Feykir


Feykir - 15.05.2002, Blaðsíða 2

Feykir - 15.05.2002, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 17/2002 Nýtt framboð - nýjar áherslur Áherslur Vinstri hreyfingar- innar-græns framboðs í sveitar- stjórnarmálum eru skýrar. Hreyfingin leggur áherslu á fjöl- breytni í byggð landsins, ijöl- breytni í atvinnulífi, öflugt vel- ferðarkerfi, jöfnuð lífskjara og samábyrgð samfara stuðningi við þá sem höllustum fæti standa í lífsbaráttunni. Einnig umhverf- isvernd, því umhverfismálin verða í sífellt vaxandi mæli við- fangsefni sveitarfélaga. I Ireyf- ingin hafnar þcirri kaldrifjuðu markaðshyggju, sem nú gegn- sýrir þjóðfélag okkar, þar sem markaðurinn og peningaöflin ráða för og valta yfir þá sem minna mega sín. Markmið og leiðir Vinstrihreyfingin-grænt framboð vill byggja upp samfé- lag jafitaðar og réttlætis, þar sem allir íbúar Skagafjarðar eru jafn réttháir, hvort sem þeir eru bú- settir á Sauðárkróki, frammi í Austurdal eða úti í Fljótum. Hreyfingin vill starfa fýrir hérð- ið allt og hlusta á raddir heima- manna á hveijum stað um það, hvað best megi verða atvinnulífi og mannlífi til eflingar og fram- dráttar. Við viljum hlusta á fólk, en ekki tala niður til þess. Við í VG viljurn tala skýrt og á mannamáli, svo allir skilji, en forðast klisjur og stofnanamál. Framboðið vill móta skýra stefnu í þýðingarmestu mála- flokkum sveitarfélagsins, en ekki lofa of miklu eða setja upp skrautlega orðaða stefnuskrá, sem lítið er á bak við, heldur reyna að standa við gefin loforð, svo sem kostur er. Ráðdeild og lieiðarleika setjum við ofarlega í öllu starfi. í atvinnumálum vill VG líta til sem flestra kosta í héraði með fjölbreytnina að leiðarljósi. Hreyfingin er andvíg sölu á hlut sveitarfélagsins og ríkisins í Steinullarverksmiðjunni, sem n'kisstjómin hefúr nú knúið fram með lagasetningu á Alþingi. Dapurlegt er, að sveitarfélögin í landinu skuli knúin til þess íyrir aðgerðir stjómvalda að selja sín- ar arðsömustu eignir til að grynnka á skuldum sínum. Eðli- legra hefði verið að vinna að stækkun verksmiðjunnar enda rekstur hennar gengið vel. Allt er þetta mál með eindæmum og mikil andstaða gegn sölunni hér Aðalfundarboð Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar h.f. verður haldinn miðvikudaginn 22. maí 2002 kl. 11:00 að Kaffi Krók, Aðalgötu 16, Sauðárkróki. Á dagskrá eru auk tillagna um breytingar á samþykktum félagsins venjuleg aðalfúndarstörf, en skv. 16. gr. samþykkta félagsins skal taka fyrir eftirfarandi mál: 1. Skýrsla stjómar félagsins um starfsemi þess s.l. starfsár. 2. Efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið reikningsár, ásamt skýrslu endurskoðenda, skal lagður fram til staðfestingar. 3. Tekin ákvörðun um hvemig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu. 4. Tekin ákvörðun um þóknun til stjómarmanna og endurskoðenda. 5. Tillögur til breytinga á 5. tölulið 16. gr., 19.gr. og 27. gr. samþykkta félagsins. 6. Kosning stjórnar og varastjórnar og tilnefning fulltma rikisins. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Önnur mál, sem löglega em upp borin. Dagskrá fundarins, ársreikningur, skýrsla endurskoðenda og tillögur til breytinga á samþykktum félagsins liggja fyrir á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfiind skv. 14. gr. samþykkta félagsins. Steinullarverksmiðjan h.f. í héraði svo sem komið hefúr fram í fjölmiðlum. Vart verður séð, að Villinga- nesvirkjun leysi stóran vanda í atvinnumálum Skagafjarðar, nema náttúrulega eitthvað með- an á byggingartíma stendur, enda líklegast, að orkan ffá henni verði send suður í Hvalfjörð í stóriðjuna þar. Hins vegar kann virkjun að skapa ný vandamál, sem fæstir vilja hafa hátt um. Heimamenn þurfa að skoða rækilega, hver verður fómar- kostnaður virkjunar, hvort við viljum taka áhættu á mikilli röskun á vatnasvæði Héraðs- vatna samfara virkjun og hvort við erum reiðubúin að fóma fyr- ir virkjun þeim vaxtarsprota í ferðaþjónustu, sem áhugasamt fólk hefúr verið að byggja upp hér í héraði síðustu árin, sem eru fljótasiglingar (river rafting) og ferðaþjónusta þeim tengd sem farin er að gefa af sér 3-4 tugi milljóna árlega í beinar tekjur og búin að koma Skagafirði inn á kortið sem miðstöð fljótasigl- inga. Vilja héraðsbúar fórna þeint ávinningi fyrir virkjun? Ferðaþjónusta er einn helsti vaxtarsprotinn í atvinnulífi á landsbyggðinni um þessar mundir. Að honuin þaif að hlúa. Svokölluð menningartengd ferðaþjónusta mun fara vaxandi á komandi árum. Skagafjörður er eitt af söguríkustu hémðum landsins. Kirkju-og sögustaðir héraðsins skipa stóran sess með Hólastað í broddi fylkingar. Kynning á sögustöðum