Feykir


Feykir - 24.03.2004, Blaðsíða 2

Feykir - 24.03.2004, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 11/2004 Lokið ritun á sögu Kirkjukórs Sauðárkróks Magnús Sigurjónsson afhendir Jóhanni Má Jóhannssyni handritið af „Með söng í hjarta“, í Safnaðarheimilinu fyrir kóræfingu sl. fimmtudagskvöld. Sýning um sögu Reykjaskóla Áður en kórfélagar í Kirkjukór Sauðárkróks fóru til sinnar venjubundnu æfrngar í kirkjunni sl. fimmtudagskvöld, var komið saman í saífiaðar- heimilinu af því tilefni að Magnús Siguijónsson, sem ný- lokið hefur við að rita 60 ára sögu kirkjukórins, afhenti formlega handrit sögunnar, sem hefur fengið nafnið „Með söng í hjarta”. í þessu riti er ekki eingöngu rakin saga kirkjukórsins heldur einnig fjallað um söng í Sauðárkróks- kirkju fyrir stofnun kórsins. Jóhann Már Jóhannsson formaður kirkjukórsins tók á móti handritinu og vék um leið að tilurð þess að ákveðið var að fara út í þessa söguritun. Meg- intilgangurinn hafí verið að bjarga menningarverðmætum ffá glötun. „Og ég er sannfærð- ur um að þegar ffam líða stund- ir þá getum við verið montin yfir að hafa ráðist í þetta”, sagði Jóhann Már og gat þess jafnffamt að draumurinn væri sá að sagan kæmi út í hefð- bundnu formi á bók þegar búið væri að fjármagna útgáfuna, helst í skinnbandi, en altént væri hún þá til í raffænu formi þar sem hægt væri að nálgast hana. Magnús Sigurjónsson greindi ffá tildrögum þess að hann var fenginn til að hefja þessa vinnu á haustdögum 2001, þegar Jóhann Már hitti hann að máli, og sagði að sér hafi komið á óvart hvað þetta hafi verið skemmtileg vinna. Heimildir hafi að vísu skort á köflum, og því stundum orðið að geta í eyðumar þegar sum árin vom ekki til nema reikn- ingsbækur kórsins til að styðj- ast við. En til að rnynda hefðu dagbækur þeirrra Kára Steins- sonar og Þóris Stephensen komið að góðum notum. Aðrar heimildir em m.a. rit Krist- mundar Bjamasoar og greinar í dagblöðum. í ritinu em einnig viðtöl við stjómendur kórsins og nokkra kórfélaga, sérstak- lega þá eldri í hópnum. Þeir Jóhann Már og Kári Steinsson þökkuðu Magnúsi fyrir mjög góða samvinnu við ritun sögunnar og sögðu að hann hefði sýnt þessari vinnu einstakan áhuga og þeir væm sannfærðir um að Magnús hefði skilað þessu verkefni með miklum sóma. Staðarhaldarar að Reykjum í Hrútafirði vinna nú að gerð sýn- ingar um sögu Héraðsskólans að Reykjum. Tilgangur sýning- arinnar er að upphefja sögu skólans og koma á framfæri þeiiri merku sögu sem hann á. I fyrsta áfanga er ætlunin að koma upp Ólafsstofu, sem kennd er við Ólaf H. Kristjáns- son, sem lengst var skólastjóri að Reykjum og í hans tíð náði skólahaldið hámarki sínu, með Qölda nemenda, nýjum bygg- ingum og festu í skólahaldi. í Ólafsstofú verða til sýnis þær gjafir sem Reykjaskóla hafa borist í áranna rás, málverk, myndir, verðlaunagripir og fleira. Einnig er unnið að við- gerðum á þeim skólaspjöldum sem til eru af nemendum skól- ans. I öðmm áfanga er ætlunin að safna og sýna muni sem tengjast nemendum Reykjaskóla með beinum hætti, t.d. Ijósmyndir frá Héraðsskólaárunum, kennslu- bækur, kennslugögn, inunir úr félagsstarfi, saga hemámsins að Reykjum og fjölmargt fleira. í þriðja áfanganum verður leitað liðsinnis ýmissa aðila til að koma skólastjóraíbúðinni sem er í skólahúsinu aftur í upp- runalegt horf og útbúa þar fræðimannastofu líkt og víða hefitr verið gert. Tilgangurinn með þeim áfanga er að fá ýmiss konar fræðimenn, listamenn og fleiri til að koma að Reykjum og njóta aðstöðunnar þar meðan þeir vinna að verkum sínum. Til þess að geta lokið fyrsta áfanga sýningarinnar með vígslu Ólafsstofu og hefja und- irbúning að öðrum áfanga biðja staðarhaldarar nú fyrrum nem- endur og starfsmenn Héraðs- skólans að Reykjum um að at- huga í fómm sínum hvort eitt- hvað leynist nú ekki ffá Reykja- skólaárunum. Allt sem fólk vill sjá af og leggja til sýningarinnar er vel þegið. Ljósmyndir er hægt að skanna og því þurfa þeir sem eiga myndir ekki að sjá á eftir þeim, heldur einungis lána þær í stuttan tíma meðan unnið er með þær. Allir munir sem