Feykir - 18.09.2002, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
„Við viljum láta
á þetta reyna“
Segir Kristján Jónsson stjómaríórmaður
Héraðsvatna sem ætla að láta gera skipulag
Fyrstu stóðréttir haustsins voru um síðustu helgi. Það var veðurblíða og mannfjöldi í
Reynistaðaréttinni, en hrossin með færra móti.
Fimmtiu línubrjótum haldið
heim við bæ í Húnaþingi vestra
„Á fundinum var ákveðið að
fara í skipulagsmálin. Við erum
ákveðnir að fara í þá vinnu, láta
gera deiliskipulag að svæðinu,
sem við myndum síðan bera
undir sveitarstjómir Skagaijarð-
ar og Akrahrepps. Síðan væri þá
röðin komin að því að óska
framkvæmdaleyfis hjá sveitar-
stjórnunum og virkjunarleyfis
hjá ráðherra. Þetta ræðst af við-
brögðum sveitarstjómanna. Við
munum láta á þetta reyna”, segir
Kristján Jónsson stjómarfor-
maður Héraðsvatna ehf. og for-
stjóri Rarik, um samþykkt sem
gerð var fundi Héraðsvatna fyr-
ir skömmu.
Aðspurður sagði Kristján að
það væri fullur vilji hjá Rarik-
mönnum að leysa Villinganes-
virkjunarmálið á friðsamlegum
nótum. Á honum var ekki að
heyra að Rarik myndi fara dóm-
stólaleiðina með málið, en orð-
in um hugsanlega málssókn féllu
hjá iðnaðarráðherra þegar rnálið
var í hápunkti fyrr í sumar.
„Eg veit ekki hvort við geturn
gert okkur vonir um að meiri-
hluti sveitarstjómar skipti um
skoðun, en okkur finnst sjálfsagt
að láta á það reyna. Að sjálfsögðu
höfum við orðið fyrir vonbrigð-
um með þetta mál, enda undir-
búningur vikjunar við Villinganes
kominn langt og búið að setja í
þetta heilmikla peninga.”
- En eruð þið þá famir að
skoða annan virkjunarkost?
„Já við erum líka að skoða
mjög hagkvæman kost við virk-
un Hólmsár í Skaftártungu. Sú
virkjun er í bráðabyrgðaniður-
stöðum rammaáætlunar sem birt
var núna í vor talin mjög hag-
kvæm. Þetta yrði 73 mw virkj-
un, rúmlega tvöfalt stærri en
Villinganesvirkjun og hentaði
vel til tengingar inn á okkar net”,
sagði Kristján, en gat þess að
vinna við Hólmsárvirkjun væri á
frumstigi.
Á stjómarfúndi Héraðsvatna
sem haldinn var fyrir aðalfúnd
félagsins nýlega var farið yfir
niðurstöður úrskurðar skipulags-
stjóra. Einnig var samþykkt að
láta gera deiliskipulag af svæð-
inu. Á aðalfúndi Héraðsvatna
gerði Gísli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar Skagafjarðar
grein fyrir því að sveitarstjóm
hugðist selja hlut sinn í Norð-
lenskri orku. Gísli gerði einnig
grein fyrir því afhverju nýi
meirihlutinn í sveitarstjóm
Skagaljarðar væri fráhverfúr
virkjun við Villinganes. Til
gmndvallar lægju þau gögn sem
aflað hefði verið með umhverf-
ismati, og að auki lægi ekkert
fyrir um það að orka frá virkun-
inni myndi nýtast til atvinnuupp-
byggingar í Skagafirði.
Stjórn Héraðsvatna efh. var
endurkjörin. Auk Kristjáns Jóns-
sonar formanns eru frá Rarik í
stjórninni Sveinn Þórarinsson og
Eirikur Briem. Fulltrúar frá
Norðlenskri orku eru sem áður
Sigurður Ágústsson og Þórólfúr
Gíslason.
Iðnaðarnefnd Alþingis var á
ferð í Skagafirði í síðstu viku.
Nefndin óskaði meðal annars
eftir fúndi með Rarik í Varma-
hlíð, þar sem fyrirhuguð Vill-
mganesvirkjun var kynnt og fóm
fúndarmenn síðan fram að þeim
stað sem kallaður hefúr verið
virkjunarsvæði, en spumingin er
hvort svo verði í skipulagi
Skagafjarðar í framtíðinni.
Rof kom á gömlu vamar-
girðinguna sem liggur frá
Miðfirði og upp á Amarvatns-
heiði í sumar. Þetta gerðist á
10-15 metra kafla til móts við
eyðibýlið Gilsbakka sem er
framundir heiðinni. Að girð-
ingunni á þessu svæði liggur
heimaland Fitja, og leituðu um
20 ær úr þessu beitarhólfi yfir
vamargirðinguna og vom þar
með komnar úr Miðfjarðar-
hólfi og frarn i Víðdælingaaf-
rétt. Þessar kindur komu ásamt
lömbum í Valdarásrétt um
helginga, alls um 50 fjár og tók
Gunnar Þorgeirsson bóndi það
og flutti í aðskilið beitarhólf
heima á Fitjum.
Samkvæmt lögum á að
flytja fé sem fer milli vamar-
hólfa í sláturhús, en Gunnar er
með þessu að mótmæla á-
standi girðmgarinnar, en fé fór
á milli girðinga einnig á síð-
asta ári, þá færra en frá fleiri
bæjum. Egill Gunnlaugsson
dýralæknir sagðist í viðtali við
útvarpið vonast til að lausn
finnist á málinu innan skamms,
en Feyki tókst ekki að ná sam-
bandi við hvorki Gunnar á
Fitjum né Egii dýralækni í
gær. Þá kom fram í útvarps-
fréttum í gær að yfirdýralækn-
isembættið fylgist grannt með
málinu.
Það er Jóhannes Kristófers-
son bóndi í Finnmörk og nú á
Reykjum sem hefúr um árabil
haft umsjón með girðingunni
og segist hafa haft með henni
vakandi auga. I sumar var t.d.
bætt í hana unt 1000 staurum.
„Girðingin var sett upp 10.
júní og þetta er um að ræða
vikutíma um mðjan júlí, sem
féð fór milli girðinga og gerð-
ist það við Fitjá hjá Gilsbakka.
Það er gijóteyri þama og ekki
hægt að reka niður staura, þarf
að halda henni uppi með því
að staga sittvoru megin í
staurana. Ég er búinn að hafa
mann í þessu í fjögur ár sem
ég hef talið ntig geta treyst, en
þetta hefúr ekki verið nógu vel
gert að þessu sinni. Kindumar
hafa lagst á girðinguna og
þannig komist yfir. Kannski
hafa þær verið aðgangsharðari
núna, þar sem mér skilst að
Gunnar bóndi hafi flutt færra
fé ffam á heiðina núna en
áður”, sagði Jóhannes og þyk-
ir miður að þetta haft gerst.
—Kten£ÍM clijDI— SíMfTbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ 111 M sími: 453 5141 %
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir 0 Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA 0 Réttingar Sprautun