Feykir


Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 2

Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 31/2002 Framsækin skýrsla um framtíð og eflingu Hólastaðar Þann 22. maí í vor skipaði landbúnaðarráðherra nefnd til að gera grein fyrir stöðu Hóla- skóla, Hólum í Hjaltadal og móta tillögur um framtíð skól- ans. Nefndina skipuðu Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, sem var formaður, Vilhjálmur Egils- son alþingismaður og Finnur Ingólfsson Seðlabankastjóri. Skúli Skúlason skólameistari Hólaskóla og Baldur Erlingsson unnu með nefndinni. Nefndin fundaði þrisvar sinnum og vann þess á milli. Eftirfarandi eru helstu niðurstöður nefndarinn- ar: Vaxandi þörf og markaður er, bæði hérlendis og erlendis, fyrir þá starfsemi sem Hólaskóli hefur með höndum. Þetta á bæði við um rannsókna- og þró- unarstarf og kennslu skólans. Þekkingarsetur, eins og Hólar, hefur mikla þýðingu fyrir bú- setu og byggðaþróun í landinu og mikilvægi þessa er ofarlega á blaði í stefnu stjómvalda. Hólaskóli er á margan hátt vel í stakk búinn til að mæta aukinni þörf markaðarins og taka þátt í byggðaþróun. Hér kemur hvað helst til öflug rann- sóknastarfsemi og vel menntað starfslið. Nefndin telur nauðsynlegt að rannsókna- og skólastarf á Hólum verði eflt þannig að kleift verði að mæta vaxandi þörf og kröfum um menntun og fagmennsku sem hér um ræðir. Þetta er afar mikilvægt fyrir viðkomandi atvinnugreinar, byggðir landsins og ekki síður sjálfa starfsemina á Hólum. í ljósi þessarar skoðunar nefndarinnar eru sérstakar til- lögur eftirfarandi: 1) Reglugerð fyrir Hóla- skóla. Lagt er til að haustið 2002 gangi landbúnaðarráð- herra ffá sérstakri reglugerð fyr- ir Hólaskóla skv. 37 gr. laga um búnaðarffæðslu nr. 57/1999 sem marki skýran ramma um á- herslusvið skólans og skipulag starfseminnar, sérstaklega með tilliti til þróunar skólans sem há- skólastofnunar. Jafnffamt verði þar kveðið á um með hvaða hætti Hólaskóla sé heimilt að setja á fót stofhanir og taka þátt í almennum rekstri. 2) Aukin framlög til rann- sókna og kennslu. Lagt er til að gert verði sérstakt heildar- samkomulag um uppbyggingu rannsókna og kennslu við Hóla- skóla. Að samkomulaginu komi Hólaskóli, ráðuneyti og fyrir- tæki. Þetta samkomulag geri ráð fyrir auknum fjárframlög- um til rannsókna og kennslu og að fjármálaráðuneytið sé sam- mála þeim markmiðum sem þar koma ffam. Áætlun um aukin ffamlög hins opinbera miðist annars vegar við áætlaða fjölgun nemenda skólans og hins vegar við sérstök átaks- verkefni. Framlög fyrirtækja sem em aðilar að samkomulag- inu byggjast á rammasamningi í hveiju tilfelli. Samkomulagið verði endurskoðað á árinu 2006 og úttekt gerð á árangri þess. Til að auka skilvirkni rann- sóknaruppbyggingar setji Hóla- skóli á fót sjóð fyrir hverja námsbraut: fiskeldis-, ferða- mála-, og hrossabraut. Gert er ráð fyrir þeim inöguleika að sjóðimir verði sjálfseignastofn- anir og aðilar sem leggja skól- anum fé til rannsókna séu stofn- endur sjóðsins og eigi fulltrúa í stjóm og fulltrúaráði sam- kvæmt skipulagsskrá. Hóla- skóli færi með stjórnarfor- mennsku og ffamkvæmdastjóm hvers sjóðs. 3)Aukin aðstaða. Lagtertil að landbúnaðarráðuneytið standi að nauðsynlegri upp- byggingu kennslu- og rann- sóknaaðstöðu Hólaskóla í sam- ræmi við áætlanir um nemenda- fjölda og eflingu rannsókna. Þessi uppbygging verði eftir því sem tilefni gefi til hveiju sinni framkvæmd í samvinnu við sveitarfélag, aðrar stofnanir og fyrirtæki. Þessi uppbygging miðar að þvi að: 1) á árinu 2003 verði lokið nauðsynlegri uppbyggingu að- stöðu til kennslu og þróunar- starfs á hrossabraut (áætlun fyr- irliggjandi). 2) á árinu 2003 verði fjár- mögnuð og hafin stækkun á kennslu og rannsóknaaðstöðu í gamla fjósinu og í verkstæðis- húsi. Einnig skuli hugað að og metin hagkvæmni ffekari við- byggingar við skólahúsið. Á- ætlun um þetta verk, sem mið- ast við að mæta fjölgun nem- enda og eflingu rannsókna, liggi fyrir í janúar 2003 og stefnt verði að því að verkinu verði að fullu lokið 2005. 