Feykir - 13.02.2002, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Borgarafundur á Skagaströnd
Hlutabréfakaup í
Skagstrendingi dýr
Skuldir aukist um 215 milljónir á tveim árum
Á borgarafundi sem lirepps-
nefnd Höfðahrepps stóð fyrir
meðal íbúa sl. sunnudag, kom
íram að eignarhald sveitarfélag-
ins í Skagstrendingi hafi orðið
sveitarsjóði dýrkeypt síðustu
árin og sé aðalástæðan fyrir því
að skuldir hreppsins hækkuðu
verulega síðustu tvö árin, eða úr
114 milljónum í árslok 1999 í
328,8 milljónir á síðasta ári.
Þegar Höfðahreppur ásamt
nokkrum stærri hluthöfum
keyptu hlutabréf Samherja í
Skagstrendingi á árinu 1999 tók
sveitarsjóður 170 milljóna króna
lán. Síðan hefúr gengisþróun
verið óhagastæð og það leitt
þess að skuldastaðan hefúr far-
ið versnandi og greiðslubyrði
sveitarsjóðs aukist til rnuna.
Borgarafunduriim var alllíf-
legur og mæting ágæt, sérstak-
lega með tilliti til þess að þorra-
blótið var kvöldið áður. Höfða-
hreppur er nýlega kominn í hóp
sveitarfélaga sem teljast vera
með fjárhagsstöðu á gráu svæði.
Magnús Jónsson sveitarstjóri
segir að vissulega sé fjár-
hagstaða hreppsins erfið, en það
þýði ekki annað en bretta upp
ermarnar og vinna sig út úr
vandanum með markvissum að-
gerðum á næstu árum, sem verði
að miðast við aðhald í rekstri og
varfærni í peningamálum
hreppsins.
Fjárhagsáætlun Höfðahrepps
fyrir nýbyrjað ár gerir ráð fyrir
útsvarstekjum upp 120,5 millj-
ónir, fasteignagjöld skili 9,3
milljónum og framlag úr jöfn-
unarjóði verði 30,3 milljónir,
tekjur samtals 160,3 milljónir.
Langdýrasti málaflokkurinn
verður fræðslu- og uppeldismál
sem áætlað er að taki til sín 62,7
milljónir króna, eða tæp 40% af
tekjum, en alls er áætlað að verja
til reksturs málaflokka 114
milljónum og greiðslubryði lána
er áætluð 41,1 milljón króna.
Skoðanakönnun hjá Hniúkum
Þrír vilja íyrsta sætið
Sex gefa kost á sér í skoðana-
könnun bæjarmálafélagsins
Hnjúka á Blönduósi, vegna kom-
andi bæjarstjómarkosninga, sem
fram fer laugardaginn 16. febrúar.
Ljóst er að baráttan um fyrsta sæti
Á-listans verður hörð þar sem þrir
frambjóðendur stefha á það sæti.
Frambjóðendur em þessir:
Björgvin Þór Þórhallsson aðstoð-
arskólastjóri gmnnskóla Blöndu-
óss, en hann gefúr kost á sér í
fyrsta sæti. Gunnlaug S. Kjartans-
dóttir verkakona, sem gefúr kost á
sér í ótilgreint sæti. Helga Jónína
Andrésdóttir bankastarfsmaður,
gefúr einnig kost á sér í ótilgreint
sæti. Jóhanna G. Jónasdóttir leik-
skólastjóri, gefúr kost á sér í fyrsta
sæti. Jón Ragnar Gíslason verka-
maður, gefúr kost á sér í ótilgreint
sæti. Valdimar Guðmannsson
verkamaður, gefúr kost á sér í
fýrsta til þriðja sæti.
Frá sýningu „Búálfanna“ í Reiðhöllinni Svaðastöðum sl. fostudag. Jón Garðarsson frá
Neðra-Ási heldur í klyfjahestinn, en það er Anna Margrét Geirsdóttir sem er á hestbaki.
Flutningur skrifstofu Sveitarfélagsins SkagaQarðar
Urgur meðal starfsfólks
Urgur er í starfsfólki skrifstofu Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar þessa dagana vegna
flutninga yfir götuna í Stjórnsýsluhúsið, og
það gustaði talsvert á skrifstofunni í síðustu
viku þegar bæjarstjóri gerði hluta starfs-
fólks að rýma sínar skrifstofur og flytja sig
um set yfir götuna. Þetta gerðist á miðviku-
dag og var starfsfólki launadeildar sagt að
það yrði að vera farið í síðasta lagi á föstu-
dagsmorgun, en þá öðlaðist gildi leigusamn-
ingur við hugbúnaðarfyrirtækið Element,
sem fær húsnæði í norðurenda annarrar
hæðar í „græna húsinu” við Faxatorgið.
Starfsfólkið neitaði skyndilegum flutningi,
enda mun hafa komið á daginn að þeir aðilar
sem þurftu að rýma sitt vegna flutnings úr
Stjómsýsluhúsinu, þörínuðust lengri aðlögunar-
tíma, og síðustu fregnir herma að stefnt sé að
því að flutningi sveitarstjómarskrifstofúnnar
verði lokið föstudaginn 22. febrúar, en um það
leyti er áætlað að húsnæði Byggðastofnunar við
Ártorgið verið tilbúið, umfangsmiklum breyt-
ingum sem staðið hafa yfir ffá því i nóvember-
mánuði verði þá lokið, en þessi hringekja í
húsnæðismálum hefur farið af stað með til-
kornu Byggðastofnunar á Sauðárkrók.
Flutningur og hrókeringar á aðstöðu fyrir-
tækja og skrifstofú sveitarfélagsins hafa verið
talsvert í umræðunni að undanfömu og á síðasta
sveitarstjómarfúndi áttu sér stað snörp skoðana-
skipti milli Gísla Gunnarssonar fúlltrúa minni-
hlutans í sveitarstjóm og Stefáns Guðmunds-
sonar fúlltrúa meirihlutans, sem einnig er stjóm-
arformaður Kaupfélags Skagfirðinga, en gagn-
rýni Gísla beindist m.a. að því er hann kallar of-
ríki kaupfélagsins gagnvart sveitarfélaginu.
í grófúm dráttum felast þessar hrókeringar í
því að sveitarstjórnarskrifstofúrnar verða með
alla sína aðstöðu í Stjómsýsluhúsinu, sem og1
skólaskrifstofa Skagafjarðar. Eins og áður segir
verður Element í norðurenda „græna hússins”
við Faxatorgið, en í suður hlutanum verða
Hestamiðstöð íslands, Hringur og Farskóli
Norðurlands vestra.
—ICTeH^ítf ckjDI— JfMfMbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 jÆJLJLMJM. sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundorgata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ^Bílaviðgerðir 0 Hjólbarðaviðgerðir
. BÍLA- OG SKIPARAFMAGN 0 Réttingar ^ Sprautun
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA -