Feykir - 15.05.2002, Síða 7
17/2002 FEYKIR 7
Skagafjörður
Auglýsing um framlagningu kjörskrár og kjörstaði í
Sveitarfélaginu Skagafírði vegna kosninga 25. maí n.k.
Kjörstaðir við kosningar til sveitarstjórna í Sveitarfélaginu Skagafirði verða þessir:
Félagsheimilið Skagasel
Bóknámshús FNV á Sauðárkróki
Félagsheimilið Miðgarður
Félagsheimilið Árgarður
Grunnskólinn á Hólum í Hjaltadal
Félagsheimilið Höfðaborg
Grunnskólinn Sólgörðum
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
Kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórna liggur frammi frá og með 15. maí 2002 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu sveitarfélagsins á Sauðárkróki.
í Búnaðarbanka íslands, útibúinu í Varmahlíð.
í Grunnskólanum á Steinsstöðum.
Á skrifstofu Bændaskólans Hólum í Hjaltadal.
í Búnaðarbanka íslands, útibúinu Hofsósi.
í útibúi Kaupfélags Skagfirðinga, Ketilási.
Á kjörskrá eru þeir sem skráðir voru með lögheimili í sveitarfélaginu Skagafírði samkvæmt íbúaskrá
Þjóðskrár hinn 4. maí 2002 og aðrir þeir sem uppfylla skilyrði 2. gr. laga nr. 5/1998 með síðari breytingum.
Kjósendur eru hvattir til þess að athuga hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til sveitarstjórnar Skagafjarðar.
Sauðárkróki 14. maí 2002
Sveitarstjórinn í Skagafírði.
mönnuð er þess ekki að vænta að hún
vinni kraftaverk. Þess er aftur á móti
vænst að hún geri sitt besta í hveiju
máli, setji sér markmið og fylgi þeim
eftir af skynsemi og festu.
I lok fyrmefndrar greinar Helga sést
hve hann er magnaður grínisti þegar
hann áréttar að Skagafjaróarlistinn bæði
þori og geti og sé það afl sem Skaga-
fjörður þurfi á að halda. Það kemur í
ljós í kosningunum þann 25. maí n.k.
hvort Skagfirðingar eru sammála þessu
og gefa atkvæði sitt Skagafjarðarlistan-
um, sem nú um sinn rekur flóttamanna-
búðir fyrir Framsóknarflokkinn, í rass-
vasa Snorra Styrkárssonar.
Bjarni Maronsson,
þriðji maður á D-Iista.
Áskrifendur góðir!
Þeir sem eiga í fórum sínum ógreidda
gíróseðla fyrir áskriftargjaldinu eru beðnir
að greiða hið fyrsta.
Smáauglýsingar
Vmislegt!
Fimmtán ára drengur óskar eftir að
komast í sveit í Skagafirði. Upplýsingar
í síma 453 5783 eða 865 5548.
Óska eftir torfæruskellinöðru á
verðbilinu 50-100 þúsund krónur. Hafíð
samband í síma 899 8245.
Til sölu sófasett, borðstofusett og
hillusamstæða. Upplýsingar í síma 861
4119.
Tek hross í tamningu eða þjálfun.
Upplýsingar gefur Sara í síma 895 6417.
Til sölu brúnskjóttur graður þriggja
vetra foli af góðum ættum, taumvanur.
Upplýsingar í síma 453 8106 (Hallur).
Tapað - fundið!
Svartir og hvítir rósavettlingar eru í
óskilum í bókasafninu Sauðárkróki.
Upplýsingar i síma 453 5424.
Húsnæði!
Til leigu einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks. Friðssælt umhverfi og
gott. Upplýsingar í síma 453 5558.
Erum fluttir að
Köllunarklettsvegi
Opnunartími mánud. - fimmtud. 8-17, föstud. 8-16
FLUTNINGAR
íslandsbanki
\
•
Athafnasvæði
■*" Eimskips
%
%
Flutníngar eru okkar tag!!!
Flytjum vörur á Suðurnes, Vesturland, Vestfirði,
Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland,
Suðausturland og Suðurland.
Flutningsaðili okkar í Skagafirði er:
Vöruflutningar Bjarna Har. ehf.
Akstursáætlun frá Skagafirði er:
sunnud. - fimmtud. kl. 14,00
Akstursáætlun frá Reykjavík er:
mánud.-fimmtud. kl. 17, föstud. kl. 16.
ABAl
FLUTNINGAR
Símanúmer Vörufl. Bjarna Har. ehf.
Jón Ingi 691 2424, Hrefna 691 3102.