í Skaga- firði er að verulegu leyti óunninn akur, sem býður upp á aukna möguleika í ferðaþjónustu. Einnig er vert að minna á starf- semi handverksfólks í Skaga- firði, Alþýðulist, sem atvinnu- skapandi verkefni. Efla þarf frumatvinnuvegi héraðsins og nýta orkulindir í iðmm jarðar, svo sem heita vatn- ið sem nóg er af, m.a. til aukinn- ar ylræktar og fiskeldis, en ekki síður þann auð sem í fólkinu sjálfú býr. Skóli og menning Skólamálin eru ofarlega á blaði VG. Við viljum efla allt skólastarf í sveitarfélaginu á gmnnskóla-og framhaldsskóla- stigi, bæta innra starfið, og auka samstarf skóla með samnýtingu kennara og aðstöðu í ýmsum sér- greinum fremur en að fækka skólum. Við leggjum áherslu á að skólum verði ekki fækkað meir en orðið er í sveitarfélaginu. Skólastarfi verði áfram haldið í Steinstaðaskóla og engar breyt- ingar gerðar þar á nema sam- kvæmt vilja foreldra. Sama gild- ir um Sólgarðaskóla. Fráfarandi meirihluti sveitarstjórnar boðaði sem kunnugt er á liðnu vori, að skólahald í Steinstaðaskóla verði endanlega lagt niður haustið 2003. VG leggur áherslu á að fé- ERU ÞIÐ TIL f..............................? Meðferðarheimili í nágrenni höfnðborgarsvæðisins, óskar að ráða hjón eða sambýlisfólk á besta aldri, til starfa sem fyrst. HANN þarf að vera með bílpróf, ráðagóður og hagur á ýmsum sviðum. Einhver þekking á ylrækt væri kærkonnn, en ekki skilyrði,- HÚN þarf að geta eldað og bakað fyrir 25 - 30 manna mötuneyti.- ÞAÐ sem mestu máli skiptir fyrir bæði, er reglusemi, jákvætt hugarfar og góð mannleg samskipti. Fólk, með börn á skólaskyldualdri, kemur ekki til grema. Húsnæði er á staðnum. Upplýsingar í síma 895-3468, virka daga,milli kl. 16.00 og 18.00. lagsheimilin verði áffam í eigu sveitarfélagsins, en leitað verði allra leiða til að auka fjölbreytni í rekstri þeirra. Við vildum sjá aukið tómstunda-og forvarnar- starf í félagsheimilunum, og fögnum tilkomu kaffi- og menn- ingarhúss ungs fólks á Sauðár- króki. Líta verður á skóla-og fé- lagsheimili sem eina heild, sem styðja hvort annað rekstarlega séð þar sem þau eru til staðar. Hvort tveggja er stór hluti af sjálfsmynd sveitarinnar, þar sem þau eru staðsett, og íbúanna þar. Séu þessar stofnanir lagðar niður eða hlutverki þeina breytt, skap- ast tómarúm, sem erfitt verður að fylla. VG vill auka hlut rnenn- ingar og lista í Skagafirði, styðja starf áhugafélaga og einstaklinga á því sviði og móta skýra stefnu, hvernig að stuðningi við slíka starfsemi skuli staðið. Menn hafa mismunandi sýn á það, hvemig þeir vilja hafa sam- félagið, hvað þeir vilja láta hafa forgang. En öll viljum við vænt- anlega heill og hag þessa fagra héraðs, Skagafjarðar, sem mest- an. Mestu skiptir nú að horfa til framtíðar og gera gott samfélag betra. Að því vill VG vinna fái framboðið til þess stuðning ykk- ar, ágætu Skagfirðingar. Ég hvet alla íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér vel stefnuskrá VG og skoða hvaða áherslur eru þar efstar á blaði. Þá mun fólk sjá, að hér er komið fram nýtt afl með nýjar áherslur. Gleðilegt sumar! Ólafur Þ. Hallgrímsson, sóknarprestur Mælifelli. Skipar 12. sæti á framboðslista Vinstri grænna í Sveitarfélaginu Skaga- firði. Söngbúðir Um 45 böm úr bamakórum í Skagafirði komu saman í æf- ingabúðum á Löngumýri sl. sunnudag 12. maí. Börnin sem vom frá Árskóla á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóla og úr bamakór Hofsóskirkju æfðu söng og radd- beitingu undir stjóm Stefáns R. Gíslasonar, Önnu K. Jónsdóttur og Önnu M. Guðmundsdóttur. Dagskráin stóð frá því klukkan tvö um daginn og var haldið heim á leið um sjö leytið um kvöldið. Auk söngsins var farið í heita potta og grillað þótt veðrið væri ekki upp á það besta. Að sögn Önnu K. Guðmundsdóttur eins kennarans hafa kórböm í Skaga- firði ekki komið saman í þessum tilgangi fyrr, en vonast er til að ffamhald verði á. Trúlega kemur starf sem þetta sönglífi í héraðinu til góða ef til ffamtíðar er litið, að böm úr þessum kórum eigi effir að taka virkan þátt í starfi fúllorð- inskóranna seinna meir. Kenrur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauóárkróki. Póstfang: Box4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Farsími 854 6207. Netíang: feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þóriiallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guöbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmiuidur Hemrannsson, Sigiuhur Ágústsson og Stefán Amason. Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublaö nteð vsk. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Seúiing og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.