Feykir - 16.07.2003, Qupperneq 2
2 FEYKIK 25/2003
Þakkir frá Sveini
Þakka góðan söng, gjafir, ljóð
og heillaóskir á 70 ára afmælinu
mínu hinn 27. júní 2003 í tón-
listahúsinu Ymi Reykjavík. Af
því tilefni eru sérstakar þakkir
til: Söngsveitin Drangey, söng-
stj. Snæbjörg Snæbjamadóttir
Hljómabræður, söngstj. Björg-
vin Þ. Valdimarsson tónskáld
Karlakór Reykjavíkur, eldri,
söngstj. Kjartan Siguijónsson
Einsöngur og tvísöngur: Ragna
Skagijörð, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Sigmundur og Gunnar
Jónssynir, Kristín R. Sigurð-
ard., Eiríkur Hreinn Helgason,
skagfirski tenórinn Óskar Pét-
ursson sem stýrði veislunni af
sinni alkunnu snilld.
Björk og Gylfi á Gásum, systr-
um mínum, fjölskyldu minni og
frændum þakka ég tilbúin
veislufong og ennfremur öllum
þeim 270 manns sem komu og
gerðu mér kvöldið ógleyman-
lega skemmtilegt.
Stefán Ingi veitingamaður fær
hrós fyrir hraðar glasafyllingar.
Látum flakka lifúm glöð,
laus frá skakkaföllum
Glaður smakka góðan mjöð,
gjafir þakka öllum
Það em ekki skagfirsk ský
er skyggja birtu manna
Lengi get nú lifað í,
ljósi minninganna.
Sveinn Skagfjörð Pálmason.
Helga Rós ásamt félögum sínum í Óperunni í Stuttgart sem ætla að syngja og spila með
henni á stórtónleikunum í Miðgarði um verslunarmannahelgina.
Þrír sigrar í röð
Stórtónleikar í Miðgarði
Tindastólsmenn hafa staðið
sig mjög vel í 2. deildinni að
undanfömu, hafa unnið þijá
síðustu leiki og em nú komnir
með 13 stig eftirtíu leiki.
Tindastóll bar sigurorð að
Völsungum á Króknum í
gærkveldi, 2:1, með mörkum
þeirra Kevin Barr og Krist-
mars Bjömssonar í fyrri
hálfleik. Húsvíkingarnir
minnkuðu muninn undir lokin.
Stólamir lögðu ÍR-inga á
Króknum sl. föstudagskvöld
2:0 með glæsilegum mörkum
Petrovich, þar áður sigmðu
þeir KS á Siglufirði 2:1.
Þann 2. ágúst n.k. verða
haldnir ópemtónleikar í Mið-
garði. Það er skagfirska ópem-
söngkonan Helga Rós Indriða-
dóttir sem syngur ásamt félög-
um sínum frá ópemhúsinu í
Stuttgart. En þeir em tenórinn
Carsten Súss, Motti Kastón,
baritón og píanóleikarinn
Robin Engelen. María Ágústs-
dóttir mun sjá um að kynna at-
riðin. Þau ætla að flytja atriði
úr þekktum ópemm s.s.
Habanemna og Nautabanaarí-
una úr Camien, Aríur og dúett
Rodolfo og Mimi úr La
Boheme, aríu rakarans úr Rak-
aranum í Sevilla, trio úr Leður-
blökunni, Nessun Donna úr
Turandot og Una fúrtiva
lagrima úr Ástardrykknum.
Helga Rós mun síðan flytja
nokkur íslensk lög.
Helga Rós stundaði nám í
Stuttgart og hefúr verið fast-
ráðin við Operuhúsið í Stutt-
gart síðastliðin fjögur ár. Óp-
emhúsið í Stuttgart er með
þekktari óperuhúsum og hlaut
síðastliðið ár í fjórða sinn til-
nefninguna “Ópemhús ársins”
af tímaritinu “Opemwelt.
