Feykir


Feykir - 23.06.2004, Blaðsíða 4

Feykir - 23.06.2004, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 23/2004 Það var svo mikið keppnisskap í þeim Þegar ritstjóri Feykis var að hefja sinn blaðamannsferil fyrir tæpum 20 árum, þá hjá blaðinu Degi á Akureyri, sem á þeim tíma var með útibú á Sauðárkróki, var alltíð- ur gestur á ritstjóminni Tryggvi nokkur Guðlaugsson ffá Lónkoti í Sléttuhlíð, sem þá var kominn vel á fullorðins- ár og lést svo fyrir nokkrum árum. Tryggvi hafði ákaf- lega gaman af að segja ffá og var sögumaður góður. Stundum hafði hann líka samband án þess að vilja koma einhveiju á prent, svona til gamans, eins þegar hann hringdi einu sinni af sjúkrahúsinu á Króknum og var þá að segja ffá vandræðum sínum með stofúfélagann, sem þóttist hafa ráð undir rifi hveiju sem gagnast gæti vel við þjóðfélagsvandanum öllum. „Hvað heldurðu að hann hafi uppástaðið klukkan hálftólf í gærkveldi. Ekkert ann- að en það að hann vildi endilega að ég hringdi fyrir sig í Davíð Oddsson”, sagði Tryggvi, en hann var alla tíð heit- trúaður Sjálfstæðismaður. Sögumaðurinn Tryggvi Guðlaugsson í Lónkoti á leið á nýárs- fagnað félagsmálaráðs Sauðárkróks fyrir allmörgum árum. Tryggvi segir hér frá ungmennafélagsskemmtunum í Fljótum og Sléttuhlíð vel fyrir miðja síðustu öld. Pistilritari man það að Tryggvi hafði óskaplegan á- huga á því að koma á framfæri frásögn af vorskemmtunum sem haldnar vom í Fljótum og Sléttuhlíð til skiptis um árabil, en á þessum tíma var lítið um skemmtanir, kannski ein eða tvær yfir sumarið, og því þótti þetta mikil upplyfting. „Það var á ámnum þegar lagning vegarins fram í Fljótin stóð yfir og unnið að undirbún- ingi Stífluvirkjunar, sandur og steypumöl vom flutt á pallbíl- um neðan úr Haganesvík. Einn af vömbílstjórunum sem þama var að vinna var Herbert sonur Ásgríms á Tjömum vega- vinnuverkstjóra. Þegar vorskemmtun Fljóta- manna á Ketilási var á næsta leiti orðuðu þeir það við Her- bert að ekki væri verra að hann gæti smalað fólki úr Sléttuhlíð- inni og komið með það á skemmtunina. Hann lét þessi boð út ganga um hreppinn og varð uppi fótur og fit hjá ung- mennunum. Það var svo mikið af ungu fólki hjá okkur í Fells- hreppi þá, að það var auðvelt að fylla pallinn á bílnum. Á pallinum vom engar grindur, bara kaðlar sem fólkið hélt sér í og svo hvert í annað, og þannig fórum við held ég um 20 manns. Þetta leit út fyrir að vera lífshættulegt, en Herbert var hreint snillingur að keyra og á leiðarenda komumst við heilu og höldnu. Þá minnir mig að vegurinn hafi ekki náð lengra út eftir en að Ketilási, ekki hafi verið búið að tengja veginn til Siglufjarðar yfir Skarðið sem þá var unnið að. Raðað sér á línuna Ég man alveg eins og það hafi gerst í gær, að þegar við komum á Ásinn var leikurinn byrjaður og við rukum auðvit- að strax til að horfa á. Við röð- uðum okkur öll á kantinn og fómm að fylgjast í spenningi með leiknum. Þetta var alveg nýtt fyrir okkur að sjá fótbolta- leik, en þama vom Fljótamenn að etja kappi við flokk ffá Siglufirði. En við vomm tmfl- uð frá leiknum af ungri og fal- legri stúlku frá Tungu, Hulda held ég að hún hafi heitið, og var hún með kassa sem í vom merki, aðgöngumiðar á skemmtunina. Þetta vom borð- ar í fánalitunum og það var á- kaflega snyrtilegt að næla þetta í barminn.” Tryggva verður þegar hér er komið tíðrætt um ffammistöðu eins Fljótamannsins, Bjöms Stefánssonar á Þverá, sem hafi staðið sig vel í vöminni hjá Fljótamönnum og komið í veg fyrir að Siglfírðingar næðu að skora mörk. „Bjöm var snillingur á öll- um sviðum. Hann var skiða- maður með afbrigðum, einhver allra besti skíðamaður sem Fljótamenn hafa átt. Ég man effir að þegar ég var að læra á fíðlu á Helgustöðum hjá Gunn- laugi, að þá var verið að æfa sig alla daga á skíðum út á Ket- ilási. Ég fór aldrei á skiðaæf- ingu, var með svo léleg skiði, æfði mig bara á fiðluna. Bændurnir í þessu líka En þegar fótboltaleiknum á Ketilási var lokið, var haldið í félagsheimilið og þar tekið til við skemmtanir og góðgerðir. Þegar líða tók á kvöldið og gestimir höfðu notið veiting- anna og skemmtidagskráin var