Feykir - 30.03.2005, Blaðsíða 7
12/2005 Feykir 7
Guðmundur 1/altýsson skrifar_
Vísnaþáttur 402
Heilir og sælir lesendur góðir.
Rétt er og skylt að byrja á smá
leiðréttingu vegna þáttar nr. 400.
Voru þar birtar vísur eftir Geira í
Eskihlíð og fór ég fyrir klaufaskap
rangt með föðurnafn hans. Eins og
bóndi í Skagafirði benti mér á var
hann að sjálfsögðu Gunnlaugsson.
Byrjum þá að þessu sinni á nokkr-
um vísum eftir Einar Sigtr>'ggsson
á Sauðárkróki.
Bandarfídn boða stríð
blind er þeirra hyggja.
Auðvaldssinnar alla tíð
ekkifriðinn tryggja.
íraksmálið aldrei deyr
árásin var byggð á sandi.
Ennþá stjórna aðeins tveir
okkar kœra föðurlandi.
Landráðatnenn ég lítið virði
landanum eru tarkmörk sett.
Þeireru okkarþjóðarbyrði
sem þurfa að brjóta lög og rétt.
Framagosiframhleypinn
fer sér oft að voða.
Upphajið og endirinn
er því rétt að skoða.
Örlög manna enginn sér
erfiðleikar trufla geð.
Lítils virði lífið er
eflánið fylgir ekki tneð.
Heyrum þá næst frá hinum snjalla
Höskuldi Einarssyni frá Vatnshorni.
Er hann í þessari lipru hringhendu
að hugsa til hesta sinna.
Þráin geymist alltaf ung
án þess heimur viti.
Út að tcyma alinn lung
öllu gleyma striti.
Horft hefur sá snjalli maður trú-
lega á Skorradalsvatnið er hann
orti þessa.
Sléttur ísinn blikar blár
bjarmalísa glœðist.
Létturfrísar, kvikur klár
kannski vísa fœðist.
Grunur er á að Höskuldur hafi
verið að skjóta á vin sinn Sigurð
Jónsson frá Brún, hér í Svartárdal
er hann orti svo.
Ýmsa ge)'mir eilífþögn
aðrirgœta vandans.
Þér hefur miðað alltaf ögn
afturábak tiljjandans.
Það er Vilhjálmur Benediktsson
frá Brandaskarði sem yrkir svo.
Koss á vörum blíður brann,
blandinn yndi fínu.
Aldrei slíkan eld égfann
œða í blóði mínu.
önnur vísa kemur hér eftir Vil-
hjálm.
Röðull hlær og rennur snœr,
rósin grœr á engi.
Lindin tœr og Ijúfur blœr,
leika á skœra strengi.
Þrátt fyrir að nú sé í huga undir-
ritaðs vor á næsta leyti koma hér
næst tvær vetrarvísur sem að ég
held að séu eftir Erlend Árnason,
áður bónda á Hlíðarenda í Fljóts-
hlíð.
Farðu þorri ífúlan rass
feigðar mitt á skerið.
Óstöðugur, háll og hvass
Itefurðu alltaf verið.
Signi Drottinn sjó og lönd
sé liann vorforsorgun
Góðir tímarganga í hönd
góa kemur á morgun.
Sá snjalli Káinn mun eitt sinn hafa
ort svo til gamals kunningja.
Braginn vanda hygg ei hót,
handa landanum.
Það er andlegt ættarmót
með Árna ogfjandanum.
Svo harkalega lýsti hann eitt sinn
samferðamanni.
Þú ert svcitar svívirðing
sótugi eldhús-raftur.
Aftan, framan og allt um kring,
ekkert nema kjaftur.
Mörgum sem eldri ern er minnisstæð
frásögn, sem var á þá leið að gömul
vinkona hans skammaði hann f)TÍr
drykkjuskap og taldi að ef ekki væri
Bakkus annars vegar væri hann
kvæntur maður fyrir löngu. Um þau
orðaskipti orti Kristján Níels.
Bakkus gamli gaf mér stnakka
gæðin bestu, öl og vín.
Honum á égþað að þakka
að þú ert ekki konan mín.
Ekki veit ég hvernig stendur á að
þessi kunna vísa Þormóðs Páls-
sonar frá Njálsstöðum rifjast upp
er þesssi þáttur er í smíðum.
Vi'sf iiiun engu á þig logið
um þaðflestum saman ber.
Hvar sem gast þú smugu smogið
smánin skreið á hæla þér.
í framhaldi af þessum staðreyn-
dum kemur ósjálfrátt upp í hugan
þessi magnaða vísa Gissurar í Va-
ladal og verður hún jafnframt sú
síðasta að þessu sinni.
Unir best í annars neið
aflirak mesta skitið.