3) á árinu 2002 verði hafin uppbygging aðstöðu til fiskeld- isrannsókna og kennslu í hús- næði Fiskiðjunnar Skagfirðings á Sauðárkróki í samvinnu við það fyrirtæki. Um þetta verk- efni verði gert sérstakt sam- komulag sem geri ráð fyrir að verkinu verði lokið 2007. 4) Hólaskóli, Nemendagarð- ar Hólaskóla, landbúnaðarráðu- neytið, Sveitarfélagið Skaga- fjörður og íbúar sameinist um eflingu íbúðabyggðar á Hóla- stað í samræmi við fjölgun nemenda og eflingu starfsem- innar. 5) Aðrar stofnanir á Hólum. Lagt er til að samhliða upp- byggingu Hólaskóla verði starf- semi annarra opinberra stofn- ana á Hólum, svo sem Veiði- málastofnunar, einnig efld. Athugasemd frá Guðjóni Guðmundssyni alþingismanni í síðasta tölublaði Feykis er fjallað ítarlega um ffamboðs- mál í nýja NV-kjördæminu. í kaflanum um ffamboðsmál okkar sjálfstæðismanna er fjall- að með jákvæðum hætti um þá ágætu félaga mína Sturlu, Ein- ar Kr., Einar Odd og Vilhjálm. Umfjöllun lýkur svo með þess- um orðum: „Þá er ótalinn Guð- jón Guðmundsson á Akranesi, stjórnarmaður í Byggðastofn- un. Það hefur ekki farið mikið fyrir Guðjóni að undanfomu, en telja verður þó líklegt að hann muni stefha að endurkjöri á þing.” Vegna þessara orða vil ég láta það k o m a ffam að ég tilkynnti á aðalfundi kjördæm- isráðs s.l. haust að ég myndi sækjast eftir einu af þremur efstu sætum ffamboðslistans. Þetta hefur einnig komið ffam ítrekað í útvarpi, sjónvarpi og dagblöðum. Varðandi það að ekki hafi farið mikið fyrir mér að undan- fömu þá hef ég síðustu mánuði farið vítt og breitt um nýja kjör- dæmið, kynnst þar fjölmörgu fólki og sett mig inn í málefni einstakra byggðarlaga og mun halda því áffam. Ég hef einnig komið ffam í útvarpsviðtölum, skrifað blaðagreinar og sinnt ýmsum störfum sem tengjast þingmennskunni. Þá hefur verulegur tími farið í stjórnar- störf í Byggðastofnun þar sem ég gegni varaformennsku. Á þeim vettvangi hef ég beitt mér og mun beita mér af fullu afli fyrir hagsmunum landsbyggð- arinnar. Ég hef sem þingmaður Vest- urlands lagt mig ffam um að sinna kjördæminu öllu og mun hafa sama hátt í nýju kjördæmi verði ég til þess kjörinn. Það er ekki minn stíll að beija bumbur og hafa hátt. Það heftir gefist mér ágætlega þau 11 ár sem ég hef setið á þingi. Á þessu tímabili hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins í Vestur- landskjördæmi aukist jafnt og þétt úr 24,2% í 33,3%. Bestu kveðjur til lesenda Feykis. Guðjón Guðmundsson. Frá ritstjóra Feykir biðst forláts á óvar- káru orðalagi í greininni í síð- asta blaði. Einhverra hluta vegna hefur það farið framhjá blaðamanni að Guðjón Guð- mundsson gefiir kost á sér í eitt af þremur efstu sætunum. Það er líklega vegna hógværðar þingmannsins sem undirritaður hefur ekki veitt honum meiri eftirtekt hingað norður, en hitti hann þó reyndar á Sauðárkróki á dögunum. Fyrstu kynnin voru ágæt og fær Guðjón bestu ósk- ir um hagstæðan byr í komandi baráttu fyrir þingsæti í kjör- dæminu. Þórhallur Ásmundsson. Nýr diskur frá Geira Geirmundur Valtýsson er að senda ffá sér nýjan geisladisk núna í haust. Á honum eru 12 glæný lög og eru flytjendur nokkrir af kunnustu söngumm og hljóðfæraleikurum landsins, en Geirmundur syngur sjálfur sex lög á disknum, sem áætlað er að komi út um miðjan næsta mánuð, en það gæti þó dregist ffam eftir mánuðinum, að sögn Geirmundar. Það em þijú ár síðan seinasti geisladiskur kom út með Geir- mundi og fékk sé feikna góðar viðtökur. „Ég ákvað að skella mér í þetta núna og það verður gaman að vita hvemig þetta kemur út. Það er harka í brans- anum og ekki hægt að ganga að neinu gefnu”, segir Geirmundur og nú fer væntanlega að styttast í að ný lög ffá Geirmundi fari að heyrast. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra Kemur út á miðvikudögum. Utgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstig 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágiistsson og Stefán Amason. Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Seming og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.