Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 5
31/2002 FEYKIR 5
Áki 50 ára
Haldið var upp á 50 ára afmæli Bif-
reiðaverkstæðisins Áka um síðustu helgi,
en verkstæðið var opnað 10. september
1952 og er sennilega með eldri
fyrirtækjum i þessari grein í landinu.
Jóhann Ingólfsson núverandi
ifamkvæmdastjóri fyrirtækisins veit ekki
af eldra bifreiðaverkstæði í landinu.
Stofnendur Áka voru þrír talsins:
bræðumir Ámi og Ingólfur Guðmunds-
synir, sem báður eru látnir, og Karl
Helmut Simmrot, þýskur maður sem
fluttist til Bandaríkjanna skömmu eftir
stofnun fyrirtækisins og fór að stunda þar
kappakstur.
I tilefni afmælisins var boðið upp
Tveir af þeini eldri í hópnum,
Jósep Þóroddson og Guðmundur
Helgason.
sýningarhátíð bæði laugardag og
sunnudag. Var aðsókn góð og skiptu
gestir hundruðum að sögn Jóhanns
Ingólfssonar framkvæmdastjóra.
Ingvar Helgason og Bílheimar voru
með kynningar á bílum sem Áki hefur
umboð fyrir. Fulltrúi frá Breyti var á
staðnum til að kyrrna nýjustu
jeppabreytingarnar, Normex kynntí heita
potta og Olísbúðin smávömr fyrir
heimilið, sumarbústaðinn, garðinn og
bílinn. Á laugardagskvöldið var smáteiti
í sýningarsalnum, sem kallaður er
„Ákavíti”, fyrir bæöi núverandi og
fyrrverandi starfsmenn Áka. Þar voru
þessar myndir teknar.
Pálmi Jónsson t.h. nýbúinn að skrifa vísu í gestabókina, næstur honum Kári
Gunnarsson, þá Bragi Hrólfsson og Þröstur Ásgrímsson.
Þeir hafa allir unnið á jarðýtum og þykja góðir á þeim: Hermann Agnarsson,
Friðrik Pálmason og Eyjólfur Sveinsson.
vatni var svo haldið heim á leið
i velheppnaðri ferð, sem lengi
var talað um á eftir eins og
nærri má geta.
Tók aldrei prófið
Þeir vom að læra um svipað
leyti og ég, Jósep Þóroddsson
og Halldór Gíslason. Þeir áttu ár
eftir að námstímanum þegar ég
var búinn, og Olli spurðu mig
hvort mér væri sama þótt ég
biði með það í ár að fara í próf-
ið. Svo við gætum farið allir
þrír saman, en ég fengi mín rétt-
indi samt strax. Ég gekk að því,
en svo gerist það þama um
haustið að ég er fenginn að láni
til bæjarins.
Þá var farið að bora eftir
heitu vatni með bomum sem
Jón Nikódemusson smíðaði.
Jón var reyndar tengdafaðir
minn og það getur vel verið að
hann hafi lagt á ráðin með það
að ég var fenginn á borinn, ég
hef ekki hugmynd um það. En
það vantaði heitt vatn á Krókinn
og lá á við að bora. Ég man að
þetta var heilmikið bras að
byija. Við áttum nú engan bíl á
þessum tíma, eða hitaveitan, og
það var bras við það að koma
bomum og dótinu ffam að Ás-
hildarholtsvatni.”
- Já var þetta ekki ansi erfitt
að bora með ífumstæðu verk-
færi miðað við þá borgræur
sem nú þekkjast?
„Jú þetta var mikið bras.
Meitlarnir sem við notuðum
vom t.d. hátt í hundrað kíló að
þyngd og við þurftum að taka
þá upp alltaf annað slagið til að
brýna þá.”
- En þetta hefúr verið spenn-
andi tími, var þetta ekki eins og
þið væmð að grafa effir gulli?
„Ekki var nú stemningin
þannig fannst mér. Fólk var jú
að koma þama ffam effir og
kíkja á ffamkvæmdir um helg-
ar, og sérstaklega var það þegar
leið á veturinn og voraði, og eft-
ir að við höfðum fengið upp
væna gusu, að þónokkur
straumur af fólk var ffameffir.”
Við Gunni spjölluðum svo-
lítið um þennan tíma hjá honum
í hitaveitunni sem náði yfir ansi
langan tíma. Hann vildi fá mán-
aðarffí á fyrsta árinu til að und-
irbúa sig fyrir sveinsprófið i bif-
vélavirkjunni en fékk það ekki.
Það lá svo mikið á að bora effir
heitu vatni fyrir Króksara. „Þú
getur bara tekið það seinna",
sögðu þeir hjá bænum, og það
dróst og dróst, og varð aldrei.
„Það var einstakt að vinna
hjá þeim bræðmm Olla og
Áma. Ingólfúr var þannig að ef
þú þurfir á einhveijum greiða
að halda, þá var hann boðinn og
búinn hversu mikið sem hann
þurffi að kosta til. Ég held mað-
ur hitti bara einu sinni á lífsleið-
inni mann eins og hann. Ég
kunni líka ákaflega vel við
Áma og það er ekki vafamál að
á þessum fyrstu ámm fyrirtæk-
isins þá var ákaflega mikilvægt
að hafa svona mann eins og
Áma til að halda utan um pen-
ingamálin. Þó að Ámi þætti á-
kaflega aðsjáll, þá kom það
aldrei neitt við mig meðan ég
vann hjá Áka”, segir Gunnar
Helgason, sem fengist hefúr við
margt á lífsleiðinni.
Ákamenn fyrrverandi og núverandi á svipuðu reki: Máni Gunnarsson, Hermann
Halldórsson, Jóhann Ingólfsson og Ingimundur Ingvarsson.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Vatnsleikfimi
Námskeiðin í Endurhæfingarstöð H.S. hefjast í næstu viku.
í boði er vatnsleikfimi og eða æfingar í sal. Einnig verður boðið uppá
sundkennslu ef næg þátttaka fæst.
Hvert námskeið stendur í 8 vikur, leiðbeinendur verða Olga og Ásdís.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 20. sept.
Upplýsingar og skráning í síma 455 4026.