Feykir - 03.11.2004, Blaðsíða 3
38/2004 Feykir 3
Bjarni Jónsson skrifar___________________
Átak í uppbyggingu
ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
Ferðaþjónusta er orðin miklvægur og vaxandi atvinnuvegur á Norðurlandi
vestra. Gríðarlegir möguleikar felast í því að leggja enn meiri kraft í þá upp-
byggingu. Ávinningurinn er margþættur. Margir hafa með beinum hætti atvinnu
af ferðaþjónustu en það hefur einnig sýnt sig að efling ferðaþjónustu hefur mjög
jákvæð áhrif á aðra þjónustustarfsemi og hún verður því einnig til að styrkja
búsetuskilyrði á landsbyggðinni.
Margfeldisáhrif greinar-
innar koma svo ffam í mörg-
um öðrum atvinnugreinum.
Árið 2004 er það umfangsmes-
ta hingað til í ferðaþjónustu í
Skagafirði með öllum þeim
fjölmörgu viðburðum og
öðrum gestakomum sem við
höfum notið á árinu. Sú
jákvæða kynning sem héraðið
hefur fengið er mikilvæg sé
litið til framtíðar verður til að
styrkja enn frekar búsetu í
Skagafirði. Á landsvísu er
ferðaþjónustan sú atvinnu-
grein sem vex nú hvað hraðast
og skilar mestri árlegri
aukningu í nettó gjaldeyris-
tekjum til þjóðarbúsins.
Áætíanir gera ráð fyrir þreföl-
dun ferðamanna til landsins á
næstu 10 árum.
Fjármagn til að efla
grunnstoðir og
markaðsstarf ferða-
þjónustunnar
Norðurland vestra er auðugt af
náttúruperlum, sögu og
menningararfi. Þessa fjöl-
breyttu kosti má nýta enn
betur á sjálfbæran hátt til
eflingar ferðaþjónustu sem
atv'innugreinar. Jökulvötnin í
Skagafirði með víðfrægum
fljótasiglingum, heiðarnar,
Skagi, Vatnsnesið og gjöfular
veiðiár. Fá svæði á landinu eiga
viðlíka möguleika í uppbyg-
gingu ferðaþjónustu sem
atvinnuvegar.
Styrking ferðaþjónustunnar
er eitt nærtækasta verkefnið til
að auka fjölbreNtta atvinnu á
svæðinu sem heild. Til þess að
svo megi verða þarf að styrkja
grunnstoðir og markaðsstarf
ferðaþjónustunnar á Norður-
landi vestra og þar vantar fjár-
magn sem eðlilegt er að hið
opinbera leggi til. Margt hefúr
verið gert á undanförnum
mánuðum til að efla kynningar
og markaðsstarf ferðaþjónust-
unnar á svæðinu. Flest sveitar-
félögin taka þátt í starfi Mark-
aðsskrifstofu Norðurlands og í
haust tekur forntlega til starfa
heilsárs upplýsingamiðstöð í
Varmahlíð sem jafnframt er
landshlutamiðstöð fyrir Norð-
urland vestra.
En fleira þarf til sem er
myndarlegur fjárhagslegur
stuðningur stjórnvalda.
Áskorun til stjórnvalda
og alþingismanna
Sveitarfélög á NV hafa blásið til
stórátaks í uppbyggingu ferða-
þjónustu á svæðinu. Aukaþing
SSNV, Sambands sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra haldið að
Löngumýri 29. október sl.
samþykkti að skora á stjórn-
völd og alþingismenn
kjördæmisins að beita sér fyrir
sérstöku átaki í uppbyggingu
ferðaþjónustu á Norðurlandi
vestra í samvinnu við
ferðaþjónustuaðila og samtök
sveitarfélaga á svæðinu.
Ennfremur lagði þingið til að
gerð verði sérstök átaks áætlun
til 5 ára og að ríkið komi þar að
með verulegt nýtt fjármagn.
Hér er um mikilvæga
stefnumótun að ræða og
viðurkenningu á vaxtar-
möguleikum ferðaþjónustu
sem atvinnuvegar.
Nú reynir á stjórnvöld og
alþingismenn að bregðast við
af myndugleik og sýna \'ilja í
verki með því að tryggja stór-
átaki í ferðaþjónustu á
Norðurlandi vestra brautar-
gengi.
Bjarm Jónsson
Lánshlutfall er allt að 80% af markaðsverði og ekkert hámark er á lánsfjárhæð.
Kynntu þér KB ÍBÚÐALÁN í næsta útibúi, á kbbanki.is eða í síma 444 7000.
Skilyrði fyrir láni er að viðskiptavinur sé með launareikning hjá KB banka og tvennt af eftirfarandi: greiðsluþjónustu,
kreditkort eða lífeyrissparnað. Lánshlutfall er 80% í sveitarfélögum þar sem bankinn starfar, 60% á öðrum stöðum.
Lánsfjárhæð getur aldrei orðið hærri en 100% af brunabótamati. Uppgreiðsla er heimil hvenær sem er gegn 2% þðknun.
KB BANKI
Útibúið á Sauðárkróki
Sími 455 5300
KB IBUÐALAN
ÞU (3ARFT EKKI AÐ ,
HAFA AHYGGJUR AF ÞVI
AÐ VEXTIRNIR^HÆKKI
NÆSTU 40 ARIN
Engin óvissa, einfaldlega fastir vextir allan lánstímann
og uppgreiösla heimil hvenær sem er.
Könnmin
Hvað var ömurlegast í
október?
ísland - Sviþjóð 1-4 (18.7%)
Kennaraverkfallið! (48.2%)
Dómarinn í leik ManUtd og
Arsenal! (14.4%)
Veðríð! (5.6%)
George W Bush og John
Kerry! (13%)
Hægt er að taka þátt i könnunum sem
birtast í Feyki með því að fara inn á
heimasiðuna Skagafjörður.com og
kjósa þar.
Æskiiegt er að hver aðiii kjósi aðeins
einu sinni en itrekað skal að könnunin
er meira tii gamans og taka skai
niðurstöðurnar með nokkrum fyrirvara.
^\oUr
Uppskeruhátíð Hvatar
Laugardaginn 6. nóvember, verður
haldin uppskeruhátíð Hvatar. Yngra
fólkið heldur sína hátíð í Félags-
heimilinu á Blönduósi. Veittar verða
viðurkenningar í hverjum flokki
íj'rir sig fj’rir frammistöðu á
æfingum og keppni fyrir sumarið
2004.
Eldra fólkið, meistaraflokkur karla
og kvenna, heldur svo sína hátíð í
Sjálfstæðishúsinu laugardagskvöldið
6. nóvember. Þá verður nýr þjálfari
m.fl. karla formlega kvnntur til
sögunnar ásamt þvi að hinar árlcgu
viðurkenningar verða veittar.
Heimild: www.huni.is
Fiskeldisnemar í
rannsóknarferð
Nemendur i Fiskalíffræði á fiskeldis-
braut fóru 28. október í rannsóknar-
ferð um Skagafiörð. Markmiö ferð-
arinnar var að kynnast fiölbreytileika
straumvatna í Skagafirði og sjá livaða
hfvcrur búa i mismunandi gerðum
straumvatna.
Skagafiörður er sérstakur fyrir hver-
su margar gerðir straumvatna má
finna á litlu svæði. Þannig er hægt á
litlum hring, frá Sauðárkróki austur
um Blönduhlíð og gegnum Varma-
hlíð í bakaleiðinni, að sjá fiölmargar
árgerðir; jökulá (Héraðsvötn), linda-
læk (Hjarðarhagalækur), hreina
dragá (Þverá) og votlendistempraða
dragá (Húseyjarkvísl). Á lciðinni
heim til Hóla sást svo lika jiikul-
skotin dragá (Hjaltadalsá).
Heimild: holar.is
Hillebrandshús
Bæjarráð Blönduóss hefur ákveðið
að verja tveimur milljónum króna á
næsta ári til uppbyggingar gallerí- og
safnaaðstöðu i Hillebrandshúsi , en
húsið er elsta tilburhús Blönduóss og
eitt af merkustu húsum í gamla
bæjarkjamanum. Heimild: ruv.is