Feykir - 04.05.2005, Blaðsíða 4
4 Feykir 17/2005
.. Vinnmg'lwfi Dægurlugiikcppl :(Ki.(XX)kjfðU| S.lilö.llÍTÓl > 1 1
.himdruöþu'undkrónj
l\ ?), uprAtf t 11
Aðalheiður Ólafsdóttir, Trausti Bjarnason og Ragnheiður Bjarnadóttir með stóra ávísun.
Dægurlagakeppni á Króknum 2005
Heiða úr Idol
söng sigurlagið
Hápunktur Sæluviku Skagfirðinga var að vanda síðastliðið
föstudagskvöld, þegar Dægurlagakeppni Sauðárkróks fórfram í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki og var troðfullt út úr dyrum.
Það var síðasta lagið sem
flutt var er reyndist sigurlagið,
Glæður í frábærum flutningi
Idolstörnunnar Heiðu,
höfundar þess kallaði sig
Brand en höfundur lags var
Trausti Bjarnason og textans
Ragnheiður Bjarnadóttir
frá Reykjavík. í prentaðri
kynningu kom fram að
söngvari lagsins væri Guðrún
Árný Karlsdóttir, en hún
forfallaðist og kom Aðalheiður
Ólafsdóttir, betur þekkt sem
I leiða úr Idol keppninni að
málinu með mjög skömmum
fyrirvara og flutti þetta ágæta
lag til sigurs.
í öðru sætinu var lagið
Lófaeiður eftir Sigurpál
Aðalsteinsson og Magnús
I>ór Sigmundsson í flutningi
Helgu Möller, og í þriðja sæti
lagið Kominn aftur, cn lag og
texti var eftir Stein Kárason
en tlytjandi var Kristján
Gíslason.
Undanfarinn áratug hefur
Kvefélag Sauðárkróks haldið
þessari hátíð, en nú töldu þær
kvenfélagskonur að keppnin
væri orðin föst i sessi og því
eðlilegt að þær eftirlétu öðrum
að halda merkinu á lofti. Fjórir
athafnamenn á Sauðárkróki,
þeir Sigurpáll Aðalsteinsson,
Kristján Kristjánsson, Ellert
H. jóhannsson og Magnús
Svavarsson tóku þá við keflinu
og er Ijóst að ekkert verður
gefið eftir, því að keppnin var
ein sú glæsilegasta fram til
þessa, lögin tíu sem komust
í úrslitakeppnina hvert öðru
betra, flutningur söngvara og
hljóðfæraleikara ágætur og
áhcyrendur aldrei fleiri.
Hljómsveitin Spútnik lék
undir í flutningi allra laganna,
en auk þess komu auka hljóð-
færaleikarar og dansarar við
sögu í flutningi nokkurra af
lögunum.
Kynnar voru þcir Gunnar
Rögnvaldsson og Jón Hallur
Ingólfsson og einnig voru þeir
með skemmtiatriði á meðan
beðið var eftir niðurstöðuni
talningar atkvæðaseðja, en
sérstök dómnefnd var að
störfum og var vægi hennar
sextíu hlutar á móti fjörutíu í
atkvæðum gesta.
Aðbúnaður og umgjörð
keppninnar frábær
Trausti Bjarnason höfundur
verðlaunalagsins, sagðist
koma frá Reykjavík, en þau
Ragnheiður höfundur texta
væru Vestfirðingar í húð og
hár, og var hann að vonum
ánægður að leikslokum með
veglega ávísun í verðlaun auk
annara smærri viðurkenn-
inga. Sagði Trausti að þetta
hefði vcrið nijög ánægjulegt
kvöld, hann sagðist vissulega
hafa verið nokkuð í því að
semja lög en þetta væri í fyrsta
sinn sem hann tæki þátt í
keppni sem þessari. Hann
sagði aðbúnað og umgjörð
alla um keppnina frábæra
og taldi að vart yrði á bétra
kosið. Vissulega hefði staðan
verið í nokkru uppnámi
þegar flytjandinn Guðrún
Árný hefði forfallast vegna
barnsburðar allnokkru fvrr
en gert var ráð fyrir, en með
aðstoð Heiðu, sem kom til liðs
við þau Ragnheiði með rnjög
skömmum fyrirvara hafi þetta
gengið upp.
Trausti sagði ljóst að lögin
hefðu öll verið góð og því
hörð keppni, en þetta yrði sér
ánægjuleg hvatning til frekari
tónsmíða og hugsanlegrar
útgáfu.
Að lokinni keppni var
dansleikur í íþróttahúsinu
þar sem hljómsveitirnar Von
og Hljómsveit Geirmundar
skemmtu gestum.
Að sögn Áskels
Heiðars Ásgeirssonar
framkvæmdastjóra Sæluviku
hefur aðsókn verið mjög góð
að nánast öllum atriðum
vikunnar, enda !j()lbreytt
og skemmtilegt efni í boði á
hverjum degi
Kristján Gístason söng lagið sem hafnaði i þriðja sæti og sést hérá sviðinu
ásamtfélögum sínum í hljómsveitinni Spútnik.
Úrgræna herberginu. Guðmundur Ragnarsson, DagbjörtJóhannesdóttir,
Albert Sölvi Óskarsson og Sigurlaug Vordis Eysteinsdóttir.
Jón Hallur Ingólfsson og Gunnar Rögnvaldsson kynntu og skemmtu afmiklum
móð. Á bak við má sjá Kristján trommara og Sigurð bassaieikara úr Von.
Heiða úr Idol var valinn besti flytjandi kvöldsins og fær hér verðlaun úr
hendi Kristjáns Kristjánssonar.
Hljómsveitin Von var á staðnum. Frá vinstri: Siggi Doddi, Kristján, Eliert og
Siggi.