Feykir


Feykir - 24.03.2004, Síða 6

Feykir - 24.03.2004, Síða 6
6 FEYKIR 11/2004 Hagyrðingaþáttur 379 Heilir og sælir lesendur góðir. Þar sem vorveður hefur nú ríkt marga síðustu sólarhringa þegar þessi þáttur er skrifaður er tilvalið að byrja á þessari ágætu vísu eftir Stefán frá Hvítadal. Þér sem hefúr þunga borið þráða gleðifregn ég ber, bráðum kemur blessað vorið bráðum glaðnar yfír þér. Ólína Jónasdóttir hugsar í svipaða átt er hún yrkir svo. Allir strengir óma af þrá eftir sól og gróðri. Ég hef lengi lifað á léttu vetrarfóðri. Bjöm S. Blöndal í Grímstungu mun hafa ort þessa. Ekkert gengur auðnu nær auðs upp fengur rættur. Sami er ég drengur sem í gær sár - og engu bættur. Önnur vísa kemur hér sem ég held að sé einnig eftir Bjöm. Því var oft við ólánsströnd auðnu brotið farið. Og þá sem réttu hlýja hönd hef ég frá mér barið. Meðan núverandi stjórarsamstarf er við líði má vel rifja upp þessa vísu Sveins Bjömssonar bónda í Hvammi í Dölum. Aumt nú gerist aldarfar einkavæðing hér og þar. Illa þokkuð er og var íhaldsstjóm og ffamsóknar. Þá kemur næst sléttubandavísa eftir Jóns Jónsson frá Eyvindarstöðum. Mjallaskelli fræin fá fjalla svella hlíðar. Skallar velli góa grá gallar hrella tíðar. Illt tíðarfar hefúr verið er Jón orti svo. Grillir víða varla spönn vill nú prýði skakka. Fyllir hríð í óðaönn illvíg, hlíðarslakka. Ein snjöll hringhenda í viðbót eftir Jón. Skini hallar, ljós fær lent ljúft að fjallabaki, daggarfall í reifar rennt rós á vallarþaki. Ein húnvetnsk vísa kemur hér í við- bót og er höfúndur hennar Angantýr Jónsson. Viljans besta vinarhönd veganesti býður. Þó að bresti þankans bönd þegar mest á ríður. Það mun hafa verið Böðvar Guð- laugsson sem setti saman eftirfarandi fúndargerð. Ragur er að ijúfa þögn og reifa mál á fúndum. En gæti sjálfsagt gapað ögn gáfúlegar stundum. Trúlega hefúr það verið í tengslum við kosningar sem Indriði á Fjalli orti svo. Ekkert gott um Odd ég hermi eitt er samt, sína lofar hann upp í enni öllum jafnt. Ekkert gott sér Oddur temur eitt er samt, engan svíkur hann öðmm ffernur allajafnt. Affur skal leitað til húnveskra hag- yrðinga og mun það vera Vilhjálmur Benediktsson ffá Brandaskarði sem er höfúndur að þessari. Oft mér hugljúft yndi bar ómþýð ljóðahending. Hún í eijum vetrar var vöm og þrautalending. Nokkuð bjart hefúr verið ffamund- an er Villi orti svo. Undið glaða árgeislar að oss laða kunna. Eyðir skaða ótíðar einmánaðar sunna. Ein vísa kemur hér enn eftir Vil- hjálm. Efla margt til unaðar inn við hjartarætur, miklu skarti merlaðar mánabjartar nætur. Þorsteinn Þorsteinsson bóndi á Skálpastöðum mun hafa ort svofellda lýsingu á samferðamanni. Um hans galla yfirleitt ætla ég að þegja. Þá er því miður ekki neitt eftir til að segja. Um sveitunga sinn einn yrkir Þor- steinn svo. Nú er margt í heimi hart holdsins artir brenna. Helgi í Snarta hár og smart hyggur djarft til kvenna. Langar mig svo til að hvetja lesend- ur að mmska nú aðeins og vera svo væna að senda þættinum nýjar eða gamlar vísur, sem ég gæti þá birt smá- saman eftir þörf hveiju sinni. Gott er að leita þá til Þorsteins á Skálpastöðum með lokavísuna. Þeir sem sækja messu mest og mjög um trúmál þrefa. Öðmm hafa sjaldan sést syndir fyrirgefa. Veriði þar með sæl að