207. Netl'ang: feykir @ krokur. is.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F.
Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.