Feykir - 19.11.2003, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 40/2003
Skagafjörður
Frá Sveitarfélaginu
Skagafirði
Aðalskipulag Skagafjarðar
Nú stendur yfir vinna við gerð aðalskip-
ulags Skagafjarðar. Aðalskipulag er skipu-
lagsáætlun fyrir sveitarfélagið þar sem fram
kemur stefna sveitarstjómar um land-
notkun, samgöngu- og þjónustukerfi,
umhverfismál og þróun byggðar á minnst
12 ára tímabili.
Aðalskipulag er ekki fonn sem vond
yfirvöld vilja þröngva yfír þegnana, heldur
tæki þeirra sjálfra til að móta umhverfi sitt.
Aðalskipulaginu er ætlað að lýsa sveitar-
félaginu íyrir íbúum þess og líka út á við og
verður hluti af ímynd sveitarfélagsins.
Lýðræðisleg vinnubrögð em áskilin í
skipulagslögum og að allir eigi aðgang með
sjónarmið sín.
Nauðsynlegt er við gerð aðalskipu-
lagsins að sem flestir konri að gerð þess og
mikilvægt er að fá stofnanir, íyrirtæki,
félög og einstaklinga til samstarfs um
stefnumótunina. Hvað er það sem einkenn-
ir byggðaþróunina í Skagafirði? Hver er
staða Skagafjarðar, sérstaða og ímynd?
Hver em sóknarfærin og hvaða bresti þarf
að berja í? Víst er að ffamtíðin kemur, en
emm við tilbúin til að taka á móti henni,
mótar hún okkur eða getum við mótað
hana?
Nú hafa ráðgjafar Skipulags - og bygg-
ingamefndar, Lendisskipulag ehf, gert aðra
tillögu skipulagsins til nefndarinnar.
Tillagan er nú til umfjöllunar i nefndinni.
Sú umfjöllun nrun leiða til þriðju tillögu
sem fara mun út í almenna kynningu í
sveitarfélaginu. Við viljum hvetja alla til að
kynna sér þessa vinnu og hafa á hana áhrif
með skoðunum sínum og sjónanniðum.
Byggðakvóti
Sveitarfélagið Skagafjörður fékk nýlega
til umsagnar skiptingu byggðakvóta sem
Sjávarútvegsráðaneytið úthlutar. I hlut
skagfirskra báta komu 20,7 tonn.
Byggðaráð gerði þá tillögu til sjávar-
útvegsráðaneytis að þessum aflaheimildum
verði skipt milli fiskiskipa á gmndvelli 3.
gr. reglugerðar nr. 596/2003 þó þannig að
aðeins koma til greina fiskiskip minni en 50
bmttótonn. Sjávarútvegsráðaneytið hefur
samþykkt þessa tilhögun.
Menningarhús
Skipaður hefur verið starfshópur um
menningarhús í Skagafirði. í hópnum sitja
tveir fulltrúar menntamálaráðaneytisins og
fulltrúar Skagafjarðar eru þeir Gísli
Gunnarsson, Ársæll Guðmundsson og
Gunnar Bragi Sveinsson. Áskell Heiðar
Ásgeirsson verður ritari hópsins og
hópurinn mun hittast á næstu dögum.
Hugmyndir um uppbyggingu menn-
ingarhúsa í Skagafirði verða kynntar á
næstu vikum.
Fréttaskot frá Árskóla
í stómm skóla er alltaf mikið um að vera
og nú á haustmánuðum hefur megin-
áherslan verið lögð á að vinna að eineltis-
málum undir merkjum Svíans Dan
Olweusar. Starfsmenn skólans funda að
jafnaði hálfsmánaðarlega ásamt fúlltrúum
frá sundlaug, íþróttahúsi, félagsmiðstöð og
skólabílstjórum. Að undanfömu hafa for-
eldrar og nemendur komið saman í
skólanum og horft á myndbönd um einelti
og afleiðingar þess. Auk þess em umsjón-
arkennarar að vinna með nemendum innan
bekkjanna að bættum samskiptum, samdar
hafa verið eineltisreglur í öllum bekkjum
og haldnir em bekkjarfundir.