sinni. GuðmundurValtýsson,Eiríksstöðum, 451 Blönduósi, sími 452 7154. Undir Borginni Sérhagsmuna græðgin grimm Hinar mjög svo afgerandi hrókering- ar innan valdakerfís viðskiptalífsins að undanfömu, hafa sýnt ólíklegustu mönnum ffam á þörfína á skýrum leik- reglum. Ætla mætti að skynsamlegast hefði verið af stjómvöldum að byija á þvi að setja fastar leikreglur, áður en boltinn var gefinn upp fyrir markaðs- leikinn og góssið gefið úr nkisbúinu, en af einhveijum ástæðum fórst það fyrir. Stundum getur leikgleðin greinilega orðið svo mikil að allt fari í handaskol- um. Þannig fer ekki síst þegar menn telja sig hafa baktryggingar fyrir því að þeir hafi allan völlinn til einkanota, og þá getur reyndar líka auðveldlega svo farið að sparkað sé í ranga aðila. Og þá gerist hið sérkennilega, að þeir sem vom upphafsmenn að leiknum, fara að dæma hina fyrirsjáanlegu ffamvindu hans með gagnrýnum hætti. Þeir hinir sömu ættu auðvitað að snúa gagnrýn- inni að eigin verkum, ef þeir vilja vera sjálfúm sér samkvæmir. En það er kannski ekki talin nein sérstök þörf á þvi! Það fer ekki leynt að það er mikil græðgi fyrir hendi í þjóðfélaginu, eink- um innan hópa í viðskiptalífinu, sem virðast telja sig hafa fengið skotleyfi til flestra hluta. Öll er græðgin óþjóðleg, undan trausti grefúr. Hún í mörgu á versta veg valdið tjóni hefúr! Margföldunarstuðull eðlilegrar sam- skiptaþróunar í þjóðfélaginu er allur að fara úr skorðum því flest tekur núorðið afgerandi mið af því að skila hagnaði i hlöður sem em fleytifúllar fyrir. Hinar reikningslegu forsendur breytast svo á vcn'i veg þegar menn em ekki lengur jafnir fyrir lögunum og vald peninganna er í síauknum mæli látið segja til um manngildið: Sérhagsmuna græðgin grimm greinilega í skiptum sést. Tvisvar sinnum tveir em fimm og tíu þegar lætur best! Allt er metið til verðs í flaumiðu markaðshyggjunnar og sumir virðast tilbúnir að selja úr sér sálina ef einhver vill kaupa. Og eitt er víst, að það er sama hversu aum sálin er, það verður alltaf einn kaupandi fyrir hendi: Ýmsir hóflaust auðinn tigna, ergist hugsun gróðasjúk. En þeim er nær að salta en svigna er selja líf úr eigin búk! Það þarf kunnáttu Sæmundar fróða og Kolbeins Jöklaskálds til að forðast allar þær Kölskasnömr sem flækjast fyrir fótum manna í dag í þjóðfélagi þar sem gullkálfúrinn er sannarlega kominn á gamla stallinn sinn: Landsins vættir sitja í sorg, sígur gengi byggða. Stundað er urn bæi og borg brottkast þjóðardyggða! II. Nýlega var merkilegt opnuviðtal í Mogganum við þekktan bæjarstjóra úti á landi. Þar talaði viðkomandi um nauð- syn þess að nota ágóða af farsælum at- vinnurekstri til uppbyggingar heimafyr- ir. Auðvitað var þetta mjög gáíúleg nið- urstaða hjá manninum en þó hefúr sennilega sumum þótt margt orðið breytt frá fyrri tið. ísfirðingar ýmsir hefðu því getað hugsað með sér „bragð er að þá bamið finnur“. En alltaf er samt gott að heyra og finna að menn séu að þroskast og taka framfömm. Og sannarlega er það rétt- lætismál að hinar dreifðu byggðir og íbúar þeirra fái að njóta þess sem ávinnst og sjái afraksturinn ganga til vaxandi uppbyggingar heimafyrir: Fljótt i gegnum gæfúskil gullvæg áhrif streyma, ef menn nota arðinn til uppbyggingar heima!

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.