Helga Rós hefúr m.a. sungið
hlutverk Freyju í Rínargulli
Wagners, Zerlinu í Don
Giovanni og Antóníu í Ævin-
týmm Hoffmanns, auk þess
hefúr hún sungið sálumessu
Verdi og Mozart svo og 9. sin-
fóniu Beethovens svo eitthvað
sé nefnt. Fyrir þá sem ná
sendingum sjónvarpsstöðvar-
innr ARTE verður upptaka á
Rínargulli Wagners send út
þann 6. ágúst kl. 19.45 að ís-
lenskum tíma.
Það var að áeggjan Magn-
úsar Sigmundssonar hjá Ævin-
týraferðum að ákveðið var að
halda tónleikana og er hann að-
alsfyrktaraðili tónleikanna á-
samt Sveitarfélaginu Skaga-
firði og Tónlistarfélagi Skaga-
fjarðar.
Carsten Suss tenór, hefúr
sungið mjög víða. Hann hefúr
sungið í Vín, Prag, Ameríku og
Graz þar sem hann söng hlut-
verk Tamíno í Töfraflautunni.
Hann var fastráðinn bæði við
ópemna í Kiel og Semperóper-
una í Dresden þar sem hann
söng m.a. Wenzel í Seldu
brúðinni, Don Ottavio í Don
Giovanni, Pedrillo í Brottnám-
inu úr kvennabúrinu og Davíð
í Meistarasöngvuranum frá
Niimberg. í Stuttgart syngur
hann Pedrillo í “Brottnáminu”
og Jaquino í Fidelo eftir Beet-
hoven.
Motti Kastón baritón, fædd-
ur í ísrael réðist að ópemnni í
Stuttgart 1991 eftiraðhafa lok-
ið námi frá skóla Metropolitan
ópemnnar og unnið Pavarotti
keppnina 1989. Hann hefúr
sungið flest leiðandi hlutverk
síns fags í Stuttgart, við
Metropolitan ópemna,
Semperóperuna í Dresden,
Monpellier og víðar m.a.
Greifann í Brúðkaupi Fígarós,
Wolfram í Tannháuser,
Germont í La Traviata, Silvio i
Pagliacci, Fígaro í Rakaranum,
Ottone í Krýningu Poppeu, tit-
ilhlutverkið í L’Orfeo eftir
Monteverdi, Marcello í
Bohéme og Rodrigo í Don
Carlo.
Robin Engelen, píanó, er
ungur og upprennandi stjóm-
andi sem starfað hefúr sem
undirleikari og stjómandi við
ópemna í Stuttgart síðan 1999.
Hann nam hljómsveitarstjóm
við tónlistarháskólann í Karls-
mhe hjá Wolf-Dieter
Hauschild og síðar hjá Gúnther
Wand. Hann hefiir starfað
víða með hljómsveitum bæði
sem píanisti og stjómandi s.s.
Sinfóníuhljómsveitinni í Halle
og Fílharmóníuhljómsveitinni
í Stuttgart. Hann er einn stofn-
enda hljómsveitarinnar „-
Klangwerk” og aðalstjómandi
hennar. Árið 2002 stjómaði
hann lokatónleikum hinnar al-
þjóðlegu Schönberg viku i
Brússel.
Næsti Feykir kemur
út 30. júlí.
Aðalheiður Amórsdóttir frá Sauðárkróki hefúr alla tíð verið dugleg að taka þátt í kvenna-
hlaupinu og verið með frá upphafi þótt hún hafi verið stödd erlendis á kvennahlaupsdaginn.
Hún var t.d. á Krit fyrir tveimur ámm og að áeggjan hennar tóku 18 konur þar þátt í hlaupinu.
21. júní sl. var Aðalheiður stötdd í Toskana á Ítaliíu og hljóp þar ásamt sínu fólki. Hún er lengst
til hægri á myndinni, þá tengdadóttirin Ingibjörg Hilmarsdóttir, dætumar Ama Rún og Inga
Óskarsdætur og í vagninum er litla Sigrún Hekla Sigmundsdóttir, dóttir Ömu. Hlaupið var í 40
stiga hita, hitbyrlja gekk yfír Ítalíu þessa daga.
Ól láð f'réttablað á Norðurla ndi \ estra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftarverð 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.