tengjast sögunni em einnig vel þegnir. Ölafsstofa verður vigð á pálmasunnudag 4. april nk. klukkan 15.00 og em allir vel- unnarar skólans velkomnir. Að vígslu lokinni verður gestum boðið upp á kafifiveitingar og að skoða húsakynni skólans. Þeim sem vilja leggja eitt- hvað til sýningarinnar er bent á að hafa samband í síma 451- 0000 eða 451-0004 eðaá skolabudir@skolabudir.is Tryggjum framtíð Sauðárkróksflugs Ómar Benediktsson ffam- kvæmdastjóri Islandsflugs hef- ur með bréfi dags. 27. febrúar sl. tilkynnt sveitarstjóm Skaga- fjarðar, bæjarstjóm Siglufjarðar og samgönguráðherra að ís- landsflug treysti sér ekki til að halda uppi flugi milli Sauðár- króks og Reykjavíkur að ó- breyttum rekstrarskilyrðum. Eina leiðin að mati íslandsflugs til að tryggja áffamhald um- rædds flugs er að það verði styrkt með fjárframlögum. Að óbreyttu verði fluginu hætt í maí n.k. Eg tók ffamtíð Sauðárkróks- flugsins upp við samgönguráð- herra í fýrirspumatíma á Al- þingi sl. miðvikudag. Sveitar- stjóm Skagafjarðar hefur einnig beitt sér í málinu. Gríðarlegt hagsmunamál Sauðárkróksflugvöllur er hluti af gmnnneti samgöngu- kerfisins samkvæmt skilgrein- ingu samgönguáætlunar. Það þýðir að gert er ráð fyrir reglu- bundnu áætlunarflugi um völl- inn. Hér í Skagafirði em fyrir- tæki, skólar og þjónustustofn- anir í ömm vexti og starfskil- yrði þeirra og vaxtarmöguleikar háðir góðum samgöngum og ekki síst við höfuðborgarsvæð- ið. Háskólinn á Hólum, Fjöl- brautaskóli Norðurlands vestra, Byggðastofnun, íbúðalánasjóð- ur, Sjúkrahúsið og fyrirtæki Kaupfélagsins svo að nokkur séu nefnd byggja vöxt sinn og samkeppnishæfhi á greiðum og ömggum samgöngum og stutt- um ferðatíma. Þá er flugið ekki síður mikilvægt fyrir Siglu- fjörð, en þegar fellt var niður á- ætlunarflug þangað var farþeg- um beint á Sauðárkróksflugið og ganga rútubílar á milli til Siglufjarðar. Reglubundið áætlunarflug hefur mikla þýðingu fyrir ferða- þjónustuna á svæðinu. Ný markaðssókn Nú em 8 ferðir á viku milli Sauðárkróks og Reykjavíkur og samkvæmt upplýsingum frá Is- landsflugi var farþegafjöldi 9.461 árið 2002 en árið 2003 var talan 7.448. Um þriðjungur em farþegar til og frá Siglufirði. Sætanýting er nokkuð góð að vetrinum en hefur reynst mun lakari að sumrinu. Ljóst er því að gera þarf átak til að auka fjölda þeirra sem nýtir sér flugið einkum að sumrinu. Ríkið styrkir áætlun- arflugið til Hafnar í Homafirði en þar var sama uppi á teningn- um að farþegum fækkaði að sumrinu. Nú hefur Islandsflug gert markaðsátak í samstarfi við ferðaskrifstofiir og ferðaþjón- ustu heima fyrir um dagsferðir frá Reykjavík með ferð á Vatnajökul sem beitu. Er sú markaðssókn að skila árangri og eykur hagkvæmni flugsins. Þetta ættum við einnig að at- huga hér í Skagafirði. Dagsferð með fljótasigl- ingu, Drangeyjarferð, hestasýn- ingu eða söguskoðun um Skagafjörð myndi auka sæta- nýtingu í fluginu og veita at- vinnu heima fyrir, ef vel tækist til. Allt þarf þetta sinn markaðs- tíma en er tilvinnandi að reyna. Samkeppnishæfni héraðsins Flugvöllurinn á Sauðárkróki er vel búinn og veðurfar með þeim hætti að þar fellur sjaldan niður flug. Það kostar líka stór- fé að láta slík mannvirki standa ónotuð. Það er okkur mikið kapps- mál að sem öflugust flugþjón- usta verði um Alexandersflug- völl á Sauðárkróki og frekar verði hægt að fjölga þangað ferðum en fækka. Flugið eykur samkeppnishæfni héraðsins og styrkir ímynd þess. Á Alþingi kvað samgöngu- ráðherra það valda sér von- brigðum að íslandsflug treysti sér ekki til að halda áffam flugi við óbreytt Skilyrði. En farið yrði yfir málið í ráðuneytinu og með Vegagerðinni : „við mun- um reyna að finna leiðir til að bæta þar úr”. Samgönguráðherra, sveitar- stjómarmenn og aðrir heimaað- ilar ásamt þingmönnum og flugrekendum verða að taka höndum saman um að tryggja áætlunarflugið og ná um það á- kvörðun sem fyrst. Jón Bjarnason, alþingismaður. Mh. ói láð fréttablað á 1 Sorðurla ndi v estra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftarverð 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.