Feykir - 29.12.2004, Side 1
RAFVERKTAKAR
- sérverslun með raftæki
rafsjá hf
Sæmundargötu 1 Sauðárkróki
Fiskiðjan Skagfirðingur og Skagstrendingur sameinuð um áramót
Nýtt stórfyrirtæki með
stofnun Fisk Seafood
Nýtt stórfyrirtæki í sjávarútvegi á íslenskan mælik-
varða verður til um áramót þegar Fiskiðjan
Skagfirðingur og Skagstrendingur á Skagaströnd
verða sameinuð í Fisk Seafood hf.
Hið nýja fyrirtæki verður í ráða um 18.400 tonna
meirihlutaeigu Kaupfélags þorskígildiskvóta og hjá því
Skagfirðinga. Það hefur yfir að munu starfa um 300 manns.
Höfuðstöðvar Fisk Seafood
verða á Sauðárkróki og Jón
Eðvard Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðujunnar
Skagfirðings verður fram-
kvæmdastjóri Fisk Seafood.
Sjá nánar bls. 2
1200 íbúar lásu ríflega 1200 bækur í nóvember
Slóu lestarhestar í Húna-
þingi vestra heimsmet?
Svo virðist sem íbúar
Húnaþings vestra, sem
eru tæplega 1200
talsins, hafi slegið met í
bókalestri síðastliðinn
nóvember.
Staðfestir þessi mikli lestur
orðróm um Islendinga sem
btikaþjóð.
Héraðsbókasafnið lánaði
út rúmlega 1200 bækur í
nóvember, þannig að álykta
mætti að hver íbúi héraðsins
hafi lesið eina bók og nokkrar
blaðsíður að auki. Eru þetta
gleðilegar fréttir, og ekki má
heldur gleyma að bókasafnið
dregur að sér æ fleiri sem set-
jast niður og dvelja þar um
stund, og glugga í blöð og
tímarit.
Það má því segja að margir
Húnvetningar kunna kúnstina
að slaka á við lestur í skamm-
deginu.
Heimild: www.northwest.is
Menningarsjóður KB banka styrkir Brimnesskóga
Veglegur styrkur
Nýlega veitti Menningar-
sjóður KB-banka Steini
Kárasyni myndarlegan
fjárstyrk til að endur-
heimta hina fornu Brim-
nesskóga í Skagafirði.
í haust hófst gróðursetning
forntlega, þegar um 150
nemendur og kennarar úr
grunnskólunum á Sauðár-
króki, Hólum, Hofsósi og
Sólgörðum hófust handa og þá
með tilstyrk Yrkju,- sjóðs
Vigdísar Finnbogadóttur fyrr-
verandi forseta.
„Styrkurinn er gríðarlega
þýðingarmikil viðurkenning
og er í raun risastórt skref að
settu marki, ekki einungis fyrir
mig persónulega, heldur alla
Skagfirðinga, ekki síst unga
fólkið sem lagði hönd á plóg
við gróðursetningu með
eftirminnilegum hætti í haust,"
sagði Steinn, framkvæm-
dastjóri Brimnesskóga. „Þetta
er frumkvöðlastarf sem miðar
að því að varðveita og efla nát-
túruauðlindir, auka atvinnu og
gera Skagafjörð enn betri en
hann er núna". Steinn vill
koma á ffamfæri þökkum til
allra sem að verkinu komu,
fræsöfnunarfólki, sjálfboða-
liðum við gróðursetningu og
landmælingu, sveitarstjóra
Skagafjarðar, garðyrkjustjóra
og öðru starfsfólki.
Sjá nánará Skagafjdrdur.com
Umhleypingasamt yfir áramótin
Hálka á
Veðrið hefur ekki verið
neitt til að hrópa húrra
fyrir síðustu dagana,
endalausar umhleyping-
ar; slydda, hvassviðri,
snjókoma, logn og rign-
ing og öllu blandað
saman.
Gert er ráð fýrir áframhald-
andi umhleypingum næstu
dagana og raunar gert ráð fyrir
sunnan hvassviðri á gamlárs-
dag.
Þetta hafa verið afleitir
dagar fý'rir þá sem eru á faralds-
fæti )4ir jól og áramóf. Mikil
hálka hefúr verið á þjóðvegum
vegum
og einhverjir útafakstrar raktir
til hálkunnar á Norðurlandi
vestra, en sem betur fer hafa
ekki orðið slys á fólki.
Rétt er að fólk fylgist vel
með fféttum og afli sér upplýs-
inga um færð og veður áður
en lagt er af stað í ferðalag.
ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
—CTenflftt eh|3
Aðalgötu 24 • Sauðárkróki • Sími 453 5519 • Fax 453 6019
Bílaviðgerðir,
hjólbarða viðgerðir,
réttingar og sprautun
jm
bílaverkstæði
Sæmundargötu 1b • 550 Sauðárkrókur • Simi 453 5141