Feykir - 12.05.2004, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Austur - Húnavatnssýslur
Fjórir hreppar unclir-
búa að sameinast
Fulltrúar íjögurra hreppa i Austur-
Húnavatnssýslu ákváðu á fundi í gær
að ráða í sameiningu starfsmann til að
annast undirbúning og kynningu vegna
væntanlegrar sameiningar þessarar
sveitarfélaga, en ekki hefur enn sem
komið er verið tímastett hvenær kosið
verður. Þessi sveitarfélög em Bólstaða-
hlíðarhreppur, Sveinsstaðahreppur,
Svínavatnshreppur og Torfalækjarhrepp-
ur. Ashreppur átti einnig i þessum við-
ræðum en gekk úr skaftinu fyrir stuttu.
Þessir hreppar eiga það einkum
sameiginlegt að standa saman að
rekstri Húnavallaskóla og hafa því átt
talsvert samstarf um tíðina. Til undir-
búnings málinu fékk viðræðuhópurinn
um sameiningu til fundar við sig í gær
Guðjón Bragason frá félagsmálaráðu-
neytinu og Róbert Ragnarssonar starfs-
mann sameiningamefhdar ráðuneytis-
ins, sem gáfu nánari upplýsingar um
það hvemig best væri að haga undir-
búningi sameiningarkosnmganna og
vinnuferlinu varðandi sameininguna.
Það er Bjöm Magnússon bóndi á
Hólabaki og oddviti Sveinsstaðahrepps
sem er formaður sameiningamefhdar-
innar. Hann segir undirbúningsvinn-
una nokkuð langt komna, a.m.k. hvað
varðar félaglega þáttinn, og ef ekkert
komi uppá ætti að takast að ná lendingu
með stjómsýsluna og hvemig farið
verði með sjóði þá sem em í vörslu
hreppanna.
Það em nokkur tíðindi þegar þessi
skriður er kominn á sameiningarmál í
A-Hún. en þetta svæði hefur setið eftir
hvað það varðar. Þess má geta að
Blönduósingar og Skagstrendingar
hafa starfað all náið saman síðustu
misseri og ár og ekki ólíklegt að þar á
bæ fari rnenn að leiða hugann að sam-
einingaviðræðum. Segja má að hrepp-
amir í A.-Hún. taki nú frumkvæði í þvi
ferli sem virðist vera í uppsiglingu í
landinu. En hjá félagsmálaráðuneytinu
er búið að setja af stað landsátak i sam-
einingu sveitarfélaga. Þaðan em vænt-
anlegar tillögur að hausti eða næsta
vetur, en heyrst hefur að þar verði aðal-
uppleggið að stefnt verði að samein-
ingu sveitarfélaga sem myndi heilstætt
atvinnu- og þjónustusvæði, með lág-
marksíbúatölu mun hærri en flest fá-
mennustu sveitarfélögin hafa í dag.
Óli Viðar að gera upp netateinana á bryggjunni á Króknum í gær.
Ullarþvottur skaði
ekki Blöndulaxinn
í áliti frá Veiðimálastofnun vegna ullarþvottastöðvar sem
verið er að koma upp á Blönduósi og væntanlega tekur til starfa
fyrri hluta sumars, kemur fram að auðvelt sé að gera frárennsl-
isvatn óskaðlegt með réttri meðhöndlun í umsjá fagaðila. Er
lagt til að bæjarfélagið geri kröfu á fyrirtækið að öllum skilyrð-
um verði fullnægt þannig að ekki gæti áhrifa á fiskigengd.
Bæjaryfirvöld á Blönduósi beindu fyrirspum til Veiðmála-
stofnunar vegna ullarþvottastöðvarinnar, með tilltii til áhrifa
ffárennslis á lífríki Blöndu. I svarbréfi Sigurðar Guðjónssonar
ffamkvæmdastjóra Veiðimálastofnunar er rakinn ferill með-
höndlunar ffárennslis byggt á gögnum ffá fyrri staðsetningu í
Hveragerði.
Bæjarráð Blönuóss tekur undir orð framkvæmdastjórans og
er bæjarstjóra falið að setja sig í samband við hlutaðeigandi og
sjá til þess að umræddar kröfur fari inn í starfsleyfi ullar-
þvottatöðvarinnar þannig að enginn skaði verði af, enda liggi
mikil verðmæti í veiðiánni Blöndu.
Norðvesturland
Mjög lélegt á
grásleppunni
Margir grásleppuveiðimenn em þessa dagana
að draga upp netin, eftir norðanáhlaupið í sið-
ustu viku, sem að segja má að hafi bundið enda
á vertíðina í ár. Vertíðin er búin að vera léleg
hér á Norðvesturlandi, og ekki rættist úr með
þessari norðankviku, eins og menn vom
kannski að vonast eftir. Auk lélegrar veiði hafa
gæftir verið með allra versta móti, bræla meg-
inhluta veiðitímans.
Oli Viðar Andrésson frá Bergsstöðum var að
gera upp netateinana á bryggjunni á Króknum í
gær. Hann sagði að þessi fyrsta vertíð sín hefði
verið léleg. Menn hefðu kannski verið að fá
svona frá 30-60 tunnum sem þætti ansi lítið, en
aftur á móti mun vertíðin hafa verið vemlega
betri fyrir austan, á Vopnafirði og Bakkafirði
og þar í grennd.
—ICfcHgtf! cbjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
hílaverkstæði
Sími 453 5141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur \
^ BílC^i>ger>ir
O H j ólbar > a^> ger > ir