Feykir - 09.02.2005, Qupperneq 4
4 Feykir 06/2005
Árgerð ‘39 - ‘40 við Gamta barnaskátann s Sauðárkróki. Flottu kamrarnir til hægri. Mynd frá Héraðsskjalasafni Sk.
Brynjar Pálsson bóksali á Króknum í léttu spjalli
skreyttar með flórsykri og
þóttu alveg æðislegar.“
Hvernig gekk dagurinn fyrir
sig?
„Bolludagurinn var tekinn
snemma því þeir sem mættu
fyrstir við Bakaríisdyrnar, og
voru fyrstir inn, fengu fullann
poka af bollum. Þeir sem komu
í næsta holli fengu eins og
hálfan poka og síðan minnkaði
skammturinn þangað til aðeins
ein var frí og loks engin. Það
var því til mikils að vinna.
Sunnudagurinn fyrir bollu-
dag fór í að útbúa bolluvendi,
svo óðu menn um bæinn með
bolluvendina á lofti líkt og
sverð, ruddust inn í hús og
hýddu húsráðendur og fyrir
hýðingarnar veittu húsráðend-
ur verðlaun - bollur ffá Gutta.“
„Maður á að éta alveg
ógeðslega mikið!"
í tilefni af bolludegi, sprengidegi og öskudegi fékk Feykir þá
snjöllu hugmynd að taka púlsinn á Bóksalanum - Brynjari Pálssyni
- og athuga hvort hann væri ekki fáanlegur til að rifja upp þessa
daga eins og þeir voru þegar hann var pjakkur á Freyjugötunni.
Það reyndist einhverra hluta vegna auðsótt mál og fyrst var spurt
hvernig bollurnar voru í þá gömlu góðu daga.
„Bolludagurinn á Króknum er
eftirminnilegur svo bollurnar
hljóta að hafa verið ægilega
góðar. Ekki voru þær þó
margar tegundirnar sem hægt
var að velja á milli. Rúsínu-
bollur, búðings- og sultubollur
sem voru sérhannaðar af
Gutta bakara og sérstakur
öðlingur af Skaga var fenginn
hér inneftir til að gera gatið
fyrir sultuna með þumal-
puttanum. Þetta þótti pínu
rosalega fínt. Síðan voru það
rjómabollurnar sem voru
Verkefnastjóri
Sauðárkróki
Vegagerðin leitar eftir verkefnastjóra til starfa I árangurs- ogeftirlitsdeild
á Sauðárkróki. Árangurs- og eftirlitsdeild sinnir verkefnum á öllum
svæðum Vegagerðarinnar. Laun skv. kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Starfssvið:
• Umsjón með framkvæmd gæðaeftirlits í þjónustu og viðhaldi
• Árangursmat framkvæmda f viðhaldi og þjónustu
• Rýni útboðslýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði raungreina eða önnur sambærileg
menntun og reynsla sem nýtist í þessu starfi
• Góðir samstarfshæfileikar
• Frumkvæði og sjálfstæði ( vinnubrögðum
• Góð tölvukunnátta
Hjá Vegagerðinni starfa um 330 fastir starfsmenn og þar af eru um 90
háskólamenntaðir starfsmenn sem vinna í hinum ýmsu málaflokkum
um allt land. Vegagerðin býður upp á gefandi starfsumhverfi þar sem
lögð er áhersla á góða starfsaðstöðu og er vinnustaður sem hentar jafnt
báðum kynjum. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
VEGAGERÐIN
Sauðárkrókur er stærsti þéttbýliskjarninn á
Norðurlandi vestra þar búa nú um 2.700
manns en í sveitarfélaginu Skagafirði búa
um 4.200. Á Sauðárkróki er fjölþætt atvinnulíf
sem byggir á mörgum atvinnugreinum. Á
undanförnum árum hefur gengið vel að efla
vinnustaði á Sauðárkróki sem byggja á
þekkingarstörfum. Vel er staðið að allri
samfélags- og heilbrigðisþjónustu á
Sauðárkróki og allt umhverfi gott fyrir
fjölskyldufólk. íþrótta- og félagslíf á
Sauðárkróki. er blómlegt og þar er gott
framboð afþreyingar af ýmsum toga. Auk
leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla er
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á
Sauðárkróki. Sauöárkrókur liggur vel við
samgöngum, rúmlega 3 klst akstur er á milli
Sauðárkróks og Reykjavíkur.
