Feykir


Feykir - 05.01.2005, Qupperneq 7

Feykir - 05.01.2005, Qupperneq 7
01/2005 Feykir 7 Nafn: Haukur Suska-Garðarsson. Árgangur: 1974. Fjölskylduhagir: Kvæntur og á þrjú börn. Kona mín heitir Sonja Suska og börnin Haukur Marian, Leon Paul og Lilja María. Starf/nám: Atvinnuráðgjafi í Austur Húnavatnssýslu. Ég lærði í Þýskalandi, landfræði með áherslu á ferðamál, viðskipti og tungumál. Bifreið: Glæsilegur Galloper sem er nú í viðgerð, Daihatsu Applause og gömul Volkswagen Caravella. Hestöfl: Samtals um 200 hestöfl. Hvað er í deiglunni: Ýmislegt áhugavert. Hvernig hefurðu það? Ég hef það mjög gott. Ég er ham- ingjusamur með minni fjölskyldu, í landi sem ekki þarf að búa við hryðjuverk og hungursneyð. Hvernig nemandi varstu? Frekar samviskusamur en hafði þó gaman afýmsu öðru en náminu, sér í lagi á menntaskólaárunum. Hvað er eftirminnilegast frá ferm- ingardeginum? Ætli það það sé ekki sjálf athöfnin í kirkjunni. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðirstór? Júdómeistari, lögga og bóndi. Hvað hræðistu mest? Hvítabirni sem koma hungraðir að ströndum Húnaflóans. Hver er fyrsta platan sem þú keyptir leða besta)? Besta plata sem ég hef keypt er, Band of Gypsys með Jimi Hendrix. Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? Það væri eitthvað með Elvis eða Bítlunum. Hverju missirðu lielst ekki afí sjón- varpinu (fyrir utan fréttir)? íslenskum bíómyndum. Besta bíómyndin? Mér finnst Forrest Gump með þeim allra bestu, sú mynd var virkilega fyndin og sorgleg i senn. Bruce Willis eða George Clooney/ Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? Angelina Jolie skal það vera. Hvað fer helst í innkaupa- körfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Það er nú helst súkkulaði sem laumastmeð. Hvað er ímorgunmatinn? Það myndi vera AB mjólk með Musli + ein skeið aflýsi. Mér er sagt að hollur morgunverður sé það sem skiptir máli þegar næringin er annars vegar. Uppáhalds málsháttur? Sá lifirsem elskar. Fann þennan i dagbókinni minni 2004, hljómar býsna vel. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Jenni í "Tomma og Jenna" fannst mér alltafgóður Hvert er snilldarverkið þitt í eld- húsinu? Þar á ég því miður fá meistaraverk að baki sem tekurþví að nefna. Hver er uppáhalds bókin þín? Að sjálfsögðu Vatnsdælasaga. Enda erum við Jón Gíslason á Hofií Vatnsdal, Þór Hjaltalín minjavörður og Pétur Jónsson safnvörður á Reykjum að vinna að verkefni sem heitir “Á slóð Vatnsdælasögu". Við viljum gera söguna sýnilega fyrir ferðfólki í Vatnsdal og Þingi. Svæðið er mjög afmarkað sögusvið sem auðvelt er að merkja og gera skil á ýmsan hátt. Efþú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... Ég er að verða svo heimakær Húnvetningur. Ég hugsa að ég veldi bara þriggja tíma útsýnisflug um svæðið. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Að hafa stundum takmarkaðan tíma til alls þess sem maður vill gera. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Það er ekkert eitt sem ég get nefnt, en yfirleitt vill ég sjá það jákvæða i fari fólks. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Liverpool er mitt uppáhaldslið. Sennilega vegna þess að ég fékk sem drengur að gjöf trefil með merkjum þess félags. Ég er annars ekki mikill áhugamaður um fótbolta. Hvaða íþróttamanni hefurðu mes- tarmæturá? Af íþróttamönnum hef ég mestar mætur á Bjarna Friðrikssyni júdó- manni og Muhamed Ali sem var býsna fimur. Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Heim i Búðardal. Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar a ð þinu mati? Þar mætti t.d. nefna Nelson Mandela og auðvitað marga fleiri. Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Konu mína, eld, og íslenskan hest. Hvað er best í heimi? Iceland... fþróttafréttir íþróttamaður Skagafjarðar 2004___________ 12 tilnefningar Björn Jónsson hestamaður úr Stíganda var í kvöld útnefndur íþróttamaður Skagafjarðar. Þetta er í fyrsta sinn sem hestamaður fær þessa viður- kenningu. Hér á eftir fylgir umsögn frá UMSS um þá þrjá einstaklinga sem urðu í efstu þremur sætunum í kjörinu. 