Feykir - 23.06.2004, Page 2
2 FEYKIR 23/2004
Fjölskylda Guðjóns Ingimundarsonar var mætt við vígslu stúkunnar að Sigurði
Guðjónssyni undanskyldum, er átti ekki heimangengt. Frá vinstri talið Sigurbjörg, Hrönn,
Svanborg, Ingimundur, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Birgir og Ingibjörg. Lengst til hægri er
Gísli Gunnarsson sem veitti sætunum í stúkunni móttöku fyrir hönd Sveitarfélagsins
Skagaíjarðar. Mynd Valgeir Kárason.
Útivistarstígur við Gauksmýrl
Sundlaug Sauðárkóks
Stúkan frá Guðjóni
tekin í notkun
Síðasta miðvikudagskvöld
var athöfii í Sundlaug Sauðár-
króks í tengslum við héraðs-
mót UMSS sem fram fór þetta
kvöld. Þá var formlega afhent
gjöf ffá Guðjóni Ingimundar-
syni og fjölskyldu, sæti í áhorf-
endastúku sundlaugarinnar.
Það var Ingibjörg Kristjáns-
dóttir ekkja Guðjóns sem af-
henti gjafabréfið til staðfest-
ingar gjöfmni, Sigurbjörg
dóttir þeirra flutti ávarpsorð
og Gísli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar færði fram
þakkir fyrir hönd sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar.
Guðjón Ingimundarson,
lést á síðasta vetri, og entist
því ekki aldur til að sjá þessa
gjöf sem hann var búinn að
undirbúa, verða að veruleika,
en eins og fram kom í máli
þeirra Sigurbjargar og Gísla
átti sundíþróttin hug hans all-
an og var ffamgangur sund-
laugarbyggingarinnar á Sauð-
árkróki sérstakt baráttumál
hans. Auk þess sem aðstaða
áhorfenda við sundlaugina
batnar verulega með nýju sæt-
unum sem alls eru 220, er ný-
búið að mála sundlaugina og
mun hún því skarta sínu besta
þegar að sundkeppni lands-
mótanna kemur.
Guðjón Ingimundarson var
forstöðumaður Sundlaugar
Sauðárkróks frá byggingu
hennar 1957 til 1986 og sund-
kennari í Skagafirði 1940-
1990. Guðjón vann gífurlega
mikið og fómfúst starf í þágu
íþróttamála í Skagafirði og þó
einkum sundíþróttarinnar. Þá
átti Guðjón um árabil sæti í
bæjarstjóm Sauðárkróks og í
stjóm Ungmennafélags Islands.
Hann var af lífi og sál áhuga-
maður um íþróttir og félagsmál
sem þeim tengdust.
Á þjóðhátíðardaginn 17.
júní var tekinn í notkun fyrsti á-
fangi útivistarsígs fyrir hreyfi-
hamlaða við Gauksmýrartjöm í
Húnaþingi vestra.
Gauksmýrartjöm er endur-
heimt votlendi með fjölbreyttu
fúglalífi rétt sunnan þjóðvegar-
ins. Þar er mikið um endur,
gæsir og álftir. Einnig hafa sést
þar lómahjón, rauðhöfðapar,
flórgoðapör, húsendur ásamt
kríu, óðinshana og fleiri al-
gengari tegundum fugla.
Fuglaskoðunaraðstaða, hús
með kiki og fúglabókum hefúr
verið útbúin. Með tilkomu úti-
vistarstígs fyrir hreyfihamlaða
stendur þessi náttúruperla öll-
um opin.
Það em Ferðamálafélag
Vestur-Húnavatnssýslu og
landeigendur á Gauksmýri sem
standa saman að þessari fram-
kværnd. Margir aðilar styrktu
gerð stígsins: Pokasjóður,
Eignarhaldsfélag Brunabótafé-
lags Islands, Össur. Ferðamála-
ráð styrkti pallagerð við fúgla-
skoðunarhús, Umhverfis- og
landbúnaðarráðuneyti og land-
eigendur sáu um endurheimt
tjamarinnar. Friðlýsingarsjóður
Nátturuvemdarráðs hannaði
fuglaskoðunaraðstöðuna.
Hönnun og lagningu útivistar-
stígs annaðist Flosi Eiríksson.
Auglýsið
í Feyki
Deilt um keisarans skegg?
Þegar ffarn líða stundir og sagnfræð-
ingar fara að rýna í Islandssöguna, þá
verða væntanlega þetta ár og liðin miss-
eri með þeim sérkennilegustu hvað ým-
iss mál varðar. Þar ber væntanlega hæst
sú ákvörðun Forseta íslands að nýta
málskotsréttinn, heimild i stjómar-
skránni sem ekki hefúr verið nýtt áður í
60 ára sögu lýðveldisins.
Ljóst er að þessi ákvörðun forsetans
er mjög umdeild, en væntanlega kemur í
ljós í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu
réttmæti þess mats hans að samhljóminn
hafi vantað milli þingsins og þjóðarinn-
ar um fjölmiðlafrumvarpið, en áfram
kunna menn að deila um það hvort þetta
frumvarp hafi verið nógu stórt mál til
vísa því til ákvörðunar þjóðarinnar.
Ymislegt í sambandi við þetta ferli
alltsaman er sérkennilegt. Til að mynda
það sem örlað hefúr talsvert á í ýmsum
málum á undanfömum árum, sú tilhney-
ing ráðandi manna, að ef að lögin þókn-
ast þeim ekki, eins og t.d. málskotsréttur
forsetans, þá þurfi bara að breyta lögun-
um. Reyndar má kannski líka velta því
fyrir sér hvort okkar háa Alþingi sé
nægjanlega í takt við tímann, svo sem
með fyrrgreindu ljöhniðlafrumvarpi,
hvort að ekki hafi verið tímabært fyrir
löngu síðan að setja slíkt ffumvarp, þar
sem að svo virðist sem almenningur sé
þeirrar skoðunar að lagasetning um
eignarhald á fjölmiðlum sé nauðsynleg,
þó svo að sýnist að komandi þjóðarat-
kvæðagreiðsla muni fyrst og ffemst ekki
snúast um það atriði, heldur hvort frum-
varpið sjálft gangi of langt í þá veru,
eður ei. Reyndar halda margir því ffam
að atkvæðagreiðslan muni að stómm
hluta snúast um það að kjósendum fysi
að hegna stjómarflokkunum fyrir ofors í
ffamgangi málsins.
Og síðan sá fyrrverandi forseti ís-
lands Vigdís Finnbogadóttir ástæðu til
að minna á sig, með að afþakka það að
afhenda viðurkenningar í Grímunni,
uppskemhátíð leiklistarfólks, af þeirri á-
stæðu að það væri ekki viðeigandi að
blanda forsetaembættinu við þessa há-
tíð, sem kostuð væri að Baugi, þó svo að
hún (Vigdís) væri ekki andstæð því fyr-
irtæki. Og jafhffamt var því komið á
ffamfæri að hún hefði ffekar látið kjósa
um Kárahnjúkavirkun en Qölmiðla-
ffumvarpið. Sú kosning hefði kannski
orðið til að sameina þjóðina enn betur en
ella, en að margra áliti em nú fram-
kvæmdimar á Austurlandi prófsteinn á
það hvort að unnt sé að snúa byggðaþró-
uninni við á nýjan leik, og hreinlega
bjarga landsbyggðinni. Mörgum lands-
byggðamanninum lieföi sjálfsagt ekki
þótt það snyðugt að ljölmennið í
Reykjavík heföi getað komið í veg fyrir
þessar ffamkvæmdir? - Svona má velta
hlutunum fyrir sér.
Það er spuming um það hvort að
menn séu að deila um keisarams skegg
eða hvað? Áffam virðist vera talað út og
suður og haldið áffam með þá gesta-
þraut sem sagnffæðingar framtíðarinnar
munu glíma við. Og á 17. júní, 60 ára
lýðveldisafmælinu og afinælisdegi Jóns
Sigurðssonar forseta sem lýðveldis-
stofnunin er jafnan kennd við, þá eyðir
forsætisráðherra megintíma hátíðarræðu
sinnar í það að fjalla um heimastjóm-
arafmæli og þátt Hannesar Hafstein í
ffelsisbaráttu þjóðarinnar. Kannski það
sé vegna þess að menn séu orðnir leiðir
á því á 17. júní að ræða um Jóns Sig-
urðsson sem sagði það sem oft hefúr
verið vitnað í „Vér mótmælum allir”. En
er nokkuð leyfilegt að vera leiður á slíku
á lýðveldisdeginum?
ÞÁ.
b. Ól íáð fréttablað á KIR Morðurlandi vcstra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftarverð 210 krónur lwert tölublað með Póstfang: Box 4, 550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvitt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.