Feykir - 29.12.2004, Blaðsíða 2
2 Feykir 45/2004
Stéttarfélagið Samstaða______________
Mótmæla fyrirhugaðri
lokun útibús KB banka
á Skagaströnd
Stéttarfélagið Samstaða mótmælir þeirri ákvörðun
KB-banka að loka bankaafgreiðslu sinni á
Skagaströnd frá 1. apríl á næsta ári.
Viðtal við Jón Eðvald Friðriksson
Sameining auðveldar
okkur að takast á við
ný og breytt verkefni
Góður árangur í rekstri Fiskiðjunnar Skagfirðings
undanfarin ár hefur ekki farið framhjá þeim sem
fylgjast með í sjávarútvegi.
Á heimasíðu Samstöðu
segir að þarna sé um mikla
skerðingu á þjónustu að ræða
og vandséð að bankinn muni
hagnast á breytingunni.
Veruleg viðskipti hafi verið
við útibúið, en þau gætu
minnkað, haldi bankinn fast
við ákvörðun sína. Stéttar-féla-
gið Samstaða beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til KB-
banka, að endurskoða ákvörð-
un sína og lialda áfram með
bankaþjónustu fyrir íbúa
Skagastrandar.
Um áramótin verður til nýtt,
öflugt, sjávarútvegsfyrirtæki,
Fisk Seafood, með sameiningu
Fiskiðjunnar og Skagstrend-
ings hf. á Skagaströnd. Fisk
Seafood verður í hópi stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja landsins
með 18.500 tonna þorskígild-
iskvóta, gerir út þrjá ffystitoga-
ra og tvo ísfisktogara, með
vinnslu á Sauðárkróki, Skaga-
strönd og í Grundarfirði. Við
tókum Jón Eðvard Friðriksson,
framkvæmdastjóra, tali en
hann er meðal annars ekki
sáttur við það rekstarumhverfi
sem sjávarútveginum er búið.
Rekstur Fisk hefúr gengið vel
mörg undanfarin ár, hverju
þakkar þú það?
-Fyrst og síðast má þakka það
hæfú starfsfólki til lands og sjá-
var. Starfsfólkið hcfur \'erið
tilbúið til þess að takast á við ný
verkefni og aðlagað sig að
bie)'ttum aðstæðum á hverjum
tínra.
í ársreikningi fyrir síðasta
fiskveiðiár kemur fram að
nettóskuldir eru komnar
niður í um einn milljarð, eru
það ekki full litlar skuldir
fyrir fyrirtæki af þessari
stærðargráðu?
-Ég tel að skuldirnar verði seint
of litlar, ekki síst í atvinnugrein
þar aðstæður eru síbreytilegar,
bæði hvað náttúruna varðar og
markaðsaðstæður.
Rifjum upp kaup ykkar á
Skagstendingi. Hvenær fóru
kaupin ffam, hvert var kaup-
verðið og hvaða kostir voru í
stöðunni fyrir Skagstrending
og hverjir aðrir voru að falast
eft ir fyrirtækinu?
-Skrifað var undir samning
þann 15. janúar 2004. Stofnað
var sérstakt félag um kaupin á
hlutabréfunum sem heitir
FISK-eignarhaldsfélag. Kaup-
verðið var 2.700 milljónir
króna og fjármagnað með eig-
infjárffamlagi upp á 1.080
milljónir og lánsfé fyrir 1.620
milljónir króna. Það voru tveir
eða þrír aðrir aðilar sem höfðu
áhuga á kaupum á félaginu
nr.a. Þormóður Rammi hf.
Siglufirði, ásamt hópi heima-
manna, Stálskip hf. í Hafnar-
firði ásamt þáverandi fram-
kvæmdastjóra Skagstrendings
hf. og ef til vill fleiri.
Stendur til að sameina fyrir-
tækin og ef svo er hvernir
verða þá aðaleigendur?
-Stjórnir félaganna skrifuðu
undir samrunaáætlun þann 23.
desember sl. vegna samein-
ingar félaganna ffá og með 1.
janúar 2005 og fær sameinað
fýrirtæki nýtt nafn FISK
Seafood hf. Kaupfélag Skag-
firðinga verður lang stærsti
eignaraðilinn.
Hvaða kostir fylgja samein-
ingu?
-Sameining á að einfalda alla
stjórnun, auðvelda verkaskipt-
ingu, auðvelda samstarf milli
landvinnslna og lækka rekstr-
arkostnað. Jafnffamt á samein-
ing að auðvelda félaginu að
takast á við ný og breytt
viðfangsefiii á hverjum tíma.
Hefur rekstur Skagstrendings
staðið undir væntingum?
-Samstarf félaganna hefur
staðið í tæpt ár og í mínum
huga hefur það gefið góða
raun. Rekstur Skagstrendings
er að koma svipað út og við
reiknuðum með . Þá er ljóst að
samstarf félaganna gerir þeim
kleift að takast betur á við
miklar skerðingar í grálúðu og
þorski sem áttu sér stað 1. sept-
ember síðastliðinn.
Ert þú sáttur við það rekstr-
arumhverfi sem sjávarútveg-
inum er búið í dag?