tæmd, tóku liprir strákar til við nikkuspil og ekki leið á löngu þar til dansgólfið var þéttskip- að. Mig minnir að bílstjórinn okkar hann Herbert hafi a.m.k. verið einn þeirra sem spilaði fyrir dansinum. Það vom allir voða ánægðir og skemmtu sér vel á þessum vorfagnaði. Það má segja að vor- skemmtanir Fljótamanna og annarra sveita í nágrenninu hafi orðið til að ýta undir stofn- un ungmennafélags í Fells- hreppi. Og þessi ferð okkar í Fljótin varð til þess að strák- amir í Sléttuhlíðinni fóm að tala um að æfa fótbolta og einnig var farið að nauða í okk- ur í ungmennafélaginu að mæta til keppni, þá aðallega af Fljótamönnum. Það vom mestu vandræðin hjá okkur, að okkur gekk erfiðlega að finna stað fyrir fótboltavöll. En þá sagði Jón heitinn á Heiði. „Allt í lagi strákar, þið getið fengið túnið hjá mér.” Það var renni- sléttur flötur fyrir neðan húsið. Síðan var farið að æfa og strák- amir spörkuðu alveg eins og vitlausir menn. Ég hef hvergi heyrt eða séð annað eins kapp og bændumir vom komnir í þetta líka. Ég man eftir Júlíusi Geirssyni sem þá var á Syðsthóli, Heiðarpiltunum sem þá vom margir ungir menn, Heiðdal, Stefáni og Guðjóni. Eiður á Skálá fór aldrei í þetta, en hann leiðbeindi strákunum svolítið og var dómari á æfing- um. Ég sjálfúr fór aldrei í þetta heldur, gat það ekki. En ég hafði gaman af að vera við- staddur og sjá aðfarimar, þær vom kostulegar. Margir vildu heyra í Óla Jó Auðvitað kom að því, að það þurfti að halda skemmtun til að sýna þessi ósköp, og efht var til skemmtunar í húsinu á Heiði nýbyggðu. Á þessari skemmtun sem heppnaðist mjög vel, var húsfyllir, auk hreppsbúa, fólk utan úr Fljót- um og alla leið innan úr Hofs- hreppi. Svo víðfrægt var þetta að bændumir væm famir að keppa í fótbolta, þetta þótti al- veg fúrðuverk. Bjöm á Þverá var nú í markinu hjá Fljóta- mönnum og milli strauranna hinum megin stóð nafni hans frá Felli. Áhorfendur höfðu ekki síst góða skemmtun af að fylgjast með þessum tveim mönnum og einhveijir höfðu á orði að þetta væm eins og bim- ir úr dýraríkinu. Svona var mikil keppni í þeim, þetta var alveg eins og slagur. Nú var ekkert með það að þessi samskipti milli sveitanna héldu svona áfrarn, með gagn- kvæmum heimsóknum á vor- skemmtanimar. Var farið að fitja upp á ýmsu til að hafa ein- hvem pening út úr þessu. Ólaf- ur Jóhannesson á Brúnastöð- um, seinna alþingismaður og ráðherra, var þá við nám í Há- skólanum og kom heim til sumardvalar á vorin. Var bmgðið á það ráð að fá Ólaf til að halda fýrirlestur og ég man alveg nákvæmlega eftir því að það var á Heiði sem hann talaði í fyrsta skiptið. Þetta varð auð- vitað til þess að margt fólk kom gagngert til að hlýða á Ólaf og þess vegna kom fleira fólk á skemmtunina en ella. Allir lof- uðu og dásömuðu skemmtun- ina, sem fór vel fram og ekkert út á ölvun að setja. Svo kom röðin næst að Fljótamönnum með sína skemmtun að Ketilási og þannig gekk þetta næstu fimm sex árin. Seinna á mikilli skemmtun í skólahúsinu á Skálá hélt Ólafúr aftur erindi. Það var farið að líða dálítið á vorið þegar þessi skemmtun var haldin. Samgöngumar höfðu aukist heldur og þónokkuð gekk á. Þetta var með seinustu vorskemmtunun- um sem sveitamenn þama út frá komu saman á, til að etja kappi í íþróttum og skemmta sér síðan saman á eftir. Ágætu Skagfirðingar - takíó þátt ! Æ Landsmót UMFI er á næsta leítí Landsmótió er mót okkar allra og ég fyrir hönd Landsmótsnefndar hvet ykkur til að leggja okkur lið og hjálpa vió hin ýmsu verkefni sem framundan eru. Verkefnin eru bæói stór og smá og henta öllum. Komið á skrifstofu Landsmótsnefndar að Víóigrund 5 á Sauðárkróki eða á hina ýmsu staði þar sem skráningarblöó liggja frammi og skráió ykkur á þar til geró eyðublöó. Einnig bendi ég á heimasíðu okkar landsmotumfi.is þar sem einnig er hægt að skrá sig. Þin aóstoð vegur þungt og hjálpar okkur að gera þetta mót glæsilegt sem hlýtur að vera metnaður allra íbúa Skagafjarðar. ySt Q Fh. Landsmótsnefndar UMFI sS 00 4 Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjórí landsmdt 453 7070 * tandsmot@umfi.is UMFÍ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.