Feykir - 13.02.2002, Blaðsíða 5
6/2002 FEYKIR 5
Girnilegt er þorratrogið
Þorrinn er góður mánuður.
Hjá mér vakna þjóðlegar
kenndir og vitundin um að
vera Islendingur verður að æi-
björtu ljósi sem eyðir öllum
hversdagshugmyndum og
skuggalegum grun um fallvalt-
leika tilverunnar og vonsku
mannanna. Þetta er vegna þess
að ég er eins og allir hinir, að-
eins það sem ég ét og nú ét ég
þorramat. Oft í hádeginu, alltaf
á kvöldin, og flestar nætur
laumast ég í trogið þegar aðrir
liggja á meltunni. Við erum
heppin að geta notað heilan
mánuð til éta okkur aftur í
gegnum þjóðarsöguna og
svallað hnífaparalaust í öllum
þessum mismunandi yldu- og
rotnunarstigum sem blessaður
þorramaturinn hefur.
Ekkert er hollara fyrir þjóð-
arsálina eða skapar eins heil-
steypta samkennd og að sitja
alsæl í kringum sama trogið í
sömu ólyktinni og mega hik-
laust gramsa með lúkunum í
kræsingunum og drekka ó-
mælt og átölulaust brennivín
með. A slíkum stundum þakka
ég goðunum fyrir að vera ís-
lendingur og öðrum ónefndum
máttarvöldum fyrir að vera
Skagfirðingur, sem getur víta-
laust sungið á kamrinum til
morguns.
Þorramatur fyllir mig líka
andagift. Ég sé vel hvað flokk-
amir okkar, sem eru að máta
kosningabuxurnar, eru þjóð-
legir og sannir þar sem þeir
liggja snyrtilega tilreiddir í
troginu og bíða þess með þol-
inmæði að kjósendur velji sér
leiðtoga og vissulega eru þeir
gimilegir.
Stærsta skepnan er auðvitað
hákarlinn, sá minnir á Sjálf-
stæðisflokkinn. Stór er hann
gráðugur og beinlaus, en
skrápurinn er grófúr og greind-
arvísitalan sprengir enga skala,
enda þarflaust því verkunin
bætir útlitið upp. Hann er lát-
inn liggja í kös í nokkrar vikur,
síðan Iiengdur á rá og étinn
þegar rotnunin er að komast á
það stig að hann hættir að tolla
saman. En hann er skorinn í
svo smáa bita að óbragðið
dofnar.
Framsóknarflokkurinn er
lítið smærri en ffamreiddur á
fleiri vegu, þá á ég við sauð-
kindina. Með ólíkindum er
hvað þá vesalings skepnu er
hægt að matreiða í mörgum
tegundum. Hún er reykt, ný,
söltuð, súrsuð og sér maður þó
illa á þeim sauðasvipinn nú-
orðið, því er sviðasulta er í
tísku um þessar mundir.
Samfylkingin er harðfiskur,
flattur, þurrkaður, roðflettur og
bragðlaus. En verður samt
aldrei annað en þorskur, sama
hvaða umbúðir eru notaðar.
Þá eru það vinstri grænir.
Þeir eru nú bara hálfsúrir og
ekki bragðgóðir, enda hráefnið
selshreifar og hrútseistu, sem
hafa tapað bæði lögun, bragði
og tilgangi. Svo eru auka- og
uppfyllingarefhi, rófústappa,
rúbrauð og slátur, sem enginn
nennir að éta, og er líka seinni-
tíma viðbót rétt eins og Fijáls-
lyndir.
Skrautið á öllum þorrablót-
um er brennivínið, vonandi
verður mikið af því í formi
aukaframboða, sem fljóta yfir
allt í stefnulausri óreiðu en
deyfa blessunarlega bragðið af
matföngunum. Raunar er
brennivínsþorsti okkar svo
heilsteyptur að við getum
drukkið okkur til skammar
blótalaust, en það kemur ekki
þessum spaklega pistli við.
Glaumur.
Frá dorgveiðikeppninni sl. vetur.
Ferðamálabraut Hólaskóla
Dorgveiðikeppninni
vex fiskur
Dorgveiði nýtur vaxandi
vinsælda hérlendis sem fjöl-
skylduskemmtun. Sunnudag-
inn 17. febrúar verður haldin
hin árlega dorgveiðikeppni
ferðamálabrautar Hólaskóla
og er þetta Qórða árið sem
ferðamálabrautin stendur fyrir
slíkri keppni sem hefúr notið
sívaxandi vinsælda. Keppnin
hefur ffá upphafi farið ffam á
Vatnshlíðarvatni á Vatnsskarði.
I vatninu eru tvö sérstök af-
brygði af bleikju og hefúr hún
tekið vel. Keppnin hefúr ávalt
um hrygg!
verið fjölmenn og heppnast
vel.
Skráning hefst við Vatns-
hlíðarvatn kl. 13:00 og þá get-
ur fólk farið að velja sér holu
og gert allt klárt fyrir keppnina
sem byrjar kl. 13:30 og lýkur
kl. 15:30. Keppter íbama-og
fúllorðinsflokkum og veitt
verða vegleg verðlaun í öllum
flokkum að keppni lokinni.
Allir eru hvattir til að mæta
og njóta samverunnar á ísn-
um, segir í tilkynningu frá
Ferðamálabraut Hólaskóla.
Frábær árangur UMSS
á Meistaramótinu
„Við náðum okkar lang-
besta árangri frá upphafi, alls
28 verðlaunasætum, þar af sjö
meistaratitlum. Ef reiknuð
væm stig samkvæmt reglugerð
um meistaramót utanhúss þá
væri UMSS með u.þ.b. jafn-
mörg stig FH og Breiðablik
samanlagt", segir Gísli Sig-
urðsson þjálfari frjálsiþrótta-
liðs UMSS, en liðið náði ffá-
bærum árangri á Meistaramóti
íslands innanhúss um síðustu
helgi.
„Við emm með langmestu
breiddina af öllum liðunum og
emm með okkar langbesta lið
ffá upphafi. Innanhúsmótið er
ekki stigakeppni en samkvæmt
útreikningum Gisla miðað við
útimótin hlaut UMSS 170 stig,
Breiðablik 89 stig og FH 82,
og lýsa þessar tölur vel breidd-
inni í liði UMSS.
Qctdu góð
Frábært verð á skíðapökkum
UJ<i verö frá. l6-90°
jrnapaKi'
raUUapaUkiveröfrá ^ oo
lng,ingapaUUiverafr^ goo
^orðinspaUUi—- 0
C6„9usUiðapaUU.ver ^
SnióbrettaPaUU.veröfra
ÍÍtt'iiiS’
ig skíðafatnaður á alla fjölskyldunkOV pM
fyaup tsfydaöúðÍHni • ^