Feykir - 15.05.2002, Side 3
17/2002 FEYKIR 3
Af götunni
Engin könnun
Mikið hefur verið spurt eftir
því hvort skoðanakönnun sé á
leiðinni fyrir staði hér á svæðinu
og kannski einkanlega fyrir
Skagafjörð, stærsta svæðið. Það
hefur heyrst frá frambjóðendum
að það sé svolítið einkennilegt
að heyja kosningabaráttuna þeg-
ar menn viti í rauninni ekkert
hvemig landið liggi, ein könnun
gæti auðveldað áróðursstríðið
talsvert, þá myndu rnenn vænt-
anlega vita á hvaða sæti ætti að
keyra, hver stæði tæpt og hver
virtist hafa nóg á bak við sig.
Síðustu dagana fyrir kosning-
amar snýst baráttan stundum
upp í slíkan hráskinnaleik.
En svo virðist sem frambjóð-
endur hér á svæðinu verði að
vera án skoðanakönnunar þetta
vorið. Feykir verður ekki með
könnun og ekki heldur Útvarp
Norðurlands. Varla er hægt að
reikna með því að dagblöðin
verði með könnun utan stóru
þéttbýlisstaðanna.
Nægar spurningar
bað er kostnaðurinn varð-
andi kannanimar sem aðilar
setja fyrir sig. Feykir fór reynd-
ar ódýrari leið fyrir síðustu
kosningar, enda ógömingur fyr-
ir fátækt blað að kaupa sig inn í
stóru kannanimar. Feykir fékk
kennara í Fjölbrautaskólanum til
að framkvæma könnunina, enda
hafði skólinn þá staðið að könn-
unum og var búinn að ná góðum
tökum á því verkefni. Könnunin
stóðst mjög vel og vissulega
hefði verið gaman að gera könn-
un nú. Ekki hefði vantað auka-
spumingamar til að beina til
kjósenda, svo sem: Hver er af-
staða þín til sölu Rafveitunnar
og Steinullarverksmiðjunnar,
Villinganesvirkjunar, sorpurð-
unarsvæðis, jarðgangna úr
Hjaltadal í Hörgárdal og fleira.
Valli um kjurt
Varla hefur leiðinlegra mál
komið upp hér á svæðinu en
þetta vesen með ffamboðslista
Hnjúka á Blönduósi, og sannað-
ist þar að oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi, eða öllu heldur að
það er náttúrlega verra þegar
menn fá hlassið ofan á sig, eins
og í þessu tilfelli.
Mörgum var tíðrætt um lýð-
ræðið vegna þessa máls og varð
það greinilega þungt á metum
þegar til kastanna kom hjá dóm-
aranum. Sem betur fer hafði
héraðsdómarinn kjark og þor til
að taka á rnálinu, segja margir,
og nú virðast allir vera ánægðir.
Þegar málin vom hvað heit-
ust hafði Valdimar Guðmanns-
son frá Bakkakoti, aðalfor-
sprakkinn hjá Hnjúkum, uppi
orð um það að ef þeir fengju
ekki að bjóða ffam þá rnyndi
hann flytja úr bænum. Ömgg-
lega hefði Valli staðið við það og
sjálfsagt eitthvað meira gengið
á, en telja verður öruggt að
Valdimar verði um kjurt.
Iimburmennimir
eru ansi ónotalegir
Undir Nöfum
Off er vanþakklæti og skiln-
ingsleysi okkar - háttvirtra kjós-
enda - næstum óbærilegt fyrir
þá duglegu og velmeinandi
frambjóðendur sem hætta
mannorði sínu og geðheilsu í
það vanþakkaða starf að stjóma
þessu sveitarfélagi.
í Feyki birtist ffétt um að
starfsfólk Steinullarverksmiðj-
unnar afþakkaði fundi með full-
trúum þeirra framboða sem nú
ráða í Skagafirði. Þó ég skilji
vel afstöðu þeirra „steinullar-
mamta” þykir mér rétt að draga
fram nokkur atriði til málsbóta
fyrir ffambjóðendur.
