Feykir


Feykir - 16.07.2003, Blaðsíða 1

Feykir - 16.07.2003, Blaðsíða 1
Fréttablaðið á Norðurlandi vestra rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Fomleifarannsóknin á Hólum Húsaskipan í Hólaprenti verður stöðugt skýrari Hálfur þriðji tugur sérfræð- inga og nema, frá sex löndum, vinnur nú við Hólarannsókn- ina, fomleifauppgröft á Hólum og rannsóknir á nokkmm öðr- um stöðum í Skagafirði. Rannsóknin á Hólum í sumar hefúr aðallega beinst að Hóla- prentinu og að sögn Ragnheið- ar Traustadóttur forleifafræð- ings sem stjómar rannsóknun- um, er húsaskipan þar stöðugt að skýrast. Hluti húsanna var grafin upp síðasta sumar og þegar rannsóknin hélt áfram í júlíbyrjun, komu strax á fyrstu dögunum í ljós prentstafir með gotnesku letri, sem staðfestu að Hólaprentið hafi verið þama um 1720-'30. Næstum daglega hafa einhverjir prent- stafír fúndist og eru þeir nú orðnir um 60 talsins. Á Hólum verður einnig haldið áffam að kanna hús sem fannst í gamla ösku- haugnum síðasta sumar, en haugurinn er þykkur og því alldjúpt niður á það hús. I síð- ustu viku var unnið að ffum- könnun á gamla þingstaðnum í Hegranesi. 1 gær, þriðjudag, hófúst síðan að nýju rannsókn- ir á foma kirkjugarðinum í Keldudal, sem fannst á síðasta hausti. Undir lok mánaðarins verður síðan farið niður í Kolkuós til að bjarga menn- ingarminjum sem em að hrynja út í sjó. Næsta sumar verða þar allviðamiklar rann- sóknir, þar sem meðal annars munu koma að danskir neðan- sjávarfonleifafræðingar, en kafa verður í ósinn til að rann- saka menjar sem fallið hafa í sjó ffam. Hólarannsóknin er mjög umfangsmikil og mun hún standa ffam í miðjan næsta mánuð þetta sumarið. Meðal þess sem eftir er að grafa upp em göngin sem lágu ffá bæjar- húsum til kirkju, en hluti þeirra þar sem grafið verður út ffá, var staðsettur á síðasta sumri. Álit félagsmálaráðuneytis vegna bókunar Ágústar Þórs Valdiinar ekki vanhæfur vegna hjúskapartengsla Félagsmálaráðuneytið álít- ur að formanni bæjarráðs Blönduóssbæjar sé heimilt samkvæmt sveitarstjómarlög- um og samþykkt um stjóm og fundarsköp Blönduóssbæjar að gegna því embætti sem hann hefúr verið kjörinn til. Ákvæði 19. gr. sveitarstjóm- arlaga gilda um vanhæfi bæj- arráðsmanna og ber for- manninum að víkja við með- ferð og afgreiðslu mála er varða hann eða nána vensla- menn hans persónulega en ekki verður talið að slíkir hagsmunaárekstrar stafí af hjúskapartengslum hans við sviðsstjóra fjármála- og stjómsýslusviðs sveitarfélags- ins að hann sé af þeim sökum almennt vanhæfúr til setu í bæjarráði. Bæjarráð Blönduóss leit- aði umsagnar ráðuneytisins í kjölfar þess að Ágúst Þór Bragason lagði ffam bókun á fúndi ráðsins 26. júní sl. þar sem hann hafði uppi efasemd- ir um að til vanhæfis gæti komið hjá annaðhvort Valdi- mar Guðmannssyni formanni bæjairáðs eða Olöfú Pálma- dóttur sviðsstjóra fjármála- og stjómsýslusviðs vegna hjú- skapartengsla þeirra, en þau em hjón. Ráðuneytið kemst sem sagt að þeirri niðurstöðu að Valdimar sé almennt ekki vanhæfúr sem formaður bæj- arráðs þrátt fýrir þessi tengsl við sviðsstjórann. Það getur verið gott að hvíla sig í unglingavinnunni. Bíl stolið í Varmahlíð Bíl var stolið í Varmahlíð aðfaranótt mánudagsins. Ökumaðurinn. ungur piltur, komst þó ekki nema áleiðis út á Sauðárkrók, þar sem að bíllinn varð bensínlaus á leiðinni. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki var rnikið líf í bænum á fostudagskvöld, talsverð ölvun og lentu tveir í fangageymslu eftir átök. Á laugardag vom aðrir tveir teknir gmnaðir um ölvun við akstur. Þá vom allmargir stöðvaðir um helgina fyrir of hraðan akstur, í umferðareftir- liti lögreglunnar. KTengif! eU0 Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Æa bílaverkstæði simi: 453 5141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 ^Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerdir Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.