Feykir - 29.09.2004, Síða 3
33/2004 FEYKIR 3
Alltaf er Laufskálaréttin jafn vinsæl
Enn og aftur var fjölmenni
þegar réttað var stóði á Lauf-
skálum sl. laugardag. Óvenju
margir kom ríðandi með stóðið
úr Kolbeinsdalsaffétti til ráttar.
Réttargestir voru svipaðir að
fjölda og mörg síðustu árin,
sjálfsagt um 3000 þar sem að
bílalestin náði talsvert niður
með veginum í áttina að Ás-
bæjunum. Sem sagt miklu
fleira fólk en hross.
Það er eins og hestaáhuga-
og útivistarfólk á höfúðborgar-
svæðinu og víða um land fái
fiðring þegar sumri hallar og
komið er að vinsælustu stóðrétt
landsins. Margir koma líka til
að skoða falleg hross og vitað
er til þess að þónokkuð var um
góð boð í efnileg hross að
þessu sinni. Til að mynda
ffegnaði Feykismaður af því að
Jón Garðarson í Neðra-Ási hafi
fengið gott boð í fallega hryssu
sem hann á núna.
Stemningin var góð í rétt-
inni, en kvöldið áður héldu
gestir í reiðhöllinni Svaðastöð-
um upp á 50 ára afmæli Lauf-
skálaréttar og einnig fór ffam
uppskeruhátíð skagfirskra
hestamanna.
Þar var Bjöm Jónsson ffá
Vatnsleysu fremstur meðal
jafningja í Skagafirði þetta
árið. Bjöm átti gott ár í hesta-
mennskunni og náði stórgóð-
um árangri á Lydíu ffá Vatns-
leysu, varð meðal annars lands-
mótsmeistari í tölti á henni. í
ungmennaaflokki var það
Heiðrún Ósk Eymundsdóttir
ffá Saurbæ sem fékk titilinn.
Eyrún Ýr Pálsdóttir ffá Flugu-
mýri var valin hestaíþrótta-
maður Skagafjarðar í unglinga-
flokki og svo þótti Sigurlína
Magnúsdóttir ffá íbishóli skara
ffam úr af þeim sem kepptu í
bamaflokki á árinu.
Ræktunarbú ársins var að
þessu sinni valið Miðsitja og
ekki í fyrsta sinn. „Ræktun Jó-
hanns Þorsteinssonar og Sól-
veigar Stefánsdóttur er löngu
heimsffæg og þarf lítillar kynn-
ingar við”, segir m.a. á Eið-
faxavefnum.
Það var mikið sungið á flötinni við veitingaskýlið.
Stungið saman nefjum við réttarvegginn.
Það var nóg að gera í drættinum en frekar blautt og
forugt í almenningnum að þessu sinni.
G0TT HELGARTILB0Ð
fifrír cfóðaM- dag
m
W' »”
'^4 W