Þegar Sveitarfélagið Skaga-
Qörður þeysti syngjandi fram á
móti sólarupprisu fegurstu
ffamtíðar, fyrir fjórum árum,
sátu við stjómvölinn 11 valin-
kunnir einstaklingar sem vissu-
lega vom með munninn fullan
af fögmm fyrirheitum og
hjörtun þrútin af bjartsýni - það
var nú þá.
Hvorki gmnaði sveitar-
stjómarmennina, eða mig, að sá
- Bláhiminn - mundi grána
hvað þá breytast í þá ógnar-
mynd sem Einar Ben. lýsti með
upphafsorðunum: „Hleypir
skeiði hörðu.” - Sú hefur þó
orðið raunin.
Ellefu-menningarnir bretm
upp ermamar og jusu síðan
með 22 gjafmildum höndum,
úr freinur rýrum sjóðum, öllu
sem þar var að finna. En ekki
stoppuðu þeir þótt botninum
væri náð, ekki aldeilis, til þess
var ffamkvæmdagleði og góð-
verkaáhugi of mikill. Með ótrú-
legri elju héldu þeir áffam og
fjármögnuðu nú veisluna með
lánum sem þeir af útsjónarsemi
og hörku tóku af samhentum
drengskap, alvörumenn láta
ekki lítilsháttar lausafjárskort
stoppa þau þjóðþrifamál sem
þeir vilja vinna, ekki aldeilis.
En effir gleðina komajafhan
skuldadagarnir, sem hjá okkur
hinum heita einfaldlega timbur-
menn og eru vissulega ónota-
legir. Hvað gerðu þá okkar
menn 'í sveitarstjórn Skaga-
fjarðar, lögðust þeir vælandi
upp í loft, nei ekki aldeilis, þá
fyrst sýndu þeir snilld sína. Þá
fóru þeir að selja, þeir seldu þær
eignir sem auðvelt var að losa
sig við, þeir gengu sameinaðir í
skítverkin, því meigum við
aldrei gleyma. Þeir seldu; hluta-
bréf, rafveitu, og steinull, fyrir
hundruðir milljóna króna á ó-
trúlega stuttum tíma. Svona
kappsama sölumenn höfúm við
aldrei átt fyrr og raunar ekki
þurft á þeim að halda, sannast
hér hið fornkveðna: „þegar
neiðin er stærst —!
Núna sést að vísu á ffam-
boðslistunum að sumir af þess-
um fulltrúum eru dauðuppgefit-
ir, en hver láir þeim það eftir öll
afreksverkin. Nýir vendir sópa
best, enda fáum við núna nýja
fulltrúa sem verða að sópa
botninn til að halda veislunni á-
ffam.
Háttvirti kjósandi, þú þarft
samt ekki að kvíða, ennþá er
niargt hægt að selja í Skaga-
firði, t.d. skólahús, félagsheim-
ili, safnahús, beitilönd og hita-
veitur, svo eitthvað sé nefnt.
Það sem hér vantar eru góðir
sölumenn, hafið það hugfast
þegar þið kjósið 25. maí.
Glauniur.
Orðsending til fyrrum
nemenda Húsmæðra-
skólans á Löngumýri
Fyrirhugað er að koma upp skólasafni á Löngumýri,
með sýnishornum af vinnu nemenda i gegnum árin. Þvi
sendum við þessa orðsendingu.
Ef þið nemendur góðir, eigið einhver stykki prjónuð,
saumuð, hekluð eða ofin, t.d. einhvergömlu skyldustykk-
in, sem þið vilduð láta af hendi á fyrirhugað safn, þá vin-
samlegast hafið samband við undirritaðar, sem gefa allar
nánari upplýsingar.
Rósa Björnsdóttir Hvíteyrum, 560 Varmahlíð, sími 453
8048, Helga Bjarnadóttir Furulundi 4, 560 Varmahlíð,
símj 453 8199.
Á nokkur gamla skólakjólinn sinn enn?
Samvinnubókin og KS-bókin
Tveir góðír kostir til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er með 5,50% vexti, bundin 1 3 ár og verðtryggð
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir
9,30%, Ársávöxtun 9,52%
Innlánsdeild