Feykir - 29.09.2004, Page 5
33/2004 FEYKIR 5
Höfðavatns
ævintýrið
Björn Jónsson frá Bæ að koma úr vitjun í Höfðavatni.
í síðasta Feyki var í írétt á
baksíðu fjallað um að jarðir á
Höfðaströnd væru gulls ígildi
og það sem bændurþar væru að
sjá fyrir lendur sínar í dag, hefði
líklega ekki séstsíðan a.m.k. frá
Höfðavatnsævintýrinu fyrir
tæpri öld. Sá ágæti skriffinnur
Bjöm Jónsson í Bæ greindi frá
þessum atburðum íágætri grein
um Höfðavatnið í Safhamálum,
riti Héraðsskalasafhs Skagfirð-
inga, fyrir allmörgum árum. Þar
sem gaman er að rifja þetta upp
núna, kemurhérá eftir smákafli
úr þessari ritsmíð Bjöms í Bæ.
Allt íram undir 1940 vom á
Skagafirði ein bestu sildarmið
íslenska flotans. Síldin var oft
uppi í landsteinum, allar víkur
fylltust stundum af síld og oft
mátti sjá sílarskip við veiðar
svo grunnt, að rétt flaut. Fyrir
kom að farið var í land og
snurpað ffá landi.
Síldarmóttaka var á þessum
ámm á Siglufirði og vestur á
Ströndum. Því var það ekki ó-
eðlilegt, að útgerðarmenn og
saltendur litu til Höfðavams
sem álitlegs hafharstæðis og
söltunarstaðar, en þar þurfti
fjárffekt mannvirki að gera til
að slíkt gæti orðið. Einn síldar-
kaupmaður á Siglufirði, Gustav
Grönvold, fór ffam á að faðir
minn, eigandi Bæjar, seldi að-
stöðu til hafnarmannvirkja-
gerðar á Bæjarmöl og í Höfða-
vatni. Punktar úr samningi
þeirra, 17. september 1916,
hljóða svo: að Jón Konráðsson
selji Gustav Grönvold spildu úr
Bæjarmöl út við Þórðarhöfða,
þar sem stór ós var í gegnum
mölina til sjávar. Á landspildu
þessari er hugmynd að gera
skipgengan skurð og skal stærð
hinnar seldu landspildu vera 75
metrar ffá hvomm skurðbarmi
ásamt skurðinum. Skal kaup-
andi mega gera hverskonar
mannvirki á hinni seldu land-
spildu. Einnig hefur kaupandi
afnotarétt af Höfðavatni á þeim
parti, sem tilheyrði Bæ til
skipalegu og annars atvinnu-
reksturs á vaminu, einnig til að
dýpka og laga, þar sem þörf
krefur. Verði ekki byijað á fyr-
irhuguðu mannvirki innan
fimm ára, fellur landið aftur til
seljandans.
Kaupverðið er kr. 400.000.
21. apríl 1919 kom yfirlýsing
ffá ekkju Gustav Grönvold um
að hún afsalaði sér fyrir hönd
dánarbús manns síns öllu til-
kalli til áður seldrar landspildu.
Þar með var sá draumur búinn
um þá hafnarffamkvæmd.
Á ámnum 1918 og 1919 fær
svo einn þekktasti þálifandi ís-
lendingur, Jóhann Sigiujónsson
skáld frá Laxamýri, mikinn á-
huga fyrir hafnarmannvirkjum
við Höfðavatn. Mikill skyld-
leiki var með Jóhanni og föður
mínum og man ég að Jóhann
kallaði hann alltaf frænda.
Hann var hér mikið þessi tvö
sumur, þó sérstaklega fyrripart
ársins 1919. 15. mai 1919 var
samningur gerður um kaup á
Bæ, Mannskaðahóli og Vatni.
Höfði var ríkisjörð og fékkst
ekki keyptur. Bær var seldur
fyrirkr. 70.000, Vatn 40.000 og
Mannskaðahóll á 20.000.
Kaupendur vom danskt-ís-
lenskt milljónafélag, nefnt
Höfðavatn. Framkvæmdastjóri
og aðalmenn þess félags vom
Carl Sæmundsen Kaupmanna-
höfn og direktör Dehnfeld í
Odense, en umboðsmaður
þeirra hér var Jóhann skáld Sig-
uijónsson. Samningur þessi er
langur og mjög ítarlegur.
Nokkur hluti söluverðs, rúml.
1/3 verðs, var greiddur eftir
undirskrift samnings. Eftir-
stöðvamar áttu að greiðast sem
hlutafé við fullnaðarstofhun
hlutafélags um Höfðavatn.
Ég var 17 ára þegar þetta
gerðist og man því greinilega
viðburði alla. Jóhann Sigur-
jónsson, hár og grannleitur,
ffekar lotinn í herðum, nokkuð
stórt kónganef, augun ógleym-
anleg, skörp og út úr svipnum
skein eldlegur áhugi. Annars
var Jóhann veikur síðustu daga,
er hann var hér, og grun hefi ég
um að hann hafi haldið sér uppi
með víni, þvi að nokkrum sinn-
um var sent eftir bijóstbirtu,
sem hann kallaði, til Magnúsar
Jóhannssonar læknis í Hofsósi.
Jóhann fór héðan um mánaða-
mótin maí-júní 1919, en í ágúst
mun hann hafa dáið.
Um sumarið voru hér einn
og tveir verkffæðingar við
mælingar og kortagerð i vatn-
inu. Vom það Petersen, dansk-
ur, og Benedikt Jónsson. Einnig
komu hér landverkffæðingur,
Kirk að nafni. Ég var mikið
með þessum mönnum til hjálp-
ar, bæði við dýptarmælingar og
landmælingar kringum vatnið.
Einnig fór töluverður tími í að
bora niður í malarkambinn til
að athuga, hvort klöpp væri í
undirlögum. Var þetta seinlegt,
því að teinar, sem ffamlengdir
vom, vom reknir með sleggj-
um. Oft hitti á stóra steina, en
þá þurfti að færa um set. Út úr
þessu öllu kom svo kort af
vatninu og fyrirhuguðum hafn-
armannvirkjum. Á ég þetta
kort, sem ég tel merkilega
heimild ffá þessum tíma.
Eins og alþjóð er ljóst, fór
þetta milljónafyrirtæki á höfuð-
ið effir stríðsárin fyrri, og þá var
ekki Jóhann Siguijónsson hér
með sína óbilandi trú að þama
væri besta hafnarstæðið á land-
inu. Þar sem ekki var staðið við
gerða samninga, gengu öll kaup
á jörðunum til baka og urðu
þær eign fyrrverandi eigenda.
En mikið umtal varð um, að
huldufólk í Þórðarhöfða hefði
átt dijúgan hlut að andláti þeirra
manna, er mest börðust fyrir
málefninu. Og það man ég, að
Petersen verkffæðingur var
mjög hræddur, eftir að Jóhann
var dáinn, um að dagar sínir
væm senn allir.
Hafnarverkfræðingar hafa
komið hér síðan og litið á að-
stæður. Hafa þeir sagt öll skil-
yrði einhver hin bestu hér á
landi, en vitanlega þyrfti á bak
við svona ffamkvæmdir að vera
rekstur, sem réttlætti þá hluti,
sem í væri ráðist.
Góöur
tími til að
spara
Þar sem KB banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum innlánum er kjörið að nota
tækifærið og hyggja að sparnaði. Við bjóðum frábæra kosti til að ávaxta sparifé.
Kostabók
*Vextir 3,5 til 6,2%, stighækkandi
eftir tímalengd innistæðu.
*Fyrir þá sem vilja hámarksávöxtun með
lágmarksbindingu.
*Hver innborgun er bundin í aðeins 10
daga en eftir það er hún alltaf laus til
útborgunar.
*Sparifjáreigandi er verðlaunaður með
því að spara lengi, því eftir því sem
innistæðan er lengur á reikningnum,
því hærri vexti ber hún.
‘Hefur 5 stighækkandi þrep með mjög
hagstæðum vöxtum og ekkert
úttektar-gjald.
*Hentar vel fyrir reglubundinn spamað.
Lífeyrisbók
*Við endurtökum loforð okkar um
hæstu ávöxtun Lífeyrisbókar.
Markaðsreikningur
*Vextir 3,5 til 6,2%, stighækkandi
eftir upphæð innistæðu.
*Fyrir þá sem em með háar fjárhæðir og
vilja skamman binditíma.
‘Sveigjanlegur reikningur með
stighækkandi vöxtum eftir innistæðu
fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja
ávaxta lausafé sitt á hagkvæman hátt.
‘Samcinar kosti innlánsreikninga og
verðbréfa fyrir hærri innistæður.
*Hver imiborgun á reikningiim er bundin
í aðeins 10 daga en eftir það er hún alltaf
laus til útborgunar.
*Til hagræðis fyrir reikningseigendur er
engin lágmarksinnstæða á reikningnum
og ekkert úttektargjald reiknast.
Œ
KB B A N K I
- kraftur til þín!