Feykir


Feykir - 05.01.2005, Blaðsíða 3

Feykir - 05.01.2005, Blaðsíða 3
01/2005 Feykir 3 Hjalti Þórðarson skrifar Að loknum landsmótum Landsmótsári í Skagafirði er lokið. Stór landsmót í Skagafirði eru þó ekki neitt nýtt og nefna má að landsmót UMFÍ hefur verið einu sinni áður og landsmót hestamanna hafa verið fimm sinnum. Þetta ár er þó sérstakt á þann hátt að landsmótin eru tvö og með fleiri keppendum en áður hefur þekkst, um 3000 á mótunum tveimur. Að halda stórmót sem þessi á sama stað á sanra sumri sýnir kjark og dug innan íþróttahreyfingarinnar og sveitarfélagsins. Fyrir mótin stóð Sveitar-féla- gið Skagafjörður mjög myn- darlega að allri uppbygg-ingu á íþróttaaðstöðu á Sauð-árkróki. Tíminn til þess var stuttur og þurfti að byggja upp toppaðstöðu á skömmum tíma og það tókst með glæsibrag. Aðstaðan, sem verður ekki af oklcur tekin, er meira og minna fyrsta flokks og koma með henni möguleikar á betra íþróttastarfi, meiri fjölbreytni og auknu mótahaldi. 1 allri þessarri uppbyggingu má ekki gleyma þeim fjölmörgu einstaklingum sem lögðu nótt við dag svo mánuðum skiptir við vallarbyggingu og undir- búning mótanna. Á mótunum sjálfunr gekk einnig vel að fá fólk til vinnu og skiptu sjálfboðaliðar hundruðum þegar upp var staðið. Þegar á reyndi var greini- lega mikill metnaður meðal heimamanna að standa sig sem Landsmót UMFI á Sauðárkróki. Loftmynd frá hádegi á laugardegi. mymt: pib Knattspyrnuáhugamenn við stúkubyggingu. mynd: óab best og leggja sitt að mörkum. Framlag alls þessa fólks er gríðarlega rnikið og hægt er að blása á þær raddir sem heyrst hafa um að tími sjálfboðavinn- unnar sé liðinn. Þvert á móti er hægt að segja að sjálfboða- vinnan hefúr sjaldan eða aldrei verið rneiri og öflugri. Fyrir allt þetta ber að þakka og verður sennilega seint fúllþakkað. UMSS Ungmennasamband Skaga- fjarðar (UMSS) var stofnað 1910 og hefúr starfið á þessum tæpum 100 árum að jafúaði verið mikið og öflugt. Héraðsmótin 17. júní þóttu stórhátíðir, haldið var úti sér knattspyrnuliði um tíma og set- tar upp leiksýningar svo eitthvað sé upp talið. Héraðsþjálfarar í frjálsum og knattspyrnu voru fastir liðir svo árum skipti og þjálfúðu þeir vítt og breytt um héraðið. Landsmótið 1971 var einn stórviðburðanna sem staðið var fyrir og var mikil lyftistöng fyrir íþróttalífið í Skagafirði. Ekki er efi að uppbyggingin vegna mótanna í sumar verður jákvæð fyrir íþróttalífið í héraðinu á komandi árum. Árin 1971 og 2004 eru tímamótaár, ár stórviðburðanna í sögu Ungmennasambandsins. Til hamingju Skagfirðingar með glæsilegt ár! Hjalti Þórðarson stjórnarmaður UMSS PARDUS HOFSÓSI Bifreiða- og búvélavekstæðið Pardus á Hofsósi er til sölu. Verkstæðið er vei búið tækjum, rekið í 322 fm góðu húsnæði. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur Félagið hefur m.a. leyfi til endurskoðunar samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar og vottun til bílaréttinga. Guðmundar L. Friðfinnssonar NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFNUNNI rithöfundar og bónda. Strimill ehf Guð blessi ykkur ðll. FASTEIGNASALA SUÐURG0TU 3 550 SAUÐÁRKRÚKUR SÍMI 453 5900 & 864 5089 Aðstandendur »lit ti ÍBÚÐ TIL SÖLU STARFSFÓLK ÓSKAST Til sölu er 78 ffn íbúð á neðri hæð hússins við Sæmundargötu 11, Sauðárkróki. Starfsfólk vantar í skreiðarverkun á Ibúðin sem er þrjú herbergi, eldhús, búr og geymsla, Sauðárkróki er uppgerð að mestu leyti og í góðu ástandi. Húsið er nýmálað að utan. Verð 7,5 miljónir. Upplýsingar gefur Sigurður í síma 825 4419 NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFNUNNI Strimill ehf 4l|c FASTEIGNASALA SUÐURGOTU 3 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 453 5900 & 864 5889 p; ihlft*klhhlft«klfchlft«kli FISK seafood ehf. Könnmin Hvað fannst þér um Áramótskaup Sjónvarpsins? Það var fyndið! (86.8%) Mér fannst þeir sem komu fram í eigin persónu ekki nógu sann- færandi! (3.5%) Það var nú frekar klént og ekki nógu nastí! (4.4%) Sveppi var langflottastur! (2.2%) Ég hreinlega sá ekki Skaupiði (3.1%) Hægt er að taka þátt í könnunum sem birtast í Feyki með því að fara inn á heimasíðuna Skagafjörður.com og kjósa þar. Æskilegt er að hver aðili kjósi aðeins einu sinni en ítrekað skal að könnunin er meira til gamans og taka skal niðurstöðumar með nokkrum fyrirvara. Sveinn fær forverkefnisstyrk Á fundi Atvinnu- og ferða- málanefndar Skagafjardar í síðustu viku var tekið fyrir erindi frá Sveini Ólafssyni, sér- fræðingi við Raunvísindastofun Háskóla Islands, þar sem farið er fram á forverkefnisstyrk til gerðar viðskiptaáætlunar vegna uppbyggingu og skipulagningar hátækniseturs á Sauðárkróki. Nefndin samþykkti að styrkja verkefnið um kr. 1.000.000 og taka fjármunina af liðnum ógreiddar fjárveitingar sem lagðar voru til hliðar árið 2003. íbúum í Skagafirði fækkar um 51 Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Islands voru íbúar í Skagafirði 4.357 þann f. desem- ber sl. Þar af bjuggu 4.141 í sveitarfélagsinu Skagafirði og 215 í Akrahreppi. Þann l. desember 2003 voru íbúar sveitarfélagsins Skaga- fjarðar hins vegar 4.178 og íbúar Akrahrepps 229. Ibúum í sveitarfélaginu Skaga- firði hefur því fækkað um 37 á milli ára og um 14 í Akrahreppi. Samtals hefúr því fækkað um 51 einstakling í Skagafirði á einu ári. Sjónhornið senn inn um bréfalúguna Prentsmiðjan og auglýsingasto- ftn að Borgarflöt á Sauðárkróki hefur verið opnuð og Feykir því prentaður á Sauðárkróki í dag. Þeir sem beðið hafa óþreyju- flillir eftir Sjónhorninu síðan frá því fyrir jól ættu því senn að geta tekið gleði sína en eftir því sem Feykir hefur fregnað þá er áætlað að Sjónhornið komi út nú strax á morgun.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.