Feykir - 28.08.2002, Blaðsíða 8
28. ágúst 2002, 28. tölublað, 22. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
VlDE
s: 453 6666
s: 453 6622
TOYOTA
- tákn um gædi
Fornar hauskúpur
finnast í Keldudal
Þing SSNV um helgina
Tíunda ársþing SSNV verður
haldið á Bakkaflöt í Skagafirði
um næstu helgi. Hefst það á
fostudagsmorgun og stendur
ffam yfir hádegi á laugardag. A
ársþinginu verða m.a. kynnt
starfsemi Iðnþróunarfélags
Norðurlands vestra og Norður-
slóðaáætlun ESB. Sigurður Sig-
urðsson hjá Invest og Ingunn
Helga Bjarnadóttir starfsmaður
Byggðastofnunar munu ffæða
fundargesti um þessi mál.
Það verður Elín R. Líndal
formaður SSNV sem setur þing-
ið og síðan eru hefðbundin þing-
störf, ársreikningur, fjárhagsá-
ætlun, starfsskýrsla fram-
kvæmdastjóra SSNV Bjarna
Þórs Einarssonar og starfsskýrsla
verkefnisstjóra málefna fatlaðra
á Norðurlandi vestra Grétu
Sjafnar Guðmundsdóttur.
Ávörp gesta eru á dagskrá
effir hádegi á föstudag, Páls Pét-
urssonar félagsmálaráðherra og
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar for-
manns Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Því næst eru fýrr-
nefndar kynningar á Insvest og
norðurslóðaáætlun og seinni-
partinn verða síðan framsöguer-
indi og umræður. Hermann Sæ-
mundsson skrifstofustjóri sveit-
arstjómarmála í félagsmálaráðu-
neytinu fjallar um stjómsýsluna
í framkvæmd og samskipti ríkis
og sveitarfélaga og Valgarður
Hilmarsson sem á sæti í ráð-
gjafanefnd unt jöfnunarsjóð
sveitaifélaga talar um hlutverk
jöfnunarsjóðsins. Einnig kemur
UlfarThoroddsen framkvæmda-
stjóri og fjallar um stefnumótun
og breytingar í opinberunt
rekstri.
Dagskrá föstudagsins lýkur
með fýrirspurnum, umræðum og
nefndarstörfum, en eins og jafn-
an verður hátíðarkvöldverður og
dagskrá í höndum heimamanna.
Að morgni laugardags verða
iðnaðar- og iðjukostir á Norður-
landi vestra á dagskrá. Andrés
Svanbjömsson yfirverkfræðing-
ur hjá Fjárfestingarstofunni flyt-
ur framsöguerindi og að því
loknu verða umræður um iðnað-
ar- og atvinnumálin. Því næst
verða umræður um málefni
sveitarfélaga, en í lok þingsins
verða síðan afgreidd nefudarálit,
ársreikningur og fjárhagsáætlun
og kosningar.
<@>
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
...bílar, tryggmgar,
bækur, ritföng,
franiköllun, rammar,
timarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBcJARS
SDÐUKOðTU 1 SÍMI 453 5950
Kodak Pictures
Þegar verið var að grafa fýr-
ir húsgrunni á bænum Keldudal
í Hegranesi, um miðja síðustu
viku, fundust heillegar hauskúp-
ur af mönnum, fjórar talsins.
Þarna er gamall bæjarhóll og
öskuhaugur og fundust haus-
kúpurnar undir öskulaginu frá
Heklugosinu 1104 og er þvi
talið að hauskúpurnar geti verið
frá heiðnum sið, en ekki em
neinar heimildir um að kirkju-
garður hafi verið í Keldudal.
Þór Hjaltalín minjavörur á
Norðurlandi vestra var kallaður
á staðinn og nú eftir helgina
kom fomleifafræðingur að
kanna þessar menjar, en engir
gripir fúndust með hauskúpun-
um. Þór segir að þama hafi get-
að verið kirkjugarður þó heim-
ildir séu ekki til um það, en ald-
ursgreining og frekari rann-
sóknir munu væntanlega taka af
allan vafa um það frá hvaða
tíma hauskúpumar eru. I fýrstu
fundust þijár hauskúpur, en
þegar Guðrún Lárusdóttir hús-
freyja fór að róta í yfirborðinu
fann hún þá fjórðu. Eins og sjá
má á mynd Amar Þórarinssonar
em hauskúpumar ótrúlega heil- Guðrún Lárusdótir húsfrevja í Keldudal með hauskúpurar
legar og á öskuhaugurinn vænt- sem jafnve, eru taldar frá því f heiðnL M d ÖÞ.
anlega þatt 1 þvi.
Systkini og uppeldissvstkini frá Bæ, Konráð Jónsson (Björnssonar), Haukur Björnsson,
Sigurlín Björnsdóttir, María Erla Geirsdóttir (Björnssonar), Geir Björnsson og Gunnar
Björnsson, með myndina af Bæjarklettunum.
Minningargjöf um hjónin
frá Bæ á Höfðaströnd
Systkinin frá Bæ á Höfða-
strönd afhentu sl. sunnudag
Heilbrigðisstofnuninni á Sauðár-
króki gjöf til minningar um for-
eldra sína Björn Jónsson og
Kristínu Kristinsdóttur. Gjöfin er
mynd af Bæjarklettunum gerð af
Ástu Pálsdóttur listmálara.
Gunnar Bjömsson hafði orð
fýrir systkinahópnum. Sagði
hann að þegar þau fóru að ræða
það sín á milli hvemig best væri
að heiðra minningu foreldranna
á 100 ára fæðingarafmæli þeirra
beggja á þessu ári, þá hafi fljót-
lega komið í hugann hversu vel
þau hafi látið af vem sinni og at-
læti starfsfólks Sjúkrahúss Skag-
firðinga, en þar dvöldu þau síð-
ustu ár ævi sinnar. Gunnar vék
að ntikilvægi þeirrar starfsemi
sem Heilbrigðsstofunin hefur að
gegna og lét þá ósk í ljósi að
þessi gjöf mundi gagnst stofhun-
inni. Sagði hann að þau systkin-
in væru ákaflega ánægð með
það hversu vel Ástu Pálsdóttir
hefði tekist að leysa þetta verk-
efni af hendi, en myndin væri
sterk frá heimahögunum og kall-
aði fram það kyngimagn sem
Bæjarklettamir byggju yfir.
Birgir Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn-
unarinnar þakkaði gjöfina og
sagði að hún kæmi að mjög góð-
um notum og yrði valinn staður
þar sem hún myndi njóta sín vel.
Sjúkrahúsið og dvalarheimilið
væri heimili margra síðustu ár
ævinnar og því kæmi gjöf sem
þessi að góðum notum til að
skapa sjúklingum og vistmönn-
um heimilislegt umhverfi.
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391
X