Vikuna 24. - 28. nóvember verður haldin
þemavika i Árskóla, og nær hún til allra
árganga. Nemendum verður skipt upp í
vinnuhópa sem vinna að fjölbreyttum
viðfangsefiium sem tengjast þemanu „heil-
brigð sál í hraustum líkama“.
í tengslum við þemavikuna verða settar
fréttir á hverjum degi á heimasíðu skólans
svo foreldrar og aðrir geti fylgst með því
sem er í gangi. Síðasta dag þemavikunnar
munu nemendur og starfsfólk skólans
ganga fylktu liði fi'á skóla að kirkju strax að
morgni kl. 8:10 og mynda friðarkeðju, en
það er orðinn árlegur viðburður i upphafi
aðventu. Friðarljós er látið ganga á milli
manna frá kirkju, upp kirkjustíginn og að
krossinum á Nöfúnum og ljós tendrað á
honum þegar friðarljósið er komið alla leið
upp.
Þemavikunni mun síðan ljúka með
sýningu fýrir foreldra og aðra gesti föstu-
daginn 28. nóvember.
Á foreldradaginn í síðustu viku voru
foreldrar nemenda í 2., 4., 7. og 10. bekk
beðnir um að svara nokkrum spumingum
um viðhorf sitt til skólans. Þeir svöruðu
beint á tölvur í tölvuvemm skólans og lágu
niðurstöður könnunarinnar fyrir þegar að
henni lokinni. Þær eru birtar á vef skólans.
Fréttasíða skólans er orðin mjög virk og
það segir því í raun meira en mörg orð að
skoða vef skólans og fylgjast með fjöl-
breyttu skólastarfi Árskóla þar.
Slóðin er www.arskoli.is .
Arndís Ólöf í
úrslit í „Idolinu“
Amdís Ólöf Víkingsdóttir
frá Blönduósi er kominn áffarn
í keppninni fdol-Stjömuleit á
Stöð 2. Tveir Skagfirðingar
vom í þeim hópi sem valinn
var til þátttöku í keppninni, en
komust ekki áffam. Þetta vom
þau Guðrún Jónsdóttir ffá Mið-
húsum í Blönduhlíð og Ragnar
Már Magnússon ffá Sauðár-
króki. Þau stóðu sig engu að
síður ffábærlega vel.
Amdís Ólöf heillaði lands-
menn með söng sínum á fostu-
dagskvöldið fyrir rúmri viku, í
þættinum Idol-Stjömuleit sem
sýndur var á Stöð 2. Amdís
söng lagið End of the world og
fékk næst flest atkvæði í síma
og sms kosningu og þar með
sæti i úrslitum keppninnar.
Bubbi Morthens, einn af þrem-
ur dómumm, sagði m.a. að Ar-
dís ætti mikla möguleika á að
vinna keppnina þar sem hún
hefði allt að bera, útlit, ffam-
komu og sönghæfileika.
Níu manna hópur keppir í
undanúrslitum. Gert er ráð fyr-
ir að undanúrslitin taki sex vik-
ur frá 5. desember 2003 til 16.
janúar 2004. í fyrsta úrslita-
þættinum þar sem keppa niu
falla tveir keppendur út í al-
mennri atkvæðagreiðslu en eff-
ir það, í næstu fjórum þáttum,
verður einn þátttakandi (í
hverri úrslitaviku) útilokaður
með almennri atkvæðagreiðslu
þar til þrír keppendur, úrslita-
keppendumir, verða eftir í
keppninni. Gert er ráð fyrir að
lokaþátturinn verði sendur út í
þriðju vikujanúar2004. Sigur-
vegarinn er valinn með al-
mennri atkvæðagreiðslu eftir
söng í beinni útsendingu, segir
á Húna.is, þar sem Ragnar Z,
fjallar ítarlega um „Idolið”.
Wake me up
before you gogo
Sýningar:
Miðvikudaginn 19. nóv. kl. 20,00
og síðasta sýning
föstudaginn 21. nóv. kl. 17, nokkur sæti laus
(var flýtt vegna óviðráðanlegra ástæðna)
Ef hópar hafa áhuga á að koma á sýningu
er möguleiki fyrir aukasýningu.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband
í síma 898 8071 eða nemo@fnv.is
Nemendafélag FNV.