Feykir - 23.10.2002, Blaðsíða 8
23. október 2002, 36. tölublað, 22. árgangur.
Haukur Hauksson ásamt starfsfólki í pökkun í sláturhúsinu
á Sauðárkróki.
Rússneskur túlkur
í sláturhúsinu
Þegar ráðnir voru tæplega 20
útlendingar til starfa við slátrun
hjá Kaupfélagi Skagfírðinga i
haust, þar á meðal nokkrir
þeirra frá Austur Evrópu, þá
hljóp á snærið hjá stjómendum
sláturhússins, að í hópi þeirra
sem óskaði eftir vinnu var
Haukur Hauksson, sem gegnt
hefúr starfi fréttaritara útvarps-
ins í Moskvu.
Haukur var á fúllu við að
pakka kjöti þegar blaðamaður
Feykis leit til hans fyrir helgina.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilega tilbreyting. Hér
eru skemmtilegir samstarfsfé-
lagar, það er mikið að gera, enda
er hér framleitt gæða lambakjöt,
sem m.a. verður selt til Italíu
núna í haust. Mér skilst að þang-
að fari stór sending. Það er ekki
vafi að hér er verið að gera mik-
il verðmæti og nýta gott hráefni
til hagsbóta fyrir efnhagskerfi
þjóðarinnar. Og þessu er öllu vel
stjómað hjá Agústi sláúirhús-
stjóra. Nú síðan em héma Rúss-
ar, Pólveijar, Serbar og fólk frá
ffeiri þjóðum, og ég hef verið að
leiðbeina þessu fólki með ís-
lenskuna. Ég vona að það hafi
komið að gagni og hjálpað
þessu fólki að laga sig að samfé-
laginu. Með mér á gisthúsinu
em Frakki, Spánveiji, tveir Sví-
ar og tveir Islendingar, allt úr-
vals fólk. Þetta hleður mann upp
að skipta svona um vettvang í
smátíma”, segir Haukur Hauks-
son.
Aðspurður um ástæðuna fyr-
ir því að hann réð sig til vinnu á
sláturhúsi norður í landi, segir
Haukur að það hafi verið vegna
þess að daufúr tími er i ferða-
þjónustunni á þessum tima, en
hann hefúr undanfarin tíu ár
rekið ferðaþjónustu bæði hér og
í Rússlandi. „Þetta em einstak-
lingsferðir sem ég skipulegg. Ég
tek á móti efhuðum Rússum
hingað til lands og hingað hafa
komið með minni milligöngu,
bankastjórar, ríkiserindrekrar og
fleiri ríkir „austantjaldsmenn”.
Ég hef líka farið með íslending-
um til Moskvu og Pétursborgar
og túlkað fyrir ferðahópa”, segir
Haukur Hauksson, en hann hef-
ur í tvígang sinnt fréttaþjónustu
fyrir Ríkisútvarpið þegar stórir
viðburðir hafa átt sér stað í
Rússlandi. Það var 1991 þegar
byltingin var gerð og steypa átti
Gorbasjev af stóli og í seinna
skiptið 1996 þegar Jeltzin leysti
upp þingið og sendi það heim.
forsetans til ungra
Ungmenni taka á móti forsetanum á Laugarbakka.
Hvatning
í heimsókn Forseta íslands í
Húnavatnsþing í síðustu viku var
á hátíðarsamkomunum í sitt-
hvorri sýslunni afhentar viður-
kenningar til ungmenna, hin
svokallaða „Hvatning Forseta Is-
lands til ungra ísl'endinga.” For-
setinn afhenti 28 ungum Hún-
vetningum þessa viðurkenningu.
A hátíðarsamkomu í Félags-
heimilinu á Hvammstanga
mánudaginn 14. október voru
afhentar viðurkenningar til eftir-
talinna: Aron Stefán Olafsson
Reykjum I Hrútafirði, er gæddur
góðum námshæfileikum og hef-
ur með dugnaði eljusemi og já-
kvæðu hugarfari náð sér eftir al-
varlegt slys sem hann lenti í fyr-
ir nokkru. Baldur Hrafn Bjöms-
son Hvammstanga, hefúr sýnt
mikinn dugnað og góðan árang-
ur í námi og verið í fararbroddi i
félagsstarfi og virkni í kirkju-
starfí. Freydís Jóna Guðjónsdótt-
ir Hvammstanga, hefúr sýnt
mikinn dugnað og góðan árang-
ur í námi. Guðrún Eik Skúla-
dóttir Tannstaðabakka, er bæði
góður námsmaður og iþrótta-
maður auk þess að vera gædd
góðum tónlistar- og sönghæfi-
leikum. Helga Margrét Þor-
steinsdóttir Reykjum II Hrúta-
firði, er góður námsmaður og
efnilegur íþróttamaður, hefúr
verið Islandsmeistari í sínum
aldursflokki í nokkmm greinum
frjálsra íþrótta. Hmnd Jóhanns-
dóttir Gauksmýri, er margt til
lista lagt og hefúr sýnt mikinn
dugnað í námi, íþróttum og tón-
list auk þess að vera mjög virk í
félagsstarfi skólans. Kolbrún
Ama Bjömsdóttir Hvamms-
tanga, hefúr sýnt mikinn kjark
og dugnað við að takast á við
ýmsa erfiðleika í lífinu. Sigrún
Soffia Sævarsdóttir Laugar-
bakka er efhilegur námsmaður
og mikil hannyrðakona. Sigur-
björg Þorsteinsdóttir Hrútafirði
er góður námsmaður og hefúr
náð ágætum árangri í fijálsum í-
þróttum og körfúbolta og m.a.