1. sæti Björn Fr Jónsson Stíganda fyrir hestaíþróttir Björn átti glæsilegt tímabil á árinu 2004 og skipaði sér í hóp albestu hestamanna landsins. Á löngum lista yfir glæsta sigra stendur hæst sigur í tölti á Landsmóti á Hellu, 2. sæti í B flokki á sama móti og sigur í tölti á Islandsmótinu í hestaíþróttunr. Auk þess sigraði hann á mörgum öðrurn sterkum mótum og Björn með bikarana. Mynd: bb má þar nefiia sigur í ístölti í Reykjavík. Björn er íþróttamaður Stíganda árið 2004, besti hesta- íþróttamaður Skagafjarðar og kosinn hestaíþróttamaður ársins á landinu á uppskeru- hátíð hestamanna í Reykjavík. 2. sæti Sunna Gestsdóttir Tindastóli fyrir frjálsar íþróttir Sunna hefur á undanförnum árunr skipað sér á bekk allra fremstu íþróttamanna þjóð- arinnar og verið best í sprett- hlaupum og langstökki. Skemmst er að minnast sigra hennar á Landsmóti UMFÍ en þar sigraði hún í fimm greinunt. Sunna setti glæsileg íslandsmet á árinu, tvíbætti metið í 100 m hlaupi og setti einnig met í 300 m hlaupi. Hún á nú skráð 5 íslandsmet í flokki fúllorðinna. Sunna var á árinu ntjög nálægt því að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikana en það hefði verið glæsileg rós í hnappagat á stórgóðu ári. Sunna er íþróttamaður Tindastóls árið 2004. 3. sæti Sigurbjörn Árni Arn- grímsson Tindastóli fyrir frjálsar íþróttir Sigurbjörn Árni átti mjög gott tímabil á árinu 2004. Ásamt því að vera burðarrásin í öflugu UMSS liði er hann keppnismaður gríðarlegur og gefur mikið af sér sem slíkur. Sigrarnir á árinu eru rnargir og glæsilegir og má þar nefna átta sigrar á tjórurn stærstu mótum ársins þar af tvöfaldur sigur í 800 og 1500 m hlaupum á Landsmóti UMFI á Sauðárkróki. Sigurbjörn var kjörinn besti frjálsíþróttakarl UMSS árið 2004. Sitt lítið af hverju úr sportinu Kiddi aftur á Króldnn Kristinn Friðriksson, fyrrver- andi þjálfari og leikmaður úrvalsdeildarliðs Grindavíkur í körfúknattleik, hefur tilkynnt félagaskipti í Tindastól, en Kristinn var áður þjálfari og leikmaður Tindastóls. Kristinn verður löglegur með Tindastól hinn 30. janúar í leik gegn KR og gæti tekið þátt í 7 síðustu deildarleikjum liðsins. Aðeins einn erlendur leik- maður er eftir í herbúðum Tindastóls, bakvörðurinn Bethuel Fletcher, en Mbl.is hefur eftir Kára Maríssyni þjál- fara Tindastóls að leitað sé að bandarískum miðherja í stað Ron Robinson sem lék 5 leiki með liðinu. Staðarskálamót í körfubolta var haldið í íþróttanriðstöð Húnaþings vestra 27. og 28. desember og voru 6 karlalið og 4 kvennalið skráð til keppni.í karlaflokki mættust í lokaleik lið Kormáks-A og lið Grettis. Var það sannkallaður úrslita- leikur, en liðin voru jöfii að stigurn fyrir leikinn. Það var Kormákur-A sem hafði betur, annað árið í röð. 1 kvenna- flokki sigraði lið Dagsbrúnar enn eitt árið. Króksarinn Birna Valgarðs- dóttir hefur sópað að sér verðlaunum upp á síðkastið. Hún er fyrirliði og einn af burðarásum meistaraliðs Kefla- víkur í körfúknattleik auk þess að vera einn leikreyndasti leik- maður kvennalandsliðs íslands ifá upphafi. Á dögunum var Birna valin íþróttamaður Iþróttabandalags Keflavíkur, skömmu síðar Iþróttamaður Reykjanesbæjar og loks Körfuknattleikskona ársins af KKl.Birna er fædd og uppalin á Sauðárkróki og hóf körfú- boltaferilinn nreð Stólunum. smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is Einbýlishús í Hlíðarhverfí á Sauðárkróki Einbýlishús með bilskúr til leigu eða sölu. Upplýsingar í síma 862 6114. Felgur óskast Vantar 4 stk. af5 gata og 10 tommu stálfelgum sem passa undir Suzuki Vitara. Upplýsingar ísima 868 5082. Til leigu Stórt íbúðarhús stutt frá Sauðárkróki tilleigu. Erlaustnú þegar. Einnig hesthúsbásar til leigu á Flæðigerði. Upplýsingar i síma 453 5558.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.