Feykir - 12.05.2004, Side 6
6 FEYKIR 17/2004
Hagyrðingaþáttur 382
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman er að byija þáttinn að þessu
sinni með fallegri vísu eftir hinn snjalla
ferðagarp og góða hagyrðing, Hallgrím
Jónasson.
Ljúfi hljómur lækjarmál
leyst úr dróma klaka
heyri ég óm úr okkar sál
í hans rómi vaka.
Önnur vísa kemur hér eftir Hall-
grím.
Mörgum verða minnisstæðar
myndimar frá bamæskunni,
meðan em endurvæðar
æskuslóðir hugsuninni.
Þá kemur næst vísa sem mig langar
lil að biðja lesendur að gefa mér upp-
lýsingar um ef þeir kunna hana. Held
ég að hún muni vera ættuð úr Skaga-
firði og er trúlega ort í tilefni af stóraf-
mæli.
Lifðu heill við svanasöng
á sólskinsbjörtum leiðum,
ævin verði aldrei löng
inni á þessum heiðum.
Þrátt fyrir að mig gmni að þessi á-
gæta vísa Theódóm Thoroddsen hafi
áður birst í þættinum, er gaman að rifja
hana upp og gæti þá kannski glatt þá
sem yngri em og hafa áhuga á vísnagerð.
Þegar landsins þoma mið
og þijóta vinatryggðir.
A ég veröld utan við
allar mannabyggðir.
Gísli skáldið frá Eiríksstöðum yrkir
svo um góðan reiðhest.
Flýgur leið sem ör af álm
á flugskeið að vana,
út þú breiðir ægishjálm
yfir reiðhestana.
Önnur vísa kemur hér eftir Gísla.
Lifnar vonin ljúf og mild
lækki mótgangsandinn.
Ertu sál mín eitthvað skyld
öldunum við sandinn.
Þungt hefur verið yfir skáldinu er
hann yrkir svo.
Veikur þrái ég draumadvöl
daginn má því skyggja.
Næturbráin byrgir svöl
blóm sem dáin liggja.
I þeirri næstu sem vel á við þann
tíma sem nú fer í hönd er skáldið með
aðra sýn.
Úti þó að allt sé kalt
á ég nóg af vonum.
Leysi snjóinn lifnar allt
líður að gróindonum.
Að lokum ein vísa í viðbót eftir
Gísla, sem vel á við í dag (4. maí) þeg-
ar þessi þáttur er í smíðum, en versta
hríðarveður hefur verið í mest allan
dag.
Þraut er norðra þrælatak
við þýðan sumarblæinn.
Sárt er mér að sjá á bak
sól um miðjan daginn.
Hinn kunni hagyrðingur og grinisti
Birgir Hartmannsson á Selfossi mun
vera höfúndur að þessari.
Mynd ég gref úr minjasjóði
mýkt í skrefi, leik við taum.
Þetta stef úr lifsins ljóði
ljóma veftir fagran draum.
Staddur á hestamannamóti tók Birg-
ir eftir sérstaklega hárprúðri stúlku sem
sýndi einn gæðinginn. Af því tilefni
varð til eftirfarandi vísa.
Gaman fmnst oss fljóðið sjá
fáksins örva gæði.
I sama takti til og ftá
taglinu slá þau bæði.
Eitt sinn er hestamenn á Selfossi
voru á heimleið eftir að hafa drukkið
jónsmessukaffi í Þjórsárveri, en leiðin
er um 15 km löng, orti Birgir.
Hvað sem öllum eyktannörkum
leið.
Einar sat á pelavönum fola,
enda treindist átta tíma reið
út að Selfossi frá læknum Vola.
Að lokum þessi vísa Birgis sem ort
var þegar hann gekk fram hjá tjaldi
kunningja síns á hestamannamóti.
Hér mun tíðkað taumaskak
talsvert skrítið,
og sumir fá að taka á bak
fyrir lítið.
Pétur Jónsson frá Eyhildarholti yrk-
ir svo um pólitíska stöðu síns tíma.
Stöfnum vendir stjómarknör
stýrt er af hendingunni.
Fólk með blendið bros á vör
bíður í lendingunni.
Páll Guðmundsson frá Holti á
Ásum yrkir á meðan allra veðra er von.
Bítur kjúkur kyljan hörð
kælir búki þínum,
Ennþá stijúka él um jörð
jötun lúkum sínum.
Mig langar að biðja lesendur að
senda þættinum efni sem þeir kynnu að
hafa í fórum sínum. Þakka ég jafhffamt
fyrir það sem nú nýlega hefur borist.
Gott er að leita til Páls frá Ilolti með
lokavísuna.
Sá sem rúm í hjarta hefur
hann á jafnan ráð á skjóli.
Kotið bestan greiða gefúr
gakktu ffam hjá höfúðbóli.
Veriði þar með sæl að sinni.
GuðmundurValtýsson, Eiriksstöðum,
451 Blönduósi, sími 452 7154.
Félagsþjónusta Skagafjarðar í
samvinnu við göngudeild SÁÁ
Varla fyrirfmnst sá maður á jarð-
kringlunni, svo fúllkominn, að hann
hafi ekki einhvem tíma bmgðist annað-
hvort sjálfúm sér eða öðmm, einu sinni
eða oftar. Það fylgir vanlíðan því að
bregðast. Það fólk sem þarf að líða fyr-
ir þetta, jafnvel á hveijum degi, er fólk-
ið sem hefúr ánetjast áfengi eða vímu-
efnum. Hver kannast ekki við það að
hafa heyrt kunningja sinn tala umþað
eða jafnvel sjálfan sig, að það sé þessi
skömm sem fylgi því að vera fúllur á
þeim tíma sem maður helst af öllu vildi
vera með sjálfúm sér. Það er þetta að
bregðast, jafnvel sjálfúm sér.
Það er sjálfsagt ein af þessum vöggu-
gjöfúm sem mörgum láist að þakka,
einmitt það að lenda ekki í þessum
vanda sem óregla leiðir af sér og eyði-
leggur lífið fyrir viðkomandi einstak-
lingi og bitnar ætíð á hans nánustu. Þeg-
ar ritari þessa pistils var á leiðinni um
bæinn í síðustu viku, að dreifa Feyki til
blaðbera og á sölustaði, í leiðindaveðri,
þar sem gekk á með blautri hríð og
hagléli á víxl, þá kom út úr dimmunni
gamall kunningi reikull í spori. Hann
sagðist vera orðinn of seinn og þyrfti að
komast niður í bæ, í bankann og á rak-
arastofúna. „Geturðu nokkuð skutlað
mér niður í bæ, ég væri þér mjög þakk-
látur”, sagði maðurinn. Og auðvitað var
ekki nema sjálfsagt mál að aka honum í
bæinn sérstaklega þegar veðrið var
svona og hann illa búinn, og þegar hann
var sestur inn í bílinn þá leyndi áfengis-
lyktin sér ekki. Það var talað um hvað
maður væri nú alltaf góður drengur, og
þetta venjubundna drykkjutal um það
að allir væm að dæma alla án þess að
hafa efni á því. Hann sagðist hafa feng-
ið sér frí í dag, til að koma ákveðnum
hlutum í verk. Sá gmnur læddist að mér
að hann væri að skrökva, og sjálfsagt
liði honum ekki vel með það að vera
fúllur í dag. En svona er það, að þegar
bukkus er búinn að ná tökunum, þá em
menn alltaf að bregðast sér og sínum.
Félagsþjónusta Skagafjarðar er í
samvinnu við SÁÁ á Akureyri að bjóða
upp á viðtöl og aðra göngudeildarþjón-
ustu sem hægt er að veita á staðnum og
inni á Akureyri. Þetta byggist á því að
einu sinni í mánuði kemur Hörður J.
Oddfríðarson ráðgjafi til Sauðárkróks
og er með viðtalsþjónustu í Ráðhúsinu.
Næsti viðtalstími verður þriðjudag-
inn 18. maí kl. 14-18. Tímapantanir em
í Ráðhúsinu.
„Þessi þjónusta er bæði fyrír al-
kohólista, hvort sem þeir hafa farið í
meðferð eða ekki, þurfa á því að halda
eða ekki. Hugmyndin byggir á því að
það er alltaf verið að reyna að auka
þjónustuna án þess að þurfa að leggja
fólk inn á spítala, þetta er svona angi af
því. Auðvitað em þessir viðtalstímar
ekki síður fyrir aðstandendur þeirra sem
em í vanda með áfengis- og vímuefna-
neyslu.
Eg er búinn að koma í tvígang á
Krókinn og það hefúr gengið mjög vel.
Þessir tímar hafa verið nýttir og svo hef-
ur fólk komið í ffamhaldi af því inn á
Akureyri og sótt sér meiri þjónustu.
Fólk er ekki ennþá búið að fá allar upp-
lýsingar um þessa þjónustu, þetta er
svona að byrja og fer vel af stað. Fólki
virðist líka það að geta sótt þessa þjón-
ustu nær heldur en fjær.
Á göngudeild SÁÁ á Akureyri er öll
almenn viðtalaþjónusta virka daga frá
kl. 9-16 nema á þriðjudögum 8-12. Síð-
an er hópstarf, eftirfylgni og meðferðar-
hópar, s.s. kvennahópur á mánudögum
klukkan fimm og karlahópur á mið-
vikudögum kl. fimm. Blandaður hópur
á fimmtudögum kl. fjögur, stuðnings-
hópar frá mánudegi til fimmtudags kl.
11-12, unglingahópur (17:00 til 18:00 á
Hörður J. Oddfríðarson.
fimmtudögum. Fræðsludagskrá er hald-
ið úti, alla miðvikudaga kl. 18,15 er fyr-
irlestur og annan mánudag i hveijum
mánuði kl. 18,15 er sérstakur fyrirlestur
fyrir foreldra þeirra unglinga sem eiga
við þennan vanda að striða. Einn mánu-
dag í mánuði kemur læknir frá Vogi
með fyrirlestur og svo fyrsta mánudag í
mánuði er kynningarfúndur um SÁÁ.
Svo hef ég verið með námskeið, bæði
helgamámskeið og einstaka sinnum í
miðri viku líka. Námskeið fyrir alko-
hólista í bata var um síðustu helgi og
námskeið um meðvirkni verður 22.-23.
maí. Þá hef ég verið með námskeið við
spilafíkn einu sinni. Þess má svo að lok-
um geta að þessi námskeið verða haldin
aftur næsta haust og ffam eftir vetri.”