Hvar sem festir kjaft á sneið
kennaflestir bitið.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
Jón Bjarnason þingmaður skrifar
Að þakka fyrir sig
í Austurdal
geyma.
Eftir dalbotnum ryðjast
jökulárnar frjálsar og
tignarlegar og mynda víða
ægifögurgljúfur.
í hlíðum og undirlendi
Austurdals er að finna einn
merkasta birkiskóg á Islandi.
Stefán okkar á Keldulandi
kom fram fyrir hönd
mannlífsins sem lifað hafði
þar öldum saman og deilt
kjörum í gleði og sorg með
náttúruöflunum.
Þarna voru samtvinnuð
sterk einkenni okkar skag-
firsku menningar, lífsgleði og
söngur, hestar og smala-
mennskur.
Viðtalið við Helga heitinn
á Merkigili og svipmyndin
frá útför hans lét engan
ósnortinn.
Allt var þetta þó svo
eðlilega samofið hinni sterku
ímynd Skagafjarðardalanna.
Messan í Ábæ og predikun
séra Ólafs Hallgrímssonar í
Ábæjarkirkju færði Austur-
dalinn á svo náttúrulegan
hátt inn í mitt svið heims-
viðburðanna.
Ákall prestsins og
fræðimannsins á Mælifelli
um grið og frið til handa
mönnum og náttúru gat
alveg eins verið bein
útsending úr dómkirkju eða
frá friðarþingi hvar sem var í
heiminum.
Ljóst er að höfundurinn
Árna Gunnarsson er á
heimavelliog þykirafarvænt
um þá einstæðu náttúru-
, fegurð og mannlíf sem hann
var að gera skil í myndinni.
Allt þetta birtist okkur
áhorfendum á einlægan hátt
og við hrifumst með. Hafið
öll sem að þessu góða
framtaki komu þökk fyrir.
Jón Bjarnason
Að kveldi páskadags var sýnd í sjónvarpinu „ heimildamynd um Austurdal í
Skagafirði, mannlíf og menningu í einni af náttúruperlum landsins" eins og
stóð í dagskrár kynningunni.
Það var svo sannarlega
hægt að njóta þessarar
stundar fyrir fram sjónvarps-
skjáinn.
Öll umgjörð myndarinnar
varþrungin hlýjuog virðingu
fyrirþeim dýru náttúrperlum
sem Skagatjarðadalir hafa að
Dagskrá Skíðamóts íslands í Tindastóli
Midvikudagur Föstudagur Laugardagur
20:00 Setning í Svig Stórsvig
Sauðárkrókskirkju 10:00 Fyrri ferð karlar 10:00 Fyrri ferð karlar
10:45 Fyrri ferð konur 10:45 Fyrrí ferð konur
Fimmtudagur 12:30 Seinni ferð karlar 12:30 Seinni ferð karlar
Svig 13:00 Seinni ferð konur 13:00 Seinni ferð konur
10:00 Fyrrí ferð karíar
10:45 Fyrrí ferð konur Ganga Ganga
12:30 Seinni ferð karíar 11:00 Ganga með frjálsri 14:00 Boðganga
13:00 Seinni ferð konur aðferð 16:00 Verðlaunaafhending
17:00 Sprettganga í íþróttahúsinu
Ganga
14:00 Ganga með
hefðbundinni aðferð
Svig
15:00 Fyrri ferð karíar
17:00 Seinni ferð karlar
smáauglýsingar Sendið smáauglysingar til frirrar birtingar á feykir@krokur.is
Hvellur Bíll til sölu Bífreið til sölu
Nú dönsum við í Ljósheimum Til sölu Toyota HiAce 4WD, Til sölu Toyota LandCruiser VX
föstudagskvöldið 8. Apríl frá árgerð 2000, ekinn 114 þúsund árgerð 1997. Billinn erkeyrður
kl. 22-02. Kiddi Bjama frá km. Ásett verð kr. 1.500.000,- 185 þúsund kílómetra. Góður bíll
Selfossi sér um músikina. Ath. Nánari upplýsingar í sima 453 og vel við haldið.
Missið ekki afþessu einstæða 5590/ 8930391 Upplýsingargefa Brynjarísíma
tækifærí. Fjölmennum og skem- 453 5950 eða Jón Hallur I síma
mtum okkur. Bílar til sölu 4555300.
Nefndin - KIA árgerð 1997, ekinn 95
þúsund km, verð 750 þús.
Bill til sölu - KIA Vitra Grand árgerð 1999,
Til sölu Toyota Landcruiser ekinn 73þúsundkm, verð 1500
árgerð „86 ekinn 330.000,35" ! þús.
dekk. Upplýsingar í síma - BENZ kálfur, árgerð 1984,
4538015 og 8928015. tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 453 5124.