Feykir


Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 3

Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 3
31/2002 FEYKIR 3 Fjamám á háskóla- stigi og aukið náms- framboð á svæðinu Núna íyrir helgina var undir- ritaður samstarfssamningur um fjamám á háskólastigi á Norð- urlandi vestra. Samningurinn er á milli Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Há- skóla íslands annars vegar og Farskóla Norðurlands vestra - miðstöðvar símenntunar og Hólaskóla hins vegar. Anna Kristín Gunnarsdóttir forstöðu- maður Farskóla Norðurlands vestra segir að með þessum samningi skapist miklir mögu- leikar íyrir íbúa á svæðinu að afla sér háskólamenntunar. Anna Kristín sagði í ávarpi sínu við undirritun að þetta væri mikill áfangi í sögu Farskólans, sem einmitt um þetta leyti á 10 ára afmæli. Anna Kristín sagð- ist vonast til þess að það yrðu ekki einungis Skagfirðingar sem myndu njóta góðs að fjár- náminu til háskólanáms, heldur allt Norðurlands vestra. Það hefði sýnt sig að mikill áhugi væri hjá fólki að mennta sig og nú myndu opnast enn frekari möguleikar. Þegar væru all- margir í fjamámi á Sauðárkróki og einnig væri aðstaða til náms- ins á Siglufirði og Blönduósi sem fólk nýtti sér. Þá væri fólki í námi úr sveitunum í Húna- vatnssýslu og frá Skagaströnd og Hvammstanga, og stefnt væri að því að koma upp að- stöðu til háskólanámsins á þess- um þéttbýlisstöðum, en eins og er vantaði aðeins upp á fjölda nemenda þar. Forsvarsmenn sveitarfélagsins og nokkurra fyrirtækja og stofnana voru viðstaddir undirskriftina. Næsti áfangi Þverár- fjallsvegar boðinn út Nýlega bauð Vegagerðin út næsta áfanga Þverárfjallsvegar, milli Þverár og Skúfs í Norðurár- dal, 2,4 km vegakafla. Verkinu á að vera lokið að fullu 15. sept- ember á næsta ári. Útboðsgögn eru seld bæði hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki og í Reykjavík fyrir væntanlegan kafla. Tilboð verða opnuð 23. september nk. Þessa dagana er Suðurverk einmitt að leggja bundið slitlag ofan á nýgerðan veg frá Skiða- stöðum að Þverá, en sá vegur er 12 km að lengd. Á þingi SSNV nýlega var samþykkt ákorun til samgönguyfírvalda að leggja á- herslu á að ljúka gerð Þverfjalls- vegar á þamæsta ári. Séð í suðvestur yfir Norðurárdal, Tunguhnjúkur til vinstri, í fjarlægð má greina Vatnsnes. Mynd/hing. Frá undirskrift samningsins á Sauðárkróki. Hrafn Loftsson frá Háskólanum í Reykjavík, Þor- steinn Gunnarsson frá Háskólanum á Akureyri,Anna Kristín Gunnarsdóttir framkvæmda- stjóri Farskóla Norðurland vestra, Skúli Skúlason skólameistari Hólaskóla, Ólafur Proppe frá Kennaraháskólaskólanum ogTryggvi Þórhallsson frá Háskóla íslands. Anna Kristín sagðist vera sannfærð um það að möguleik- ar fólks til framhaldsmenntunar og háskólanáms hefði mikla þýðngu og gerði þau svæði sem byði upp á slíka menntun enn meira aðlagandi til búsetu. Og það væri ekki aðeins að fólk sæktist eftir að mennta sig menntunarinnar vegna, heldur væri líka þónokkur hópur sem hefði gaman af því að afla sér frekari þekkingar, og þessum hóp væri einnig verið að þjóna með auknu námsframboði. Ársæll Guðmundsson sveit- arstjóri Skagafjarðar og fyrrver- andi forstöðumaður Farskóla Norðurlands vestra, sagði að með þessum samningi væru mikil tímamót, bæði upphafs- punktur og endapunktur. Nú væri því markmiði náð sem lagt var upp með þegar Farskólinn var stofnaður, að byggja upp námsframboð á framhalds- skólastigi og með tímanum ná yfir á háskólastigið. Þetta rnark- mið væri nú í höfn og komið að öðrum kapítula í sögu farskól- ans. Slatursalan byrjar a föstudag Allt til sláturgerdar á sérstöku tilboðsverdi komið oggerið góð matarkaup! lUýkomið mikið úrval didas af adidas íþróttafatnaði • HEiÆJifrm®®® Rex bitar 129,- Bujjaló bitar 159,- Food line flögur 119,- Kjöifars 298,- kg. Appelsínur 99,- kg. Gold epli 79,- kg. Blómkál 219,- kg.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.