IMG
MANNAFL
LIÐSAUKI
Umsjón með starfinu hafa Davíð Freyr Oddsson (david@img.is) hjá Mannafli
- Liðsauka í Reykjavík og Sigríður Ólafsdóttir (sigridur@img.is) hjá Mannafli
- Liðsauka á Akureyri. Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Mannafls • Liðsauka.
Laugavegi 170
105 Reykjavik
Sími 540 7100
mannafl@img.is
Skipagótu 16
600 A'
Hvað er eftirminnilegast frá
bolludeginum?
„Það er eftirminnilegt með
Kristján Gíslason sem var
kaupmaður hér á Króknum.
Það var eftirsótt að hýða KG
því hann hreyfði sig ekki úr
rúmi fýrr en hann taldi að allir
sem vildu hýða sig væru
komnir og ekki var skorið við
nögl því hann lét sækja fleiri
bala af bollum til Gutta svo allir
fengju nóg. Yfirleitt var það
þannig á þessum degi að allir
voru velkomnir að heimsækja
húsráðendur, helst reyndar hér
í útbænum þar sem efnameira
fólk bjó.“
En hvernig var þá sprengi-
dagurinn?
„Sprengidagurinn hefúr alltaf
verið hefðbundinn á Króknum
- þetta er virkilegur heimilis-
dagur. Það má segja að menn
hafi sprengt sig en þá var það til
siðs að éta saltkjöt og baunir í
hádeginu en ekki á kvöldin.
Menn stóðu yfirleitt ekki upp
frá borðum fyrr en klukkutíma
eftir að búið var að fýlla kviðinn
og láta sjatna svoldið, eða eins
og Gústi Munda í Tungu segir:
Maður á að éta alveg ógeðslega
mikið svo maður getur ekki
staðið upp á eftir. Gústi segir
að síðan sé best að kasta sér
upp í dívan og leifa meltingunni
að vera eðlilegri, standa síðan
upp rólega og byrja aftur að
hugsa um næsta sprengidag."
Hvernig finnst þér að
sprengja þig svona?
„Sjálfum finnst mér vont að
borða svona veislumat á
kvöldin enda hef ég orðið
andvaka og með innantökur
sem ég losna ekki við fyrr en
snemma á öskudagsmorgni.
En ég held að þetta sé öllum til
góðs.“
En það hefur verið fjör á
öskudeginum?
„Já, öskudagurinn var einn
skemmtilegasti dagur ársins
hér á Krók. Mikið tilstand og
mikið að gera hjá okkur
krökkunum.“
Nú hafa öskupokarnir horfið
að mestu í seinni tíð en
hvernig var það í denn?
„Maður lét hafa sig í það að
sauma svokallaða öskupoka
sem maður laumaði aftan á
fólkið og flottast þótti ef
hengdir voru margir pokar
niður bakið og alveg niður
undir hné. Stundum tókst ekki
betur til en svo að títuprjónninn
gekk inn í holdið og þá urðu
viðbrögðin beitt hjá þeim sem
varð fyrir stungunni. Pokarnir
voru misjafnir. Steipurnar
vönduðu sig heljarins ósköp
því þær saumuðu jafnvel út í
pokana og var handbragðið
eftirminnilegt, enda voru
handavinnutímarnir í skól-
anum notaðir til að sauma út í
pokana.
Hjá mörgum stúlkunum
voru pokarnir glæsilegir en
þegar mikið lá við var farið til
Pálu Sigga Bjöss og hún málaði
á pokana, hrein listaverk í
okkar augum.
Þeir báru nafn með rentu
öskupokarnir því í þá var sett
aska sem nóg var til af á
Króknum í þá daga. Það voru
ekki einvörðungu krakkarnir
sem nutu þess að hengja poka
á vegfarendur því fólk á öllum
aldri tók þátt í leiknum - og
útbærinn var fullur af fólki.“
Eitthvað fleira hefur verið
gert?
„Jújú, kötturinn var sleginn úr
tunnunni og við fengum að
berja á tunnuræfli sem hengdur
var upp á staur á skólalóðinni
sunnan við Gamla barnaskól-
ann. Menn gengu mörghundr-
uð hringi og lömdu og lömdu í
tunnuræfilinn sem aldrei ætl-
aði að gefa sig. Loks þegar
tunnan lét undan var sá sem
veitti náðarhöggið sæmdur
titlinum kattarkóngur og loddi
sæmdarheitið við hann fram
að næsta öskudegi og þótti
flott.“
Kanntu eldd einhverja góða
sögu frá öskudeginum?
„Ég man sérstaklega eftir einni
uppákomu sem hestamenn
komu á. Þeir slógu köttinn úr
tunnunni frammi á Flæðum
sem þá voru ísilagðar. Þeir riðu