Feykir - 16.10.2002, Síða 3
35/2002 FEYKIR 3
'jtáitð
Enn og aftur
lambakjötsútsala
kr. kg. V a J
(ath takmarkaðar birj
Höfðingleg gjöf
til þjálfunarstöðvar
Heilbrigðisstofnunar
Á dögunum barst Heil-
brigðisstoinuninni á Sauðár-
króki höfðingleg gjöf ífá fyrr-
um bæjarstjórahjónum á Sauð-
árkróki, Rögnvaldi Finnboga-
syni og Huldu Ingvarsdóttur,
sem þau gáfu til minningar um
son sinn Finnboga sem lést
langt fyrir aldur fram í blóma
lífsins 14. október 1995. Gjöf-
in er ein milljón króna og ætl-
uð til kaupa á tækjum í endur-
hæfingarstöð Heilbrigðisstofn-
unarinnar.
Finnbogi hefði orðið 50 ára
30. september sl. Þann dag var
haldin athöfh á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðis-
stofhunarinnar Birgis Gunnars-
sonar, þar sem gjöfin var af-
hent. Þau hjón Rögnvaldur og
Hulda gátu ekki verið viðstödd,
þar sem að Rögnvaldur hafði
slasast nokkrum dögum áður,
en sem betur fer lítillega. í
þeirra stað var mættur Stefán
Guðmundsson fyrrum bæjar-
stjórnar- og alþingismaður.
Stefán mælti nokkur orð, gat
þess að þau hjón væru nú á-
byggilega með hugann fyrir
norðan og minntist Finnboga
heitins í nokkrum orðum. Þar
kom fram að Finnbogi hafi
alltafverið mikill Skagfirðing-
ur og effir að hann flutti úr
bænum hafi leiðin oft legið á
Krókinn í fríum og greinilegt
hvert hugurinn leitaði.
Birgir Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar þakkaði höfð-
inglega gjöf og sagði hana
koma i mjög góðar þarfir við
að byggja upp endurhæfingar-
þjónstuna sem margir nytu
góðs af. Birgir bað fyrir bestu
kveðjur til þeirra Rögnvaldar
og Huldu.
Frá afhendingu gjafarinnar frá fyrrum bæjarstjórahjónum á Sauðárkróki til minningar um
son þeirra. Það var Stefán Guðmundsson sem aíhenti Birgi framkvæmdastjóra ávísunina.
Fjölbreytt vetrardagskrá hjá
Tónlistarfélagi Skagafjarðar
Tónlistarfélag Skagafjarðar
er nú að hefja sitt annað starfsár.
Á síðasta ári stóð Tónlistarfé-
lagið fyrir sjö tónlistarviðburð-
um sem voru vel sóttir og vilj-
um við þakka kærlega fyrir
góðar viðtökur. Á komandi
starfsári bætum við um betur og
stöndum fyrir átta tónleikum og
þeir fyrstu verða nú í október.
Dagskráin verður fjölbreytt og
ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi. Dagskráin verður sem
hér segir:
20. október kemur Rúss-
neska harmonikudúóið Jurí og
Vadim Fedorov. Þessir tviburar
voru orðnir vel þekktir hér á
landi fyrir snilldartilþrif á nikk-
umar sínar og einkar líflega og
skemmtilega framkomu. Tón-
leikamir verða í félagsheimilinu
Ljósheimum kl. 16 og verða
haldnir í samvinnu við Félag
eldri borgara í Skagafirði. Þessa
tónleika ættu unnendur góðrar
harmonikkutónlistar ekki að
láta fram hjá sér fara.
í nóvember er von á gamla
góða Rió tríói og verður Skaga-
Qörður eini viðkomustaður
þeirra á landsbyggðinni. Þeir
em að fara að gefa út safndisk
með gömlu góðu Ríólögunum
sem við þekkjum öll svo vel og
höfúm margoft sungið með. Á
dagskrá tónleikanna verða
gömlu góðu lögin og er því von
á rifandi stemningu. Athugið að
þetta verða einu tónleikar þeirra
á landsbyggðinni svo ekki
missa af þeim.
í desember kemurTríó Sig-
urðar Flosasonar. Hann ásamt
Gunnari Gunnarssyni hélt mjög
eftirminnilega tónleika fyrir síð-
ustu jól hér í Sauðárkrókskirkju
og fékk þá feiknagóðar viðtök-
ur. Að þessu sinni koma aðrir
tónlistarmenn með honum en
eins og hans er von og vísa
verða þessir tónleikar ekki síðri.
Tónleikar janúarmánaðar
hafa ekki verið endanlega á-
kveðnir en verið er að skoða tvo
möguleika. Þó getum við lofað
að báðir kostimir em afar góðir.
I febrúar ætlar Thomas R.
Higgerson píanóleikari að leika
fyrir okkur klassísk meistara-
stykki. Eins og flestir vita þá
hefúrThomas Higgerson starf-
að hér um margra ára skeið sem
undirleikari Karlakórsins Heim-
is og einnig við Tónlistarskóla
Skagafjarðar, en hann er líka
metnaðarfúllur og mjög svo at-
hyglisverður listamaður og vilj-
um við i Tónlistarfélaginu
hvetja Skagfirðinga til að fjöl-
menna á tónleikana.
1 mars er svo von á Önnu
Sigríði Helgadóttur með
gospelkór Fríkirkjunnar í
Reykjavík. Skagfirðingar
þekkja eða kannast vel við
Önnu Siggu en hún var söng-
kennari hér fyrir nokkrum
árum. Hún hefúr haldið tónleika
hér nokkrum sinnum á undan-
fornum ámm við húsfylli í
hvert sinn. Hér kemur hún með
kórinn sinn og tekur að sjálf-
sögðu lagið líka.
I apríl fáum við karlakvar-
tettinn „Út í vorið”. Ætlunin er
að þeir verði fyrsta atriði í Sælu-
viku sunnudaginn 27. apríl.
Þessi ffábæri söngkvartett hefúr
starfað í nokkur ár og vakið at-
hygli fyrir vandaðan söng. Síð-
asti viðburður starfsársins verð-
ur í maí, en þá heimsækir okkur
jasstríóið B3 með Agnar Má
Magnússon jasspíanista i broddi
fylkingar.
Við viljum vekja athygli á
því að hægt er að panta áskrift-
arkort hjá Irisi Baldvinsdóttur í
síma 847 5798 eða hjá Lindu
Leu Bogadóttur i síma 861
2610 en einnig verða þau seld
við inngang að tónleikum. Verð
áskriftarkorta er kr. 8000 og
gildir það á alla tónleika starfs-
ársins. Almennt verð á tónleika
verður hinsvegar kr. 1.500 og
kr. 1.000 fyrir félaga í Tónlistar-
félaginu.
Við vonumst að sjálfsögðu
til að geta staðið við þessa dag-
skrá, en höfúm þó fyrirvara um
breytingar sem við munum þá
auglýsa með góðum fyrirvara.
Allir tónleikar verða auglýstir
nánar síðar. Góða skemmtun.
llar REVLON vörur
i0% afsláttur É
GÓD TILBOD
Food Line safi 1,5 Itr. 89,-kr.
Camembert 219,-kr.
Brokkolí 229,-kg
Blómkál 179,-kg