Feykir - 17.11.2004, Síða 5
40/2004 Feykir 5
Þótt fyrrverandi ritstjóri Feykis hafi skrifað kveðjupistil sinn í blaðið, og tilgreint þar að
það yrði sá síðasti, hefur hann vegna beðni núverandi stjórnenda blaðsins, áveðið að
ganga á baki orða sinna, og skrifa pistla í blaðið áfram sem notaðir verða sem upp-
fyllingarefni efá þarfað halda. Þá eru glefsur úr rissblokkinni ágætur útgangspunktur.
Eins og áður hefur kannski
verið sagt í þessum pistlum er í
blaðamennskunni ekkert
skemmtilegra en
þegar farið er “út á
örkina” að afla
efnis. Sérstaklega
er þetta gaman
þegar farið er að
vora og náttúran
að lifna að vetrar-
dvalanum. Á rnikl-
um góðviðrisdegi
vorið 1987 var
haldið á Skagann í
efhisleit. Þetta var
skömmu fyrir al-
þingiskosningar og ekki löngu
eftir að pistillinn úr niorg-
unkaffinu með orginölunum á
Króknum var skrifaður. Þessi
ferð var sáralítið undirbúin,
rokið bara til þegar veðrið
skartaði sínu besta. Þó minnir
mig að haft hafi verið sam-
bandi við Lárus gamla í Neðra-
Nesi varðandi viðtal í blaðið
sem hann lét fúslega í té. Og
það var svosem alveg nóg
tilefni þessarar ferðar að hitta
Lárus að rnáli.
Hinsvegar var nágranni
minn urn þetta leyti Björn
Hjálmarsson frá Ytri-Mæli-
fellsá, búinn að ámálga það að
fá að koma með ef ég færi nú á
Skagann. Með Bjössa í fylgd
var ég nokkurnveginn viss um
að rnyndu skapast nokkuð
skemmtilegar samræður hitt-
um við fólk í þessari ferð. Og
það brást náttúrlega ekki.
Þetta var sem sagt ákaflega
skemmtilegt ferðaveður sem
við Bjössi fengurn og það fór
ekki hjá því að vorstemningin
gerði verulega vart við sig
þegar ekið var um rnynni
Laxárdalsins og haldið út á
Skagann með Sævarlandsvík-
ina og eyjarnar á firðinum á
vinstri hönd. Þessi staður í
grennd sumarbrústaðar þeirra
Fjólu og Olla í landi Þorbjarg-
arstaða er án efa einn fallegasti
staðurinn í Skagafirði.
Bjössi lék við hvurn sinn
fingur eins og vanalega. Bæði
var hann ánægður með að
hitta kunningja sína á Skag-
anum að ntáli og svo ekki síður
var hann spenntur fyrir kvöld-
inu, en þá var einmitt á
dagskránni framboðsfundur í
Varmahlíð. Þar átti að koma
fram fyrir Borgaraflokkinn
Helena dóttir Alberts Guð-
mundssonar, sem Bjössi taldi
miklar líkur á að yrði oddviti
flokksins hérna í kjördæminu.
„Þetta er gullfalleg kona hún
Helena og áreiðanlega alveg
bráðgreind. Ég má alls ekki
missa af þessum fundi.
Heldurðu að við verðurn ekki
áreiðanlega komnir fyrir
kvöldið?”, sagði Bjössi.
Þeir voru nú ekki rnargir
bæirnir sem við Bjössi
vitjuðum á Skaganum, auk
Neðra-Ness. Þó komum við
áreiðanlega við á
Selnesi hjá Bjarna
Egilssyni, á
Mallandi hjá
Ásgrími og
Árnýju og litum
við í nýju höfnin-
ni í Selvík, sem þá
var einmitt verið
að vinna að. Þar
niðurfrá hittum
við Ingólf Sveins-
son í Lágmúla
þar sem hann var
að ditta að bát sínum,
undirbúa fyrir grásleppu-
vertíðina.
Ingólfur hafði frá ýmsu að
segja og útskýrði fyrir okkur
kosti nýju hafharaðstöðunnar
og eiginleikum þessa lending-
arstaðar ffá náttúrunnar hendi.
Ingólfur fór þó ekki alveg eins
náið út í lýsingar sínar eins og
faðir hans Sveinn Nikódemus-
son gerði stundum þegar hann
var að lýsa innsiglingunni í
Sauðárkrókshöfh og reyndar
sjávarbotninum alveg út á
Nestána og kannski víðar. Það
var eins og Sveinn hefði gjör-
samlega kannað þessar botn-
lendur gangandi þarna niðri
og klifið og sigið fjallstoppa og
aðra fyrirstöðu sem hann sagði
á þessari siglingarleið. Sveinn
virtist þekkja þarna hverja
þúfu eins og hver annar gang-
namaður.
En toppurinn í þessari ferð
var heimsóknin í Neðra-Nes
og viðtalið við Lárus
Björnsson, sem hafði frá
mörgu fróðlegu að segja.
Koman í Neðra-Nes var
kannski ekki síður minnisstæð
fyrir þær sakir, að það var eins
og maður færi hálfa öld og vel
það affur í tímann. Hann var
ekki beisinn aðbúnaðurinn hjá
þeim Lárusi og Svövu í Neðra-
Nesi. Þau voru greinilega ekki
fólk sem gerði miklar kröfur til
lífsins, og töldust víst til þess
hóps sem afneituðu ýmsum
nýjungum. Þau voru fornbýl,
eins og Sigrún dóttir þeirra
lýsti svo ágætlega í viðtali í
Feyki á liðnu sumri.
Á heimleiðinni kom upp sú
hugmynd að koma við í
Selvíkinni og sitja fyrir grá-
sleppukörlunum þegar þeir
kæmu úr róðrinum. En til þess
vannst ekki tími, enda hefði
kannski þurft að bíða eitthvað
eftir þeim, því ekki var GSM-
sambandið komið á þessum
árurn. Það þurfti náttúrlega að
koma Bjössa inn á Krók í tæka
tíð svo hann missti ekki af
Helenu og framboðsfundinum
í Varmahlíð. Hann var ennþá
að dást að henni á heimleið-
inni.
GLEFSUR ÚR RISSBLOKKINNI
Þegar við
Bjössi
fónim á
Skagann
ÞORHALLUR ÁSMUNDSSON
SAMVINNUBÓKIN
og KS-BÓKIN
Tveir góðir kostir
til að ávaxta
spariféð þitt
KS-bókin er með 3,7% vexti,
bundin í 3 ár og verðtryggð
Samvinnubókin er með
lausri bindingu,
nafnvextir 5,8%,
ársávöxtun 5,88%
Hafið Dið séð betrí uextiP
Innlánsdeíld KS
NemendafélaQ FNV siimr
—■——baa',;. -
ri-'Lv
’d'aginn 17.11 W 21:00
Ijginrt >^9.11. W. 21:00
Jagirtn 2^11 hl. 1^:00
sgirvn 2^11 W. 21:00
oagirtrt 2/.H. W. 21:00
agirvrt 2811 W. 21:00
LaKa^ynt
Mid
mm
í háboar^a! F\q!bratÍTa™
Hlöfundur: Gu'ralf
Leih*=t,jori: Gundurrn«5^