Feykir - 12.05.2004, Side 3
17/2004 FEYKIR 3
Athugasemd til
byggðaráðs Skag.
Vegna birtingar greinar í
Feyki þann 5. maí 2004 um á-
lyktun byggðarráðs Skagafjarð-
ar um endurskoðun laga um
búnaðarfræðslu og rannsóknir í
þágu atvinnuveganna get ég
ekki látið hjá líða að gera at-
hugasemdir við þann óupplýsta
málflutning og misskilning sem
ályktun ráðsins greinilega
grundvallast á. Verður að átelja
þau vinnubrögð að frekari upp-
lýsinga um málið skyldi ekki
aflað áður en jafn afgerandi og
afVegaleidd ályktun er sam-
þykkt byggðarráð Skagafjarðar
til álitshnekkis.
Með þeim skipulagsbreyt-
ingum sem ég hef ákveðið að
hrinda í framkvæmd í mennta-
og rannsóknakerfi landbúnað-
arins og nú liggja fyrir Alþingi
í formi tveggja lagafrumvarpa
er verið að renna styrkari stoð-
um undir kennslu og rannsókn-
ir í landbúnaði og þar með
treysta þennan undirstöðuat-
vinnuveg þjóðarinnar. Verður
að telja það hagsmunamál fyrir
allar menntastofhanir landbún-
aðarins að þær þjóni atvinnu-
veginum sem best hveiju sinni.
Breytingamar fela í sér samein-
ingu á kröftum Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri (LBH),
Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins (RALA) og Garðyrkju-
skólans að Reykjum í eina öfl-
uga stofnun, Landbúnaðarhá-
skóla íslands. LBH og RALA
hafa um árabil haft með sér
náið samstarf og síðustu miss-
eri starfað eftir sameiginlegri
stefnumörkun. Verkefni Garð-
yrkjuskólans eiga ýmislegt
sameiginlegt með starfsemi
þessara tveggja stofhana og því
augljós ávinningur að hann
skuli einnig vera felldur inn í
hina nýju stofnun, sbr. nýleg á-
lyktun skólanefndarGarðyrkju-
skólans.
Sorglegt þykir mér að menn
skuli halda því ffarn að með
þessum gjömingi sé verið að
vega að sjálfstæði og vaxtar-
möguleikum Hólaskóla. Slíkur
málflutningur endurspeglar ekki
hagsmuni skólans og mætti
spyija hvort eitthvað annað
vaki fyrir byggðarráðinu með
ályktuninni. Hólaskóli er ein-
hver alöflugasta stofnun land-
búnaðarins og hef ég í störfum
mínum lagt ofurkapp á vöxt
hans og velgengni. Sú umgjörð
sem sköpuð hefur verið um
Hólaskóla í lögum og reglum
hefur fjarri því staðið vexti hans
fyrir þrifum. Hólaskóli hefur
einfaldlega blómstrað og þar
tala staðreyndir sínu máli. Fjár-
framlög til skólans hafa farið
stöðugt vaxandi og byggt hefur
verið upp öflugt kennslu- og
rannsóknaumhverfi á Hólum,
sem stenst hvaða samanburð
sem er. Hólaskóli býr við
mikla sérstöðu og starfar innan
landbúnaðarins á sínum sér-
sviðum, sem eru hrossarækt,
ferðaþjónusta og fískeldi. Þess-
ari verkaskiptingu er ekki ver-
ið að breyta með tilkomu Land-
búnaðarháskóla íslands. Vöxt-
ur sérsviða Hólaskóla er slíkur
að ffamtíðannöguleikar skólans
virðast glæsilegir hvemig sem á
málið er litið.
Því vil ég vinsamlega biðja
byggðarráð um að kynna sér
staðreyndir málsins betur og
hverfa frá málflutningi sem
virðist einungis til þess fallinn
að ala á afbrýðisemi og minni-
máttarkennd. Slíkt á sér engan
rökstuðning því framtíð Hóla-
skóla er björt. Hólamenn horfa
að því ég veit björtum augum á
ffamtíðina og um starfsemina á
Hólum er mikil samstaða hjá
þingi og þjóð og ég hef hingað
til átt mjög gott samstarf við
sveitarstjóm Skagafjarðar og
vona að svo verði áfram.
Guðni Ágústsson.
Á árum áður komu sumir
menn undir sig fótunum efna-
hagslega með því að eignast
góðan bíl. Þórður Eyjólfsson,
Doddi í Stóragerði í Skaga-
firði, var einn af þeim. Það var
pallbílinn Stúdí beiker árg.
1942. Doddi sem ermikill bíla-
áhugamaðurmissti svo afþess-
um bíl og hefur lengi staðið í
því að hafa uppi á einhveijum
svipuðum, til að bæta við í
bílasafnið í Stóragerði. Fyrir
skömmu tókst honum að út-
vega sér Stúdí beikar árg. '44
ffá Kanada. Hann renndi með
hann á Sæmundargötuna um
daginn og var þá á leiðinni
austur yfir með bílinn í spraut-
un til Þorvaldar á Sleitustöð-
um.
„Það var allt vitlaust haustið
1945 þegar ég mætti með
þennan bíl upp í Skarðsveginn,
Hraunadalinn fyrir ofan Al-
menninga í vegagerðina hjá
Lúðvík Kemp. Eg var fljótur
Doddi frá Stóragerði við Stúdíbeikerinn frá lýðveldisárinu.
Góður bíll sem kom
fótunum undir marga
að læra að dreifa vel úr hlöss-
unum og þetta varð til þess að
bændumir vom sendir heim
ineð hestana. Þeir vom náttúr-
lega ekki ánægðir með það og
sumir óskaplega reiðir, og ég
var hissa hvað Kemp fiillorð-
inn maðurinn stóð þetta af sér.
Nokkmm árum seinna þegar
ég skipti um bíl, keypti Pálmi í
Hagkaup þennan bíl af mér.
Pálmi notaði hann mikið við að
keyra út vömm í póstveslun-
inni sem kom undir hann fót-
unum, þannig að þessi bíll
gagnaðist vel, enda olli hann
byltingu í vegagerðinni í
Skarðinu.
Eftir þetta missti ég af bíln-
um og var alveg búinn að gef-
ast upp á að fínna einhvem
svipaðan þegar ég fyrir tilvilj-
un rakst á auglýsingu á netinu.
Þetta var norðarlega í Kanada
og hann var víst búinn að
standa inni í skemmu í ein 20
ár og það var verið að taka til í
einhverju dánarbúi. En ég er
búinn að laga hann til fyrir
sprautun og hann verður orð-
inn algjört augnayndi þegar
hann kemur frá Þorvaldi”,
sagði Doddi og þama bætist
einn eðalvagninn enn við
glæsilegt bílasafh þeirra feðga í
Stóragerði.
Þess má geta að Feykir
hefur fregnað að þeir feðgar
Doddi og Gunnar í Stóragerði
stefni að því að efna til
bílasýningar í nýju skemmunni
á Jónsmessunni í vor.
Samvinnub&kin og KS-bókii#
Tveir góðir kostir
KS-bókin er með 4,50% vexti, bundin I 3 ár og verðtryggg
<
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir
5,0%, Ársávöxtun 5,06%
Innlánsdeild-J±5~