-Nei ég er ekki sáttur. Staða
íslensku krónunnar er allt of
sterk, kallar á erfiðan rekstur
útflutningsatvinnuveganna,
hvetur til aukins innflutnings
og aukinnar skuldsetningar
heimilanna í landinu. Hækk-
anir á stýrivöxtum Seðla-
bankans hafa ekki þau áhrif á
útlán bankanna eins og áður
var og gera lítið annað en að
halda uppi fölsku gengi kxó-
nunnar, sem að vísu lækkar
verðbólguna til skamms tíma,
en verður væntanlega skam-
mgóður vermir. Einnig verð ég
að viðurkenna að upptaka
Heimild: www.lwni.is
Leiðari
Arið kvatt
Árið 2004 verður sjálfsagt mörgum minnisstætt sökum
fádæma veðurblíðu síðastliðið sumar og haust. Spáð er
hlýnandi árferði og vonandi að við fáum að njóta þess
áfram. Þá hafa hraðar breytingar á þjóðlífi og samtélagi
einkennt undanfarin ár. Því miður hafa margar byggðir farið
illa út úr því umróti eins og sjá má af tölum um búferlaflut-
ninga.
Sókn er besta vörnin. Við verðum á næstu árunr að hafa
vakandi auga með nýjum tækifærum til sjávar og sveita og
sæta lagi við að nýta þau. Stjórnvöld hafa skapað hér
samkeppnisþjóðfélag en við þær aðstæður er mikilvægt að
til staðar séu jöfn skilyrði fyrir alla íbúa landsins, óháð efna-
hag, kyni og búsetu. Svo er ekki en það hlítur að vera nrark-
mið til að keppa að.
Lesendum Feykis fjölgar og áskrifendasöfhun blaðsins hefur
verið vel tekið. Fyrir það viljum við aðstandendur Feykis
þakka. Söfnun nýrra áskrifénda verður haldið áfram á nýju
ári en fjölgun kaupenda gerir okkur kleyft að gera gott blað
enn betra.
Bestu óskir um nýtt og heillaríkt ár.
Spurning vikunnar
Hvað gerirðu þegar þér finnst vigtin vera farin að sýna
ofháa tölu?
Leggst niður og bíð eftir að ég gleymi tölunni! (23%)
Dríf mig i ræktina eða út að skokka! (27.3%)
Skutlastí sjoppuna i einum hvelli! (7.3%)
Kaupi mérjoggingdress og góða skó! (3%)
Losa mig við vigtina (altso tækið)! (39.4%)
Hægt er að taka þátt í könnunum sem birtast í Feyki með þvi að fara inn á heimasíðuna
Skagafjörður.com og kjósa þar.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Útgefandi:
Feykirhf.
Skrífstofa:
Aðalgötu2l,
Sauðárkróki
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson, Herdís
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritstjórí&
ábyrgðarmaðun
Á rni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Simar 455 7100
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
PéturIngi Björnsson
Simar.
4535757
Netföni
Ikrokur. is
Askriftarverð:
210 krónur hvert tölublað
meðvsk.
Lausasöluverð:
250 krónur með vsk.
Póstfang:
| Box 4,550 Sauðárkrókur
Setning og umbrot:
Hinirsömusf.
Prentun:
Hvitt & Svart ehf.
auðlindagjalds á sjávarútveg-
inn frá 1. september sl. er arfa
vitlaus ákvörðun. Þessi skattur
er ekkert annað en landsbyggð-
arskattur og verður ekki mætt
með öðru en lækkun á launa-
kostnaði. Lækkun launakostn-
aðar verður ekki framkvæmd
nema með því að hreinlega
lækka launin hjá starfsfólkinu
eða að fækka starfsfólki fýrir-
tækjanna með aukinni tækni-
væðingu. Þetta eru afleit skila-
boð til fólks og fýrirtækja sem
vilja lifa og starfa út á landi.
Þessi skilaboð ganga þvert á
þau skilaboð sem fýrirtæki hafa
almennt verið að fá, að með
lækkun skatta eru fýrirtæki
hvött til uppbyggingar og dáða.
Fólk á landsbyggðinni þarf
hvatningu til dáða, en ekki
sérstakann skatt sem dregur
máttinn úr fólki og lamar þau
fáu fýrirtæki sem hafa burði til
þess að byggja upp í kringum
sig. Ég held að þeir stjórnmála-
menn sem gefa sig út fyrir að
standa vörð um hagsmuni
landsbyggðarinnar ættu að
sammælast um að hnekkja
þessum ólögum og það strax á
þessum vetri.
Þið hafið verið í talsverðu
samstarfi við Háskólann á
Hólum við uppbyggingu
fiskeldisbrautar, háskóla-
kennslu á sviði fiskeldis. Er
þetta eitthvað sem þið sjáið
framtíð í fyrir Fisk?
-Fiskiðjan innréttaði og gerði
upp efri hæðinna á Skjaldar-
húsinu og lagði í það talsvert
mikla fjármuni. Rökin fýrir
þeirri Ijárfestingu er að við
teljum að til lengri tíma litið sé
það mikilvægt fyrir þetta
landssvæði og þar með þetta
fyrirtæki að hér verði til staðar
þekking sem snýr að fiskeldi og
annarri menntun á háskóla-
stigi.
Að lokum. Því hefur verið
fleygt að aðstaðan í gamla
Skjaldarhúsinu til kennslu og
rannsókna í fiskeldi sé með
því besta sem gerist í
heiminum er eitthvað til í
því?
-Ég kann eklci að meta það
hvort við séum á heims-
mælikvarða, en hitt veit ég að
þessi aðstaða verður mjög góð
og með því besta sem gerist. Ég
tel einnig nrjög mikilvægt að
skólinn og rannsóknir honum
tengdar byggist upp í svo
nánum tengslum við atvinnu-
lífið og geti þar með skapað
honum mikla sérstöðu til
framtíðar.