verið kosin íþróttamaður Vestur-
Húnavatnssýslu. Sigurður Helgi
Oddsson Hvammstanga er góð-
ur námsmaður og fjölhæfúr í-
þróttamaður, einnig gæddur
miklum tónlistarhæfileikum.
Sonja Líndal Þórisdóttir Víðidal
er gædd miklum náms- og tón-
listarhæfileikum og hefúr auk
þess sýnt mikla hæfni í hesta-
íþróttum. Sylvía Hera Skúladótt-
ir Hvammstanga hefúr sýnt góða
náms- og tónlistarhæfileika auk
þess að vera góður íþróttamaður.
Þorgrímur Guðni Bjömsson
Hvammstanga hefúr sýnt góða
náms- og iþróttahæfileika, dugn-
að og jákvæðni.
A hátíðarsamkomu í íþrótta-
húsinu á Blönduósi þriðjudaginn
15. október var eftirtöldum veitt-
ar viðurkenningar: Dagrún Jón-
asdóttir Blönduósi hefúr náð
góðum árangri í námi, einkum í
stærðfræði og látið að sér kveða
í félagsmálum og íþróttum. Elí-
as Kristinn Sæmundsson Skaga-
strönd hefúr sýnt mikinn dugnað
og jákvæðni í baráttu sinni við
erfiðan sjúkdóm. Guðbjörg Þor-
leifsdóttir Blönduósi hefúr sýnt
mikla hæfileika og dugnað við
að takast á við ýmsa erfiðleika í
lífinu. Gunnar Már Sæmunds-
son Skagaströnd, hefur eins og
bróðir hans verið einstaklega
duglegur og jákvæður í baráttu
við erfiðan sjúkdóm. Jóhann
Siguijón Jakobsson Blönduósi
er efhilegur námsmaður, hug-
myndaríkur og góður íþrótta-
maður, hefúr einnig sýnt
skemmtilega hugkvæmni við
viðgerðir á hjólum og vélum.
Jóna Gréta Guðmundsdóttir
Skagaströnd hefúr sýnt góða
námshæfileika og dugnað í fé-
lagsstörfúm. Kristmundur Stef-
án Einarsson Grænuhlíð hefur
sýnt mikla námshæfileika,
dugnað m.a. við bústörfin og
verið skólafélögum sínum til
fyrirmyndar í hvívetna. Lilja
María Evensen Blönduósi hefúr
náð góðum árangri í námi og
tónlist og sýnt forystuhæfileika í
félagsmálum. Lillý Rebekka
Steingrímsdóttir Litlu-Giljá hef-
ur sýnt að hún býr yfir miklum
tónlistarhæfileikum og leikur
m.a. á píanó og þverflautu. Odd-
ur Aron Valdimarsson Skaga-
strönd hefúr sýnt prúðmennsku,
mikinn dugnað og einarðan vilja
til að kljást við erfiðleika. Ólaf-
ur Freyr Birkisson Höllustöðum
er duglegur námsmaður og
áhugasamur íþróttamaður og
hafði m.a. forustu um þátttöku í
knattspymumóti. Rúnar Þór
Njálsson Blönduósi er ágætur
námsmaður, hefúr verið jákvæð-
ur og duglegur við að takast á
við erfiðleika sem fylgja fotlun
hans. Rúnar Aðalbjöm Péturs-
son Hólabæ er gæddur góðum
námshæfileikum og er prúður og
kurteis, öðrum góð fyrirmynd.
Sigurdís Sandra Tryggvadóttir
Artúni, er góður námsmaður og
gædd miklum tónlistarhæfileik-
um. Stefán Öm Gislason
Blönduósi hefúr sýnt mikla
hæfileika, er hugmyndaríkur og
stendur sig vel í öllu félagsstarfi.
...bflar, tryggingar,
bækur, ritföng,
framköflun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNcJABS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 453 6950
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391