Feykir


Feykir - 15.05.2002, Blaðsíða 6

Feykir - 15.05.2002, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 17/2002 Hagyrðingaþáttur 338 Heilir og sælir lesendur góðir. Er ég ríslaði í vísnakroti mínu nú fyrir skömmu rakst ég á eftirfarandi vísur sem ég hef hripað hjá mér án þess að hafa vitað um höfund að þeim. Eru þær ortar um það leyti og umræða stóð sem hæst um uppfinningu á pillu sem sérstaklega var ætluð konum. Strákar hengja haus á bringu hugur fyllist eymd og gráti fái stelpur fullnægingu framvegis með lyfja áti. Það mun vera mjög á mörkum að maður geti sansað ffúna, upp á flestum asnaspörkum eru þeir að finna núna. Sigurður Kristmann Pálsson mun hafa ort næstu vísu við fráfall vinar. Gegnum dauðans skugga ský skil ég burtför þína. Guð hefúr vantað gimstein í geislakrónu sína. Sá ágæti hagyrðingur Dagbjartur á Refsstöðum rifjar upp í huganum ýiusa vafasama dóma um eignarétt og yrkir svo. Stopult var mitt lífsins lán og lítið þar um sólskinsbletti. Hef þó stolið oftast án aðstoðar frá Hæstarétti. Höfundur næstu vísu mun vera Er- lendur Gottskálksson og er hún ort til eiginkonu hans. Meðan himinn lætur líf leika í æðum mínum, lofaðu mér að vera víf vin í armi þínum. Þá mun þessi kunna vísa einnig vera eftir Erlend. Alltaf bætist raun við raun réna gleðistundir. Það er ei nema hraun við hraun höltum fæti undir. Þegar Erlendur varð fýrir þeim þungu búsitjum að missa kú úr fjósinu varð þessi vísa til. Stefnir að mér slysafans stundir gæfú dvínar, ætla nú til andskotans allar reitur rnínar. Guðfinna Þorsteinsdóttir orti eins og margir vita undir skáldanafninu Erla. Bjó hún á Teigi í Vopnafirði í hartnær 40 ár. Þar mun hún hafa ort þessa fallegu vorvísu. Auð er hlíðin upp að sjá útsjón fríð fráTeigi. Andar þíðu inni frá undur blíðum degi. Önnur vísa kemur hér eftir Erlu. Fuglinn syngur, fræ í mold fer að springa úr hýði. Vorið yngir freðna fold fegrar ling og víði. I síðasta þætti birti ég eftirfarandi vísu, sem ekki mun hafa verið rétt með farin. Hef ég nú fengið þær ágætu upp- lýsingar að höfúndur hennar sé séra Einar Sturlaugsson og rétt er hún þannig. Ef mér skolar upp á sand aldan hinsta sinni. Vona ég að Vesturland vöggu skýli minni. Það mun hafa verið hinn snjalli Jón S. Bergmann sem orti svofellda sveit- arlýsingu. Garðurinn með nagg og níð nær þeim hæstu tónum, setinn er af sultarlýð og sálarlausum dónum. Til er frásögn um að eitt sinn hjálp- uðu Kristján frá Djúpalæk og Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga, Konráði Vil- hjálmssyni að stynga upp kartöflugarð. Að verki loknu orti Þorsteinn. Eftir linu afköstin óska ég Konráð góður, vel að blessist þessi þinn þriggja skálda gróður. Konráð yrkir svo um vinnu þeirra félaga. Þótt á vori viðri kalt og visni gróður hinna, þá mun blessast þúsundfalt þriggja skálda vinna. Að lokum þessi frá Kristjáni. Skrafdrjúgt verður enn um óð öldnum ljóða svani. Þá er erjuð þessi lóð þriggja skálda bani. Ólína Andrésdóttir mun hafa ort svo 1927. Úti í móum á ég svið unaðs bjó mér föngin. Þar í ró að þreyja við þrasta og lóu sönginn. Bragi Bjömsson á Surtsstöðum lýs- ir svo vorhug sínum. Skuggar styttast, skýrist ljós skapið þróttlaust mýkir, vinir hittast vaknar rós vorið nóttlaust rikir. Gott er þá að enda með þessari kunnu vísu Júlíusar Jónssonar frá Mos- felli, sem ég held að gerð hafi verið vor eitt á sumardeginum fyrsta. Suðrið vígir sumartak sólblik skýin vefúr, vorsins hlýja vængjablak vonir nýjar gefúr. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Raunveruleikinn Að undanförnu hafa fram- bjóðendur til sveitarstjórnar Skagafjarðar flutt kjósendum boðskap sinn á síðum frétta- blaðsins Feykis. Þetta hafa yfir- leitt verið málefnalegar og upp- lýsandi greinar. Af öðrum toga er greinarstúfurinn “Kosninga- loforð og raunvemleikinn” er birtist í Feyki þann 8. maí sl. eftir góðan kunningja, Helga Thorarensen, þriðja mann á Skagafjarðarlista. Þar leitast hann við af fremsta megni að gera lítið úr störfum fúlltrúa Sjálfstæðisflokksins fyrir sveit- arfélagið Skagafjörð á yfir- standandi kjörtímabili. Helgi dæmir stefnuskrá flokksins fýr- ir komandi kosningar marklaust hjal og telur að sjálfstæðismenn hafi hvorki þor né dug til að taka á erfiðum málum. Jafn- framt gerir hann sér til dundurs að guma af Skagafjarðarlistan- um lyrir getu og þor bæði í nú- tíð og framtíð. Svo virðist sem Helgi trúi því sjálfúr sem frá honum hefur lekið á pappírinn en mönnum getur skotist þó skýrir séu. Skýr stefna Staðreyndin er sú að stefna Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi sveitarstjórnarkosningar er skýr og afdráttarlaus. Hún mið- ar m.a. að því að efla traust og trú íbúanna á sjálfa sig og hér- aðið, sparnaður og hagræðing verði leiðarljós í rekstri sveitar- félagsins, aukin verði tengsl i- búasamtaka og sveitarstjómar, atvinnu- og menntamál verði tekin föstum tökum, unnið verði að margvíslegum fram- faramálum í samvinnu við ríkið og svo mætti lengi telja. Hveijir eru svo þeir sem ætla að fylgja þessum stefnumálum eftir? Þá kynnir oddviti D- list- ans, Gísli Gunnarsson í Feyki þann 8. maí sl. Þar fara ffernst í flokki Gísli Gunnarsson og Ás- dís Guðmundsdóttir sem bæði eiga sæti í núverandi sveitar- stjórn og ganga nú til leiks reynslunni ríkari. í næstu fjór- um sætum listans er einnig fólk með margháttaða reynslu af sveitarstjórnar- og félagsmál- um. Kynni mín af þessu fólki eru öll á þann veg að ég fúllyrði að í þau verk sem vinna þarf verður gengið af dugnaði og festu og þau unnin. Með fullri virðingu fyrir öðrum framboð- um vil ég fúllyrða að ekkert þeirra hefur á að skipa í efstu sætum fólki með jafn mikla og margvíslega reynslu og fram- bjóðendur D-listans hafa. Hver átti eignirnar? Helgi víkur einnig að meintri fjármálaóstjóm sjálf- stæðismanna í bæjarstjórn Sauðárkróks á fýrri tíð. Ekki efa ég að þar hefði eitthvað mátt betur fara en vil minna á hveij- ir tóku þátt í því að afla þeirra eigna er núverandi meirihluti sveitarstjórnar hælir sér af að selja undan sveitarfélaginu? Var það ekki bæjarstjóm Sauðár- króks sem átti sinn þátt í tilurð Steinullarverksmiðjunnar? Hvað með Rafveitu Sauðár- króks? Hvaðan kom hún og hverjir áttu hana? Ætli Sauð- krækingar hefðu ekki verið sátt- ari við hækkun rafmagnsreikn- inga sinna ef sú hækkun hefði mnnið til eigin fýrirtækis? Fasteignasalarnir í sveitar- stjórn selja eignir til að draga úr skuldum sveitarsjóðs og halda því vel á lofti. Þeir hafa færri orð um árangur sinn varðandi rekstur sveitarfélagsins. Það er skynsamlegt af þeiin þvi þar þarf ekki mörg orð. Árangur fýrirfinnst enginn. Fjármálasnilli meirihlutans Ymislegt hefði mátt færa til betri vegar með því fjármagni er fer til að greiða kostnað við tvo sveitarstjóra. Annar kostar sveitarfélagið samtals um 15 milljónir króna fýrir að vinna 4 daga í viku í 10 mánuði en hinn kostar sveitarfélagið um 10 milljónir fýrir að gera ekki neitt í 16 mánuði. Þá eru ótalin bið- laun fráfarandi rafveitustjóra að upphæð 7-8 milljónir. Ég tek það skýrt ffarn að ég er ekki að gera lítið úr þessum starfs- mönnum sveitarfélagsins. Laugardaginn 11. maí sl. undirrituðu Skúli skólameistari á Hólum og fúlltrúar meirihluta sveitarstjómar viljayfirlýsingu um samstarf þessara aðila að frekari uppbyggingu Hólastað- ar. Þessari viljayfirlýsingu ber sérstaklega að fagna og vænti ég þess að fúlltrúar Sjálfstæðis- flokksins munu fýlgja henni eftir í verki, komist þeir í þá að- stöðu að sveitarstjómarkosning- um loknum. Minna treysti ég efndum núverandi meirihluta og er þess skammt að minnast þegar fúlltrúar Skagafjarðarlista og Framsóknarflokks stóðu saman gegn tillögu fúlltrúa Sjálfstæðisflokksins um að staðsetja Náttúmstofú Norður- lands vestra að Hólum. Með Náttúmstofú á Hólum hefði að- allega unnist tvennt. Hún hefði verið staðsett í þvi rannsókna- og háskólaumhverfi sem er á Hólum og stofúnni hæfir. Einnig hitt að hægt heföi verið að fresta framkvæmdum við gamla Bamaskólahúsið á Sauð- árkróki sem nú hýsir Náttúm- stofúna. Endurgerð þess húss var að sönnu þarfaverk en kostnaður við húsið fór langt ffarn úr gerðri áætlun og vem- legar fjárhæðir heföi mátt spara, heföi tillögu Sjálfstæðismanna verið fýlgt. Erfiðleikarnir til að sigrast á þeim Hér hefúr nokkuð verið drepið á örfá atriði er varða for- tíðina. Henni verðurekki breytt. Fyrir liggur að takast á við ffamtíðina. Sveitarfélagið Skagafjörður á í fjárhagscrfió- leikum sem glíma þarf við. Þeirri glímu er óþarfl að kvíða, erfiðleikar em til að sigra þá. Hvemig sem næsta sveitar- stjóm Skagafjarðar verður

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.