Feykir


Feykir - 23.06.2004, Blaðsíða 6

Feykir - 23.06.2004, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 23/2004 Hagyrðingaþáttur 385 Heilir og sælir lesendur góðir. Byijum að þessu sinni á vísu sem ýmsum kann að þykja hálf skrítin og er ég ekki viss um hvort hún er rétt með farin. Hún er talin vera eftir Guðmund Illugason og talar hann þar trúlega til Skálda-Rósu. hér og er í mínum pappímm Adam Þorgrimsson talinn höfúndur. íslensk ljóð og listamál lýsa þjóðar snilli. Sem í óði yngdu sál íss og glóða milli. Skorðin hringa geigvæn gefin. Gulls mig styngur málum, eða syngur að mér svefn á hendinga málum. Gaman væri að heyra ffá lesendum ef þeir kunna aðra og þá kannski betri útgáfú af þessari vísu. Því miður hnignar nú óðum þeim byggðum sem að áður skörtuðu mörg- um góðbændum. Um slíka hrömun mun Eyjólfúr S. í Stykkishólmi hafa ort svo. Allt er hér í eyði nú og í dauðateygjum. Áður vom blómleg bú i Breiðafjarðareyjum. Sigurður Kristjánsson bóksali mun hafa ort næstu vísu um það leyti er hann gaf út í prentuðu kveri prédikanir séra Páls Sigurðssonar í Gaulveijabæ. Djöfla óðum fækkar fans fyrir góðum penna, uns á hlóðum andskotans engar glóðir brenna. Önnur vel gerð hringhenda kemur Kannski er þá næst heppilegt að bæta við einni ágætri eftir Jón M. Mel- stað. Hjartans vaka von ég finn veldi ei sakar nauða. Kærleiks akur algróinn er á bak við dauða. Jón Ásmundsson Lyngum mun hafa ort svo eitt sinn um reiðhest sinn. Prati, greið með hörku hót hófúm meiðir ffónið. Fer á skeiði fen og gijót fagurt reiðar - ljónið. Gaman er að bæta við annarri góðri hestavísu sem mig minnir að sé effir Húnvetninginn Bjöm S. Blöndal. Þrýtur leiðin, lund er hlý, léttir reiðar stífúr. Mér til heiðurs hlaðið í hlemmiskeiðið þrífur. Skrítin þykir mér stundum, er ég rifja upp í huganum þessa vísu Ólafs Vigfússonar. Það má þó ekki skilja orð mín svo að ég telji hana illa gerða. Dauðans nótt að dyrum ber dómur ótta vekur. Æskan hljótt því undan fer elli flótta rekur. Kunn vísa kemur hér næst. Höfúnd- ur er Ingibjörg Sigfúsdóttir ffá For- sæludal. Kæti hrakar, stimar stef stormablak ég hræðist. Raun er að vaka alein ef engin staka fæðist. Ég veit að næsta vísa okkar góða Gísla héðan ffá Eiríksstöðum hefúr verið mörgum kunn, og er vonandi enn, en ég birti hana engu að síður. Stormar eija úfin sjá ágjöf hveija skoðum, meðan feijan flýtur hjá feigðar skeijaboðum. Þá kemur falleg sumarvísa eftir Sig- ríði Sigfúsdóttur frá Forsæludal. Sunna hlý af hafsins djúpi hefúr göngu þetta sinn, fagurrósarauðum hjúpi reifar norðuihimininn. Þá er tilvalið að rifja upp eina af mörgum góðum hringhendum Rós- bergs G. Snædal. Þó að syndir sumum hjá saurgi lindir tærar. Stolnum yndisstundum ffá stafa myndir kærar. Sá ágæti hagyrðingur og hestamað- ur Eyjólfúr Jónasson í Sólheimum í Dalasýslu orti svo er hann missti uppá- halds fjárhund sinn á efri árum undir bíl og bjóst ekki við að eignast fleiri hunda. Ég græt ei þó fákana felli og fjarlægist vinir um stund, ég græt ekki af gigt eða elli ég græt minn síðasta hund. Önnur vísa kemur hér eftir Eyjólf og mun hún vera ort á hörðu ári. Þó að nú sé þröngt um gull og þurfi víða að lóga, og mín sé ekki flaskan fúll farga ég aldrei Spóa. Annar snillingur og trúlega félagi Eyjólfs hér áður fyrr, Dala Jói, á næstu vísu. Ekki lenti af laginu liggur fyrri dauður, festist ekki í flaginu fótalipri Rauður. Verður þá gott að enda að þessu sinni með ágætri vísu eftir Norðlend- inginn Hjört Gíslason. Þegar vorið vængjablátt um ver og dali streymir, horfins tíma hófaslátt Húnvetninginn dreymir. Veriði þar með sæl að sinni. GuðmundurV altýsson,Eiríksstöðum, 451 Blönduósi, sími 452 7154. Skipan í kjördeildir í Sveitafélaginu Skagafirði Við kosningar til forseta íslands, laugardaginn 26. júní n.k. er skipting í kjördeildir sem hér segir: => í Kjördeild 1 í Félagsheimilinu Skagaseli kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps. - Kjörfundur hefst kl. 12:00 => í Kjördeild II í Bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra kjósa íbúar fyrrum Sauðárkrókskaupstaðar, Rípurhrepps og Skarðshrepps. Kjörfundur hefst kl. 09:00 => í Kjördeild III í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki kjósta vistmenn sem þar eiga lögheimili, svo og þeir sem lögheimili eiga á Dvalarheimilinu Sauðá. - Kjörfundur hefst kl. 12:00 => í Kjördeild IV í Félagsheimilinu Miðgarði kjósa íbúar fyrrum Staðarhrepps og Seyluhrepps. - Kjörfundur hefst kl. 10:00 => í Kjördeild V í Félagsheimilinu Argarði kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps. - Kjörfundur hefst kl. 12:00 => í Kjördeild VI í Grunnskólanum Hólum í Hjaltadal kjósa íbúar fyrrum Viðvíkurhrepps og Hólahrepps. - Kjörfundur hefst kl. 12:00 => í Kjördeild VII í Grunnskólanum í Hofsósi kjósa íbúar fýrrum Hofshrepps - Kjörfundur hefst kl. 10:00 => í Kjördeild VII í Grunnskólanum á Sólgörðum kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps - Kjörfundur hefst kl. 12:00 Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00 sbr. 89. gr. laga nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis. Yfirkjörstjórn Vinabæjamót á Skagaströnd Það hefúr mikið staðið til á Skagströnd að undanfomu enda byrjar þar á morgun, fimmtu- dag, vinabæjamót. Von er á 33 gestum sem munu gista á heim- ilum í þorpinu meðan mótið stendur yfir, en það endar á sunnudag. Ágúst Þór Bragason umhverf- isfræðingur Skagastrandar segir bæinn skarta sínu fegursta og Skagstrendingar ætla að gera vel við gesti sína, farið verður í skoðunarferðir og sitthvað á dag- skránni til fræðslu og gamans. Vinabæir Skagastrandar á Norð- urlöndunum em Lohja í Finn- landi, Ringerike Noregi, Aaben- raa Danmörku og Vaxjö Sví- þjóð. Athugasemd vegna mynda í síðasta blaði Feykis vom birtar skemmtilegar myndir sem Jens P. Eriksen tók á Króknum þegar lýðveldið var stofnað. Hörður Ingimarsson skrifaði ágætan texta með þessum mynd- um, sem því miður missti nokkuð marks þar sem myndimar vom skomar þröngt á síðuna. Em bæði Hörður og lesendur blaðsins beðnir velvirðingar á þessu. Áskrifendur góðir! Þeir sem eiga ógreidda seðla fyrir ákriftargjöldum eru vinsamlegast beðnir að greiða hið fyrsta.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.