Feykir - 03.11.2004, Side 7
38/2004 Feykir 7
a-babbl
Nafn: Sigurður Örn Agústsson.
Árgangur: 1970.
Fjölskylduhagir: Afar góðir ■ oftast
nær.
Starf / nám: COO Creditinfo Group
Ltd. /Eraðlæra.
Bifreið: Á 5 ára gamlan Opel Vectra
á íslandi og nota almennings-
samgöngur erlendis.
Hestöfl: Já takk. Þau gefa lifinu gildi
-þaðer þessi lífrænt ræktuðu....
Hvað er í deiglunni: Sigra sjálfan
sig og svo heiminn....það verður
léttara!
Hvernig hefurðu það?
Eins og oftast gott. Er allhress bara.
Hvernig nemandi varstu?
Líflegur. En þú gætir fyrirhitt ein-
hverja sem myndu segja að ég hafi
verið "skæruliði" - jafnvel stundum
með óknytti. Ekki trúa þeim!
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum?
Þá; allt dótið og fólkið. Nú; tvímæla-
laust myndin. Alveg frábær mynd,
maður er í sérsaumuðu leðurvesti
og með svart leðurbindi. Toppiði
það!
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Róiegur og vitur og skemmtilegur.
Hefði kannski átt að stefna á eitt-
hvað raunhæfara?
Hvað hræðistu mest?
Eigin takmarkanir og reyni því
endalaust að vinna á þeim.
Hver var fyrsta platan sem þú keyp-
tir Ieða besta)?
Fyrsta platan var með Kötlu Maríu
en kandídatar í þá bestu eru U2
Joshua Tree, Steeltown með Big
Country eða Doolittle með Pixies.
Hvaða lag ertu líklegastur til að
syngja í Kareókí?
Næsta lag bara - og fer léttmeð.
Hverju missirðu helst ekki af í sjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Homer Jay Simpson er enn
besta sjónvarspefnið. Maður
er dauður, þátturinn hans
Hannesar var líka alveg met.
Besta bíómyndin?
Shawshank Redemption er nú
ansi ofarlega. Svo mæli
ég með stærðfræðitryllinum
Pí- allir að leigja þá snilldar-
mynd - og hafa svo samband og
þakka mér greiðann.
Bruce Willis eða George Clooney
/Angelina Jolie eða Gwyneth
Paltrow?
Þetta eru alveg lamaðir kostir,
en ég vel Bruce - hann er
sköllótt gamalmenni sem
á undir högg að sækja. Búinn að
tapa Demi til ofvaxins unglíngs og
þarf á þvi að halda að á hann sé
trúað. Gwyneth af því að ég hef
engan áhuga á tölvuleikjum.
Hvað erí morgunmatinn?
Kornfleks og stundum hunangs-
seríós.
Uppáhalds málsháttur?
Maður kennir ekki DAUÐUM hundi
að sitja.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín?
Við Hómer eigum margt sameigin-
legt, en Dilbert erlika snillingur.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu?
Glóðaristað Kornfleks er algert
sælgæti. Annaðhvort það eða að
kunna á síma...
Hver er uppáhalds bókin þín?
Ætli það gæti ekki verið Andvökur
Stephans G.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...til Galapagos.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu?
Dómharka.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
Almenn leiðindi og illkvittni.
Hvaða iþróttamanni / dómara
hefurðu mestar mætur á ?
Vinur minn Eyjólfur er fyrirmyndar-
iþróttarmaðurog toppdrengurí alla
staði. Dómara nefni ég þrjá: Pálma
Sighvats, þvi að þegar ég var í
Tindastól var gott að hafa dómara
sem ekki tapaði á heimavelli! -
Helgi Árnason skólastjóri á
Blönduósi er afar góður dómari -
sem leikmaður og sama má segja
um snillinginn Hermann Arason.
Frábær dómari / leikmaður.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó?
Búðardalurinn er nú betri - Death
to Disco og það allt. Maður er svo
mikill sveitamaður í sér. Enda er
"sveitamaður" hrósyrði - og allir í
N V kjördæmi að upplagi sveita-
menn.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Afi minn. Allir hinir skipta litlu sem
engu máli. Allavega snerta þeirmig
ekki mikið. Hefði samt verið sniðugt
að hitta JFK þegar hann var upp á
sitt besta.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér?
Fótbolta, hest (og meri) og konu og
hæfi svo bara bestu kynbótarækt-
un sem sögur fara af
Hvað er best í heimi?
ísland með öllum sínum kostum og
göllum.
íþróttafréttir
Körfubolti
Sætur sigur á KR
Leikur Tindastóls við KR í
Síkinu síðastliðið fimmtu-
dagskvöld var frekar
undarlegur. KR var betra
liðið í 35 mínútur en
síðustu 5 mínútur leiksins
umturnaðist leikur
Stólanna og á einhvern
sérkennilegan hátt inn-
birtu heimamenn sigur-
inn og áhorfendur réðu
sér vart af kæti í leikslok.
Lokatölur 75-73.
Leikurinn fór ágætlega af
stað, jafnt á flestum tölum í
byrjun en síðan sigu KR-ingar
framúr. Gestirnir spiluðu vörn-
ina fast, og fengu til þess leyfi
dómara leiksins, og þá gekk
boltinn mun betur í sókninni
hjá KR. KR komst í 14-20 en
Stólarnir náðu að minnka
muninn í eitt stig áður en íyrsti
leikhluti var úti. Staðan 21-22.
Annar leikhluti var að mestu
eign Kristins Óskarssonar
dómara sem virtist hafa farið
öfugum megin framúr rúminu.
Nema hvað, KR jók muninn og
komst mest í 30-38. Svavar lék
vel í fyrri hálfleik og gerði 15
stig en staðan í hálfleik 35-41
fyrir gestina.
Þriðji leikhluti var afar
Sóknarleikur liðsins tóm tjara,
hvað eftir annað kornust leik-
menn liðsins í álitlegar sóknir
en misstu boltann klaufalega.
Sem betur fer var KR-ingum
álíka mislagðar hendur en mest
náðu þeir 14 stiga forskoti, 45-
59.
Fyrstu fimm mínútur fjórða
leikhluta var ekki útlit fyrir dra-
matískar lokamínútur því KR-
ingar höfðu enn yfirhöndina og
staðan 57-67. Þá allt í einu
small leikur Stólanna saman og
leikmenn KR komnir í villu-
vandræði. Á svipstundu snérist
leikurinn í höndum KR-inga
og Andri minnkaði muninn
með 3ja stiga körfu í 66-67 og
allt ætlaði vitlaust að verða í
Síkinu. Gestirnir komust í 66-
69 en Ron Robinson kom
Stólunum yfir 70-69 og var
það í fyrsta sinn síðan í fyrsta
leikhluta sem Stólarnir leiddu.
Síðasta mínútan var æsi-
spennandi. Stólarnir komust í
72-70 og Svavar nýtti eitt víti af
tveimur og jók bilið í 73-70.
KR-ingarbrunuðu upp en mis-
stu boltann og Ron Robinson
fékk tvö víti þegar um 20
sekúndur voru eftir. Hann klik-
kaði hins vegar á báðum og
gestirnir brunuðu upp og Ólaf-
ur Ægisson jafnaði 73-73 með
glæsilegu 3ja stiga skoti.
Stólarnir brunuðu upp og Ron
Robinson fékk tvö vítaskot
þegar 1,7 sekúndur voru eftir.
KR-ingar tóku leikhlé eftir að
dómarar komu sér saman um
að þeir mættu taka þrjú leikhlé
í síðari hálfleik. Allt kom fyrir
ekki, Robinson setti nú bæði
skotin í af öryggi og KR-ingum
tókst ekki að koma boltanum á
samherja og þar með rann leik-
tíminn út.
75-73 - sætur, sætur sigur!
INTERSPORTDEILDIN í KÖRFU
íþróttahúsid á Sauðárkróki
TINDASTÓLL 75
KR73
Stig Tindastóls: Svavar28, Robinson
26, Fletcher 13, Andri 5 og Björn
Einars 3.
Ólafshússmótaröðin í golti
Þórður Karl sigraði
Frá vinstri: Guðmundur Ragnarsson og Ásgeir Einarsson frá Golfklúbbi
Skagafjarðar, þá Ásmundur, Þórður Karl og Guðni og loks Úlafur Jónsson.
Ólafshússmótaröð var leikin á Sauðárkróks fjórtán miðviku-
Hlíðarendavelli hjá Golfklúbbi daga í sumar. Auk þess sem
ÓLAFSHÚSSMÓTARÖÐIN
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti
Þórður Karl Gunnarsson 32 stig
2. sæti
Ásmundur Baldvinsson 31 stig
3. sæti
Guðni Kristjánsson 27 stig
leikið var til sigurs í hverju móti
fyrir sig var leikið í heildarsti-
gakeppni fyrir sumarið og þegar
upp var staðið reyndist Þórður
Karl Gunnarsson hafa sigrað.
Glæsileg verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin voru í boði Ólafs-
húss en verðlaunaafhending fór
ffam í Ólafshúsi miðvikudag-
inn 27. október.
Keppnin á mótaröðinni var
hnífjöfri og spennandi og réðust
úrslit ekki fyrr en í síðasta móti.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
TU sölu Landnámshænsni og pekingendur. Seltipörum. Nánari upplýsingar i síma 846 8192. Félagsvist Félagsvist verðurspiluð i Höfðaborg, Hofsósi, fimmtudaginn 2. nóvember kl. 21:00. Verðlaun. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Félag eldri borgara á Hofsósi. Dekk til sölu VI sölu nagladekk, 33 tommu á felgum. Upplýsingar i síma 453 6693 á kvöldin.