Feykir


Feykir - 28.08.2002, Blaðsíða 4

Feykir - 28.08.2002, Blaðsíða 4
4FEYKIR 28/2002 Sagan ljóslifandi á Grettishátíð Kraftakarlar að lokinni keppninni: Þorsteinn Ólafsson, Andrés Guðmundsson, Guðmundur Miðfjörðurinn skartaði sínu fegursta sunnudaginn 18. ágúst þegar haldinn var Grettis-hátíð á Bjargi, en þetta var í sjötta sinn sem haldinn er mannfagnaður á fæðingarstað útlagans, nú seinni árin á vegum Grettistaks, átaks í menning- artengdri fcrðaþjónustu í Húnaþingi vestra. Hátíðin hófst með því að Elín R. Lín- dal og Karl Sigurgeirsson tóku á móti gestum heima á hlaðinu á Bjargi, þar sem að Karl flutti stutta tölu um dagskrá dagsins. Því næst var gengið niður á Bergið og af þeim sjónarhóli fór Karl, sem einnig er fæddur og uppalinn á Bjargi, yfir helstu drætti sögunnar og rifjaði upp ýmisleg úr æsku Grettis sem gerðist á þessum slóðum. Ekki var laust við að sagan yrði ljóslifandi þegar Karl beindi sjónum gesta að sögu- stöðum, svo sem Bersaborginni norðuraustur ffá þar sem Grett- ir var látinn gæta hrossa ungur og fló þá húð Kengálu eins og sagan greinir frá. Það voru einmitt hross á beit við Bersa- borgina þennan dag, þannig að Karl gat notað þau sem kenni- leyti fyrir gestina. Rétt þar við er Miðfjarðarvatnið þar sem fram fóru ísknattleikar. Þá benti Karl á Kirkjuhólinn í túninu ausan við bæinn á Bjargi, en þar var reist kirkja og Grettis- þúfan er sögð yfir höfði Grett- is. Karl sagði forvintilegt þegar tæknin væri slík orðin að hægt væri að skanna jörðina, að fá menn á staðinn með sjána til að skanna hólinn og finna þar höfðuð Grettis. Minnisvarðinn á Berginu var því næst skoðaður af gest- um, en hann var kostaður af Asídísarsjóði sem stofnaður var að frumkvæði Guðbrands Isbergs fyrrv. sýslumanns og afhjúpaður 1974. Teikningar á minnismerkinu eru eftir Hall- dór Pétursson og skýrði Karl Sigurgeirsson myndimar Qórar sem á því eru, en Grettistak hefúr nú nýverið einnig gefið út bækling um þetta efni. Langt milli bols og höfuðs Jóni Eiríkssyni Drangeyjar- jarli var boðið sértaklega til há- tíðarinnar á Bjargi, sem sam- tenging rnilli Skagafjarðar og Húnavatnssýslu, en hann og Karl Sigurgeirsson skiptust á skoðunum um Grettis sögu sterka í tjaldinu á vellinum neð- an Bjargs, þegar komið var af söguslóðinni. Jón gerði skemmtilegan hlut þama um morguninn. Hann núllstillti mælirinn á bílnum þegar hann lagði af stað ffá Reykjum á Reykjaströnd, er þar var áður kirkja þar sem sagt var að Grettir hefði verið grafinn, en Þorbjöm Öngull hafi ætlað að færa höfúðið suður á Þingvöll til staðfestingar því á þinginu að útlaginn væri fallinn, og til að heimta þar verðlaun sem sett vom til höfðus Gretti. Öngull er sagður hafa heigst á þessu af hræðslu við Húnvetninga og skilið höfðið eftir suður á Stórasandi, þar sem Húnvetn- ingar náðu í það og grófu heima á Bjargi. Kílómetra- mælirinn á bíl Jóns sýndi 152,6 km þegar komið var að Bjargi og greindi Drangeyjarjarlinn ffá því við komuna að þessi Karl Sigurgeirsson og Jón Drangeyjarjarl bera saman bækur sínar á vellinum neðan Bjargs. við útlagann sterka, þar væri allt svo stórt. Grettistakið, einn stærsti steinn á íslandi sem rís upp af Bjargsbænum, er talinn var um 100 tonn, svo dæmi séu nefnd. Við minnismerkið á Berginu, Grettir Björnsson, Karl Sigurgeirsson og Jón Eiríksson Drangeyjarjarl. vegalengd væri rnilli bols og höfðuðs Grettis sterka. Kom mönnum saman um að þetta væri í stíl við allt í sambandi Nikkuspil og ríniur Grettir Björnsson lands- ffægur harmonikkuleikari var meðal gesta á Grettishátiðinni, þótt hann fregnaði ekki af henni fyrr en um morguninn og þyrfti síðan að vera mættur aft- ur suður um kvöldið. Grettir dregur einmitt nafn sitt af fom- kappanum, enda uppalinn á Bjargi og hálfbróðir móður fyrrnefnds Karls og systina hans ffá Bjargi, Önnu Axels- dóttur sem lengi var þar bónda- kona. Grettir brá á leik á Bjarg- inu og lýsti æsku sinni, og sagði ffá því þegar fældist með hann hestur og hlóp á klappir- nar, þannig að bæði hestur og stákur láu flatir í blóði sínu má segja, báðir með mikil húðsár. Af þessum sökum þurfti Grett- ir að liggja í rúminu í nokkrar vikur og var haim í leiðinni lát- inn gæta Karls, sem þá var á fyrsta ári og komabamið lagt ofan á hann í rúmið. Grettir Bjömsson og Þor- valdur Pálsson bóndi á Ytra- Bjargi spiluðu nokkur lög á Eyþórsson og síðan þeir sem urðu í þrem efstu sætunum, Revnir Guðmundsson, Bjarni Guð- Harmonikkuleikarnir, Þorvaldur Pálsson og Grettir mundsson og Júlíus Sigurbjartsson